Tjáir sig ekki um hvort hún treysti enn dómsmálaráðherra

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir varði Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra van­trausti því hún vildi ekki fórna rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Hún tekur ekki afstöðu til þess hvort dóms­mála­ráð­herra sé treystandi nú fyrr en eftir sam­tal við þing­flokk­inn.

Tjáir sig ekki um hvort hún treysti enn dómsmálaráðherra

Þing­flokks­for­maður Vinstri grænna segir þing­flokk­inn þurfa að setj­ast niður og taka afstöðu í mál­inu áður en hún tjái sig nokkuð um nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Í dómi sem kveð­inn var upp í morgun var íslenska ríkið dæmt brot­legt vegna vinnu­bragða Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra þegar hún skip­aði fjóra dóm­ara við Lands­rétt í trássi við mat hæfn­is­nefndar sum­arið 2017.

„Ég ætla að gefa mér tíma til að fara yfir þetta með mínu fólki áður ég segi nokkuð um það,“ segir Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, um málið.

Bjarkey var ein níu þing­manna Vinstri grænna sem vörðu dóms­mála­ráð­herra van­trausti í mars í fyrra. Höfðu þá dóm­stólar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að emb­ætt­is­færslur ráð­herra í Lands­rétt­ar­mál­inu hefðu falið í sér brot gegn rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga.

„Níu þing­menn Vinstri grænna meta það svo að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið sé undir ef van­traust verður sam­þykkt,“ sagði Bjarkey þegar hún greindi frá atkvæði sínu. „Við myndum líta þannig á ef málið sneri að okkur, annað er ein­földun á póli­tík­inni að mínu mati. Ég er ánægð með þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Ég vil ekki fórna góðri for­ystu Katrínar Jak­obs­dóttur því að ég trúi því ein­læg­lega að við eigum eftir að koma mörgum góðum málum áfram í gegnum þingið enda erum við rétt að hefja veg­ferð­ina.“

Aðspurð hvort hún hafi skipt um skoðun frá því hún varði Sigríði Andersen van­trausti í mál­inu í mars í fyrra segir Bjarkey: „Það er ekki komið til þess að taka neina afstöðu til þess, að mínu mati.“

Aðspurð hvort hún treysti Sigríði Andersen til að vinna úr þeirri flóknu stöðu sem komin er upp vegna nið­ur­stöð­unnar svarar Bjarkey á sama hátt. „Ég ætla ekk­ert að tjá mig um það fyrr en ég er búin að lesa dóm­inn og ræða við mitt fólk. Þá setj­umst við niður og tökum afstöðu um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár