Bjarni um Gunnar Braga sem sendiherra: „Hann hefur kannski væntingar í ljósi reynslu sinnar“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði á Alþingi í dag að hann hefði tekið því fagn­andi þegar Gunnar Bragi Sveins­son, þá utan­rík­is­ráð­herra, hafi til­kynnt honum um skipan Geirs H. Haarde sem sendi­herra. Ekkert hafi komið fram á fundum þeirra Gunnars sem hefði getað gefið honum vænt­ingar um að verða sjálfur skip­aður sendi­herra síðar.

Bjarni um Gunnar Braga sem sendiherra: „Hann hefur kannski væntingar í ljósi reynslu sinnar“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, telur að Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, hafi kannski haft „vænt­ingar í ljósi reynslu sinnar“ um að verða skip­aður sendi­herra.

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi rétt í þessu spurði Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, út í skipan Gunnars Braga á Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem sendi­herra í Banda­ríkj­unum. Á Klaust­urs­upp­tök­unum kom fram að Gunnar Bragi hafi talið sig eiga von á að verða sjálfur skip­aður sendi­herra af Bjarna sem end­ur­gjald fyrir skip­an­ina. Hafi Bjarni lofað honum þessu.

„Átti hæst­virtur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fund, sam­tal eða nokkur skonar sam­skipti, form­leg eða óform­leg, með Gunnari Braga Sveins­syni þar sem skipan Geirs H. Haarde sem sendi­herra í Banda­ríkj­unum var rædd?“ spurði Þór­hildur Sunna.

Bjarni sagð­ist hafa átt ótal fundi með Gunnari Braga. „Á einum fund­inum sem ég sat með honum til­kynnti hann mér að hann hyggð­ist skipa Geir H. Haarde sem send­ir­herra,“ sagði Bjarni. „Honum fannst það við hæfi þar sem um var að ræða fyrr­ver­andi for­mann flokks míns og ég tók því fagn­andi.“

Þór­hildur Sunna spurði í fram­hald­inu hvort Bjarni vissi um eitt­hvað sem gæti hafa gefið Gunnari Braga vænt­ingar um end­ur­gjald vegna skip­an­innar.

Sagði Bjarni að stutta svarið við spurn­ing­unni væri nei. „Almenna svarið við þessu er að hátt­virtur þing­maður er fyrr­ver­andi utan­rík­is­rða­herra og margir slíkir hafa endað í utan­rík­is­þjón­ust­unni ein­hvers staðar.“

Bætti Bjarni því við að ekk­ert hefði komið fram á fundum þeirra Gunnars Braga sem gefið hafi til­efni fyrir hann að búast við slíkri end­ur­greiðslu. „Hann hefur kannski vænt­ingar í ljósi reynslu sinnar,“ sagði Bjarni loks og taldi upp fyrr­ver­andi stjórn­mála­menn og utan­rík­is­ráð­herra sem nú gegna störfum fyrir utan­rík­is­þjón­ust­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár