Forseti Landsréttar greiddi atkvæði gegn bókun dómstólasýslunnar

„Fjórir dóm­arar við rétt­inn geta að óbreyttu ekki tekið þátt í dóm­störfum,“ segir meðal ann­ars í bókun sem stjórn dóma­stóla­sýsl­unnar sam­þykkti í síð­ustu viku. Allir stjórn­ar­menn greiddu atkvæði með bók­un­inni nema Hervör Þor­valds­dóttir for­seti Lands­réttar.

Forseti Landsréttar greiddi atkvæði gegn bókun dómstólasýslunnar
Forseti Lands­réttar og for­maður stjórnar dóm­stóla­sýsl­unnar Hervör Þor­valds­dóttir og Benedikt Bogason.

Hervör Þor­valds­dóttir, for­seti Lands­réttar, greiddi atkvæði gegn bókun stjórnar dóm­stóla­sýsl­unnar þar sem kallað var eftir fjölgun dóm­ara og öðrum aðgerðum til að skjóta traust­ari stoðum undir milli­dóm­stigið. Þetta stað­festir Ólöf Finns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri dóm­stóla­sýsl­unnar, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Benedikt Bogason hæsta­rétt­ar­dóm­ari er for­maður stjórnar dóm­stóla­sýsl­unnar, en auk þeirra Hervarar Þor­valds­dóttur sitja í stjórn­inni Kristín Har­alds­dóttir, lektor við Háskól­ann í Reykja­vík, Íris Elma Guðmann dóm­rit­ari og Halldór Björns­son hér­aðs­dóm­ari.

Bókun sem stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar sam­þykkti fyrir helgi hefur vakið nokkra athygli, en þar er full­yrt að Lands­réttur hafi mátt búa við óvissu allt frá því hann tók til starfa.

Nú sé sú staða komin upp, eftir dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, að „fjórir dóm­arar við rétt­inn geta að óbreyttu ekki tekið þátt í dóm­störfum“. Því sé brýnt að dóms­mála­ráðu­neytið hlut­ist til um laga­breyt­ingu svo heim­ilt verði að fjölga dóm­urum við Lands­rétt. „Án þess að gripið verði til þessa úrræðis mun álagið við rétt­inn aukast veru­lega með til­heyr­andi drætti á með­ferð mála,“ segir í bók­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár