Jón Baldvin vill hitta konurnar

„Þeir sem upp­lifðu þá nær­veru á ein­hvern ann­ar­legan hátt, þurfa að díla við það sjálfir,“ segir hann um meinta kyn­ferð­is­lega áreitni sína gagn­vart nem­endum í Haga­skóla.

Jón Baldvin vill hitta konurnar
Segir fyrrum nem­endur ánægða „Allir bera mér góða sög­una,“ segir Jón Baldvin og bætir við: „Enginn þeirra treystir sér þó að koma fram undir nafni.“

Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi for­ystu­maður jafn­að­ar­manna á Íslandi, segir að nem­endur í Haga­skóla á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar hljóti að hafa upp­lifað nær­veru hans með ein­hverjum ann­ar­legum hætti. Þeir verði að „díla við það sjálfir“ en hann vilji gjarnan hitta kon­urnar sem saka hann um kyn­ferð­is­lega áreitni. 

Þetta kemur fram í svari Jóns Baldvins við tölvu­pósti Stund­ar­innar þar sem honum var boðið að svara fyrir ásak­anir fyrr­ver­andi nem­enda. Áður hafði Jón Baldvin sagt að engin gögn fynd­ust um að hann hefði kennt bekkj­ar­deild kvenn­anna sem báru á hann sakir en Borg­ar­skjala­safn afhenti Stund­inni stunda­töflu sem stað­festi hið gagn­stæða. „Hvað myndir þú segja? Hvernig myndir þú bregð­ast við ásök­unum sem þessum? Eitthvað sem átti að eiga sér stað í kennslu­stofu fyrir næstum hálfri öld? Settu þig nú í mín spor,“ segir Jón Baldvin.

Að því er fram kom í við­tali við Jón Baldvin í Silfri Egils í febr­úar vinnur hann nú að bók um ásak­an­irnar á hendur sér sem ber tit­il­inn „Vörn fyrir æru: Hvernig fámennur hópur öfga­femínista hefur sagt rétt­ar­rík­inu stríð á hendur.“ Und­an­farnar vikur hefur hann skrifað greinar í Frétta­blaðið þar sem hann varar við því að mann­orð fólks sé eyði­lagt, án dóms og laga, í nafni kynja­jafn­réttis. 

Matt­hildur Krist­manns­dóttur lýsti í við­tali við Stundina þann 11. jan­úar að Jón Baldvin hefði reglu­lega látið hana sitja eftir að loknum íslensku­tímum í Haga­skóla, snert hana, sleikt og gengið lengra í hvert skiptið. María Alex­and­ers­dóttir, sem var í sama bekk, sagð­ist hafa ótt­ast að verða næst, enda hefði Jón Baldvin strokið og grúft sig yfir hana í tímum.

Aðspurður um málið seg­ist Jón Baldvin hafa leitað gagna til að vita hvort hann hefði kennt þessum bekk. Hann kann­ist hvorki við nöfn kvenn­anna né lýs­ingar þeirra. „Enda eru þær fárán­legar og ótrú­verð­ugar. Ég hef rætt við marga af mínum nem­endum frá þessum árum (sem margir hverjir hafa orðið vinir mínir fyrir lífs­tíð) og allir bera mér góða sög­una. Og það sem meira er – telja þessa sögu fárán­lega. Enginn þeirra treystir sér þó að koma fram undir nafni. Sem segir okkur nákvæm­lega þá sögu sem við erum að reyna að segja. Það er að segja, ég einn.“

„Mér finnst það bara und­ar­legt að slíkt sé tekið mark­tækt“

Jón Baldvin segir málið frá­leitt. „Viltu kannski rann­saka hlut­ina áður en þú setur þá á prent? Af hverju hring­irðu þá ekki í það fólk sem var í þessum umtal­aða bekk og færð þá til að segja frá? Eða er til­gangur þinn einn og sá eini að dæma átt­ræðan mann fyr­ir­fram fyrir það sem hann ekki gerði?“ Rétt er að taka fram að Stundin hefur rætt við tvo bekkj­ar­fé­laga Matt­hildar Krist­manns­dóttur og Maríu Alex­and­ers­dóttur, alls fjóra fyrr­ver­andi nem­endur Jóns Baldvins, sem ber saman um atburði.

„Ef að nær­vera mín sem for­falla­kenn­ara í 2. bekk Haga­skóla þótti um of, þá get ég ekk­ert sagt um það. Þeir sem upp­lifðu þá nær­veru á ein­hvern ann­ar­legan hátt, þurfa að díla við það sjálfir – og mér finnst það bara und­ar­legt að slíkt sé tekið mark­tækt.  Það er ekk­ert sem ég get sagt um það. Ég myndi gjarnan vilja fá að hitta þessar tvær, ef þær vilja það. Þá getum við rætt málin.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

MeToo sögur um Jón Baldvin

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögnina
Fréttir

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögn­ina

„Ég er stolt af því að hafa rofið þögn­ina með því að koma dag­bók mömmu á fram­færi sem og bréf­inu sem Jón Baldvin Hanni­bals­son sendi henni,“ segir Val­gerður Þor­steins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur en Stundin fjall­aði um bréfið og dag­bók­ina á dög­unum. Pabbi Val­gerðar sem var í sam­búð með Þóru fyrir um fjöru­tíu árum, eig­in­kona hans og systir Val­gerðar segja að frið­helgi einka­lífs Þóru sé rofin og van­virt.
Þegar konur eru stimplaðar geðveikar
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Þegar konur eru stimpl­aðar geð­veikar

„Þetta á ekk­ert erindi við almenn­ing, frekar en geð­veiki dóttur minnar,“ voru við­brögð Jóns Baldvins við birt­ingu bréfa sem hann skrif­aði til ungrar stúlku í fjöl­skyld­unni. Í til­raun til að varpa athygl­inni frá sér benti hann á dóttur sína, sem svar­aði fyrir sig og var fyrir vikið dregin fyrir dóm af föður sínum. „Ég gat ekki sætt mig við að vera útmáluð geð­veik.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár