Dómstólasýslan biðlar til ráðherra að bregðast við og eyða óvissu

Alþingi hefur enn ekki komið saman og rík­is­stjórnin „átti ekki von á“ nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Nú tekur dóm­stóla­sýslan frum­kvæði í mál­inu og kallar eftir því að veitt verði laga­heim­ild til fjölg­unar dóm­ara.

Dómstólasýslan biðlar til ráðherra að bregðast við og eyða óvissu

Dóm­stóla­sýslan hefur farið þess á leit við dóms­mála­ráðu­neytið að að það hlut­ist til um laga­breyt­ingu þess efnis að heim­ilt verði að fjölga dóm­urum við Lands­rétt. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá stofn­un­inni.

Stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar sam­þykkti bókun í dag vegna nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu. Þar er full­yrt að Lands­réttur hafi mátt búa við óvissu allt frá því hann tók til starfa og brýnt sé að skjóta traustum stoðum undir milli­dóm­stigið.

Formaður stjórnar dóm­stóla­sýsl­unnar og fram­kvæmda­stjóri hafa átt ítar­legar við­ræður við full­trúa dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og nokkra af dóm­urum við Lands­rétt und­an­farna daga auk þess sem haft hefur verið sam­ráð við rétt­ar­fars­nefnd.

Bendir stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar á að „fjórir dóm­arar við rétt­inn geta að óbreyttu ekki tekið þátt í dóm­störfum“ og kallar því eftir að lög­fest verði heim­ild til fjölg­unar dóm­ara. „Án þess að gripið verði til þessa úrræðis mun álagið við rétt­inn aukast veru­lega með til­heyr­andi drætti á með­ferð mála,“ segir í bókun stjórn­ar­innar.

Benedikt Bogasonfor­maður stjórnar dóm­stóla­sýsl­unnar

Stjórn­ar­liðar hafa gefið afar óskýr skila­boð um hvernig brugð­ist verði við dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Ekki var talin ástæða til að kalla Alþingi saman fyrr en nú eftir helgi, um viku eftir að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu féll.  

Engar aðgerðir hafa verið boð­aðar til að tryggja réttar­ör­yggi íslenskra borg­ara eftir að ljóst varð að mann­rétt­inda­brot voru framin gegn fjölda fólks í Lands­rétti og dóm­ur­inn varð óstarf­hæfur. „Ég átti ekki von á þess­um úr­sk­urði. Ég bara segi það alveg heið­ar­lega,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir í við­tali við Mbl.is í gær. 

„Í því sam­bandi er mik­il­vægt að hafa í huga
þá óvissu sem Lands­réttur hefur mátt búa
við allt frá því að hann tók til starfa“

„Áður en end­an­leg ákvörðun verður tekin um af Íslands hálfu að óska eftir að mál­inu verði vísað til yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins leggur dóm­stóla­sýslan jafn­framt ríka áherslu á að áhrif slíks máls­skots verði könnuð,“ segir í bókun stjórnar dóm­stóla­sýsl­unnar.

„Í því sam­bandi er mik­il­vægt að hafa í huga þá óvissu sem Lands­réttur hefur mátt búa við allt frá því að hann tók til starfa 1. jan­úar 2018. Einnig telur dóm­stóla­sýslan mik­il­vægt að traustum stoðum verði skotið undir Lands­rétt, svo fljótt sem verða má, í stað þess að laga­legur grund­völlur hans verði áfram dreg­inn í efa. Dóm­stóla­sýslan er reiðu­búin til sam­ráðs og að veita alla aðstoð í þessu sam­bandi.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár