Innmúraðar þjóðir

Hug­myndir um landamæramúr eru ekki nýjar af nál­inni. Þó að umræðan í dag hverf­ist um landa­mæri Banda­ríkj­anna og Mexíkó hafa slík mann­virki verið reist um allan heim. Í dag rísa múrar víðar og hraðar en á tímum kalda stríðs­ins.

Innmúraðar þjóðir
Tákn um veldi keis­ar­ans Kína­m­úr­inn er 21 þús­und kíló­metra langur og umlukti mest allt Kína. Margir fræði­menn vilja meina að Kína­m­úr­inn hafi ekki síst markað sál­fræði­leg landa­mæri rík­is­ins og verið tákn­rænn fyrir hið mikla veldi keis­ar­ans. Allt sem stóð utan múrs­ins var útlent og illt, allt innan hans kín­verskt og gott. Mynd: Shutterstock

Kína­m­úr­inn er senni­lega það fyrsta sem flestum flýgur í hug þegar rætt er um stóra landamæram­úra. Þó að það sé að vísu rangt að hann sjá­ist með berum augum úr geimnum (til þess er hann of mjór) er um að ræða eitt ótrú­leg­asta mann­virki jarðar. Fram­kvæmdir hófust á sjö­undu öld fyrir Krist og á end­anum varð múr­inn 21 þús­und kíló­metra langur og umlukti mest allt Kína. Það er sjö sinnum lengri múr en Trump hefur lagt til að byggja.

Upp­haf­lega var um að ræða marga minni múra sem smám saman voru sam­ein­aðir til að verj­ast inn­rásum Mongóla og ann­arra útlend­inga sem Kín­verjar ótt­uð­ust. Hug­myndin var að her­sveitir á hest­baki gætu ekki nýtt styrk sinn á opnum sléttum heldur neydd­ust til að ráð­ast með öllu sínu liði á ein­staka hluta múrs­ins til að reyna að kom­ast í gegn eða yfir. Landamæra­verðir voru til­búnir á múr­num með bál­kesti sem þeir kveiktu í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár