Teiknaði fimmtíu tuskudýr á tveimur tímum

Á milli barna og bangsanna þeirra mynd­ast oft djúp vin­áttu­tengsl. Vinátta er einmitt umfjöll­un­ar­efni bók­ar­innar Leika? eftir Lindu Ólafs­dóttur, rit- og mynd­höf­und. Hún átti stuttar gæða­stundir með fjölda barna á dög­unum, sem fylgd­ust spennt með henni mála mynd af þeirra eft­ir­lætis tusku­dýri.

Teiknaði fimmtíu tuskudýr á tveimur tímum
Nýtur vinnu með börnum Linda Ólafs­dóttir seg­ist njóta inni­lega sam­skipta við börn. Þau séu alla jafna ein­læg, skemmti­leg, opin og láti allt flakka. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eitt þeirra fimm­tíu barna sem gengu til bóka­messu í Hörpu á dög­unum, með tusku­dýr undir hend­inni, var hinn fjög­urra ára Baltasar Bragi Mark­ús­son. Með honum í för var Scooby-Doo-bangs­inn hans. „Pabbi keypti hann handa mér og Úlfi bróður mínum,“ sagði hann, spurður að því hvar hann hefði fengið þennan stóra og flotta bangsa. Hann var ánægður með mynd­ina sem Linda Ólafs­dóttir teikn­ari gerði af bangs­anum. „Hún er kúl. Ég leyfði Úlfi að eiga hana með mér og við ætlum að hafa hana inni í her­bergi hjá okkur, því við erum að gera Scooby-Doo-her­bergi.“

Finnst myndin kúlBaltasar Bragi Mark­ús­son var ánægður með mynd­ina af upp­á­halds­bangs­anum sínum, honum Scooby-Doo.

„Við erum að gera Scooby-Doo-her­bergi.“

Pabbi þeirra, Markús Efraím, útskýrir að þeir feðgarnir deili áhuga á hroll­vekjum, skrímslum og draugum, svo hann sé alltaf að leita að við­eig­andi efni sem við­haldi áhug­anum. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár