Viðkvæm dómsmál í uppnámi: Réttaróvissan slæm fyrir börn og foreldra

„Það er mjög brýnt að eyða þeirri óvissu sem hefur skap­ast í kjöl­far dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu,“ segir Tómas Hrafn Sveins­son, for­maður Barna­vernd­ar­nefndar Reykja­víkur.

Viðkvæm dómsmál í uppnámi: Réttaróvissan slæm fyrir börn og foreldra

„Réttaró­vissan er afar slæm fyrir alla aðila, börn, for­eldra og fóst­ur­for­eldra,“ segir Tómas Hrafn Sveins­son, for­maður Barna­vernd­ar­nefndar Reykja­víkur og hæsta­rétt­ar­lög­maður í sam­tali við Stundina. 

Fjöldi dóma í barna­verndar-, for­sjár- og umgengn­is­málum hefur verið kveð­inn upp í Lands­rétti síðan milli­dóm­stigið tók til starfa í fyrra og mörg við­kvæm mál bíða úrlausnar. Fjór­menn­ing­arnir sem skip­aðir voru lands­rétt­ar­dóm­arar með ólög­mætum hætti og í trássi við mat hæfn­is­nefndar hafa dæmt í tugum slíkra mála. Af dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu má ráða að með dómunum, og jafn­vel einnig dómum hinna ell­efu dóm­ar­anna, hafi verið brotið gegn rétti dóm­þola til að fá úrlausn fyrir óhlut­drægum og sjálf­stæðum dóm­stól.

Tómas Hrafn Sveins­sonfor­maður Barna­vernd­ar­nefndar Reykja­víkur og hæsta­rétt­ar­lög­maður.

Tómas Hrafn bendir á að vegna eðlis barna­vernd­ar­mála sé lögð sér­stök áhersla á máls­hraða þegar þau eru fyrir dómi. Kæru- og áfrýj­un­ar­frestir séu styttri en í öðrum málum, enda sé réttaró­vissa sér­stak­lega slæm í svo við­kvæmum málum. 

„Þess vegna er mjög brýnt að eyða þess­ari óvissu sem hefur skap­ast í kjöl­far dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, bæði hvað varðar barna­vernd­ar­mál sem þegar hafa verið flutt í hér­aði og bíða fyrir Lands­rétti og svo ekki síst vegna þeirra mála sem þegar hafa hlotið end­an­lega afgreiðslu Lands­réttar,“ segir Tómas Hrafn. 

Stundin hefur rætt við lög­menn, lög­fræð­inga og máls­að­ila í dóms­málum eftir að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu var kveð­inn upp. „Það er skelfi­legt að vera settur í bið­stöðu þegar málið var loks­ins komið á þetta stig, þegar maður hélt loks­ins að þetta væri að verða búið,“ sagði einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar í gær, aðili að við­kvæmu dóms­máli sem var á dag­skrá Lands­réttar í vik­unni en hefur nú verið frestað um óákveð­inn tíma vegna dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins.

RÚV og Vísir.is greindu frá því fyrir hádegi að Fang­els­is­mála­stofnun hefðu borist beiðnir um að afplánun dæmdra manna yrði frestað vegna dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Jóhannes Karl Sveins­son hæsta­rétt­ar­lög­maður tjáði sig um réttaró­viss­una í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2: „Þetta er fyrst og fremst óvissan sem er þá fyrir þá sem að eru búnir að fá dóma, kannski sitja í fang­elsi eða eitt­hvað þess háttar og þá fyrir þá tugi og hund­ruð mála sem biða úrlausnar. Hvernig á að greiða út þessu? Á að taka bara ein­hvern veg­inn áhætt­una af því að þetta bless­ist ein­hvern veg­inn eða þetta verði allt ónýtt eftir að við erum búin að halda áfram í ein­hvern tíma? Það er svona við­fangs­efni dags­ins sem er mjög alvar­legt.“

Hvorki dóm­stólar né rík­is­stjórn Íslands hafa látið birta upp­lýs­ingar um hvaða þýð­ingu dóm­ur­inn hefur fyrir fólk sem dæmt hefur verið í Lands­rétti eða er aðilar að málum fyrir dóm­stólnum og með hvaða hætti verður brugð­ist við. Þá hafa engar aðgerðir verið boð­aðar til að tryggja réttar­ör­yggi íslenskra borg­ara eftir að ljóst varð að mann­rétt­inda­brot voru framin gegn fjölda fólks í Lands­rétti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár