Bjóða afturvirka kjarasamninga ef samið verður fyrir janúarlok

Samtök atvinnu­lífs­ins eru til­búin að gera kjara­samn­inga sem gilda frá síð­ustu ára­mótum að því gefnu að hækk­anir verði hóf­legar og að samið verði fyrir næstu mán­að­ar­mót.

Bjóða afturvirka kjarasamninga ef samið verður fyrir janúarlok
Setur skil­yrði SA bjóða aft­ur­virka samn­inga með skil­yrðum. Mynd: sa.is

Samtök atvinnu­lífs­ins eru til til­búin að sætt­ast á að kjara­samn­ingar verði aft­ur­virkir með þeim hætti að þeir taki gildi frá og með síð­ustu ára­mótum. Á það verði þó aðeins sæst ef samn­ingar náist fyrir lok þessa mán­aðar, og að þeir verði í takt við það svig­rúm sem atvinnu­lífið telur sig hafa til að veita launa­hækk­anir.

Greint er frá þessu í Frétta­blað­inu og vitnað í Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæda­stjóra Samtaka atvinnu­lífs­ins. Þar er haft eftir Halldóri að til­boð sam­tak­anna gildi ein­ungis að umræddum skil­málum upp­fylltum og verði við­ræðum slitið og boðað til verk­falla falli til­boðið.

Verka­lýðs­for­ystan hefur lagt þunga áherslu á að kjara­samn­ingar verði aft­ur­virkir og segja VR, Efling og Verka­lýðs­fé­lag Akraness það ófrá­víkj­an­lega kröfu að svo verði. Undir lok síð­asta árs var haft eftir Vil­hjálmi Birg­is­syni, for­manni síð­ast­nefnda félags­ins, að sú krafa væri óháð því hvenær samn­ingar myndu nást.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár