Þeir sem eru viðkvæmir fyrir viðkvæmni

Menn­ing­ar­stríð geisar í hinum vest­ræna heimi, þar sem tek­ist er á um grund­vall­ar­gildi á tímum fjöl­menn­ingar og rétt­inda­bar­áttu. Birt­ing­ar­myndir þess­ara átaka eru margar og fjöl­breyttar í dæg­ur­menn­ing­unni en rauði þráð­ur­inn er oftar en ekki sjálfs­mynd ungra karl­manna.

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir viðkvæmni

Það er óhætt að segja að nýleg aug­lýs­ing rak­véla-fram­leið­and­ans Gillette hafi kallað fram sterk við­brögð á net­inu og í dæg­ur­menn­ingu almennt. Það var senni­lega hug­myndin. Fyr­ir­tækið var enda að taka skýra afstöðu í ákveðnu menn­ing­ar­stríði sem hefur geisað und­an­farin ár. Það hefur stundum verið undir yfir­borð­inu, eða ein­skorð­ast við ákveðin sam­fé­lög á net­inu, en eftir #metoo-umræð­una eru átökin orðin meira áber­andi.

Fjöl­miðlar eru í þessu til­felli sak­aðir um að hlaupa á sig með því að byrja að segja fréttir af froðu­fellandi við­brögðum and­femínista áður en þau voru í raun komin fram. Þannig var frétta­maður BBC grip­inn við að vitna í Twitter-reikn­inga sem voru nýir og höfðu örfáa fylgj­endur. Það var vissu­lega hægt að finna froðu­fellandi ein­stak­linga en voru við­brögðin virki­lega svona hörð?

Þau urðu það í það minnsta fljótt. Margir gripu þessa meintu umræðu á lofti og for­dæmdu Gillette. Þá virt­ust vera sam­an­tekin ráð um að setja „dis­like“ á aug­lýs­ing­una …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár