Mannréttindadómstóllinn: Alþingi brást með alvarlegum hætti í Landsréttarmálinu

Alþingi fylgdi ekki lögum þegar greidd voru atkvæði um skipun dóm­ara. Þetta skað­aði ferlið og trú­verð­ug­leika þess að mati Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Mannréttindadómstóllinn: Alþingi brást með alvarlegum hætti í Landsréttarmálinu

Verklag Alþingis við skipun lands­rétt­ar­dóm­ara, þar sem kosið var um alla umsækj­endur í einu í stað þess að taka afstöðu til skip­unar hvers dóm­ara fyrir sig, fól í sér lög­brot og alvar­legan ágalla á skip­un­ar­ferl­inu og trú­verð­ug­leika þess.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu leggur áherslu á þetta í dómi sínum í Lands­rétt­ar­mál­inu sem kveð­inn var upp í morgun. Að mati dóms­ins brugð­ust bæði fram­kvæmd­ar­valdið og lög­gjaf­inn þegar skipað var í Lands­rétt.

Fyrir vikið telj­ast fjór­menn­ing­arnir sem valdir voru í trássi við mat hæfn­is­nefndar ekki hafa verið skip­aðir sam­kvæmt lögum. Brotið hefur verið gegn rétti dóm­þola þeirra rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir óhlut­drægum og sjálf­stæðum dóm­stól. 

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir var for­seti Alþingis þegar atkvæða­greiðslan fór fram árið 2017 og bar upp til­lög­una um að kosið yrði um alla dóm­ara í einu. Nú er hún aðstoð­ar­maður Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

Helgi Bern­ód­us­son skrif­stofu­stjóri Alþingis varði sér­stak­lega hvernig staðið var að atkvæða­greiðsl­unni á sínum tíma og sendi skrif­stofa Alþingis for­seta Íslands grein­ar­gerð þar sem verk­lagið var rétt­lætt. „Ég get aðeins sagt að það var mjög vandað til und­ir­bún­ings at­kvæða­greiðsl­unn­ar á fimmtu­dag­inn og hugað vel að öll­um atriðum og orða­lagi,“ sagði Helgi í við­tali við Mbl.is eftir að Haf­steinn Þór Hauksson, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands sem tók þátt í að semja frum­varp til laga um nýtt milli­dóms­stig, hafði bent á að Alþingi hefði ekki farið að lögum við með­ferð máls­ins.

Hæsti­réttur komst síðar að þeirri nið­ur­stöðu að Alþingi hefði brotið lög með því að kjósa um alla dóm­ar­ana í einu en ekki hvern og einn. Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn bendir sér­stak­lega á þetta og telur að með þessu hafi Alþingi skaðað trú­verð­ug­leika skip­un­ar­ferl­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár