Nýjar reglur skýra hvort Samherji veitti Eyþóri Arnalds kúlulán

For­sætis­nefnd Reykja­vík­ur­borgar hefur til með­ferðar end­ur­skoð­aðar reglur um skrán­ingu fjár­hags­legra hags­muna. Verði þær sam­þykktar mun Eyþór Arnalds þurfa að skrá 325 milljón króna lán sem hann fékk til kaupa á hlut í Morg­un­blað­inu sem Samherji segir hafa verið selj­enda­lán.

Nýjar reglur skýra hvort Samherji veitti Eyþóri Arnalds kúlulán
Eyþór Arnalds og Davíð Oddsson Eyþór er odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík og stærsti hlut­hafi Morg­un­blaðs­ins. Davíð er fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri úr Sjálf­stæð­is­flokki og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins. Mynd: Mbl/Eggert Jóhannesson

Nýjar reglur um skrán­ingu á fjár­hags­legum hags­munum borg­ar­full­trúa munu krefja Eyþór Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins, svara um hvort Samherji veitti honum 325 millj­óna króna kúlu­lán fyrir kaupum á hlut hans í Morg­un­blað­inu, verði þær sam­þykktar. Eyþór hefur ekki viljað svara því hver lán­aði honum, en segir það hafa verið lána­stofnun.

Í nýju regl­unum, sem Helga Björk Laxdal, skrif­stofu­stjóri borg­ar­stjórnar, sendi for­sætis­nefnd 29. maí, er kraf­ist ítar­legri upp­lýs­inga um fjár­hags­lega hags­muni borg­ar­full­trúa en áður var. Við regl­urnar hefur bæst kafli um skrán­ingu skulda, sjálf­skuld­ar­á­byrgða og ann­arra ábyrgða, sem tengdar eru rekstri fast­eignar eða atvinnu­rekstri félaga. Jafn­framt skal skrá teg­und skuldar eða ábyrgðar og skuld­ar­eig­anda.

Stað­festi borg­ar­stjórn regl­urnar mun Eyþór þurfa að skrá hver lán­aði félagi hans, Ramses II ehf., 325 millj­óna króna kúlu­lán með gjald­daga árið 2020 til kaupa á tæp­lega 23 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár