Starfsgreinasambandið vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara

Við­ræðu­nefnd telur að ekki verði kom­ist lengra án aðkomu rík­is­sátta­semj­ara. Þá var við­ræðum Efl­ing­ar, VR, VLFA, VLFG og Sam­taka at­vinnu­lífs­ins slitið í dag.

Starfsgreinasambandið vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara
Björn Snæ­björns­son, for­maður SGS

Starfs­greina­sam­band Íslands vísar kjara­deilu við Samtök atvinnu­líf­is­ins til rík­is­sátta­semj­ara. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem sam­bandið sendi frá sér rétt í þessu.

Starfs­greina­sam­bandið og SA hafa nú fundað alls hund­rað og tíu sinnum síðan í nóv­em­ber 2018, en miðar ekki áfram í kjara­deilu sín á milli. Í til­kynn­ing­unni segir að „ýmis­legt hefur þok­ast áfram á und­an­gegnum vikum í ein­stökum málum og umræðu­grund­völlur til staðar á öðrum sviðum.“

Þrátt fyrir það er mat við­ræðu­nefndar Starfs­greina­sam­bands­ins að nú verði ekki kom­ist lengra í deil­unni nema með aðkomu rík­is­sátta­semj­ara. Biðla þau til rík­is­sátta­semj­ara að skipu­leggja og stýra áfram­hald­andi vinnu.

Í dag var einnig við­ræðum Efl­ing­ar, VR, VLFA, VLFG og Sam­taka at­vinnu­lífs­ins slitið. Samn­inga­fund­ur hófst um tvö leytið í húsa­kynn­um rík­is­sátta­semj­ara en var lokið fyrir þrjú leytið, en fund­ur­inn átti að standa til hálf fjögur.

Deilu­að­ilar munu hitt­ast áfram á tveggja vikna fresti þrátt fyr­ir slit á við­ræð­unum, eins og kveðið er á um í lög­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár