Á þriðja hundrað sagt upp þrátt fyrir björgun WOW

Félagið Indigo Partners hyggst fjár­festa í WOW air sam­kvæmt til­kynn­ingu Skúla Mogensen til Sam­göngu­stofu og stjórn­valda. Í gær var 237 manns var sagt upp hjá Airport Associates í Reykja­nesbæ.

Á þriðja hundrað sagt upp þrátt fyrir björgun WOW

Félagið Indigo Partners hyggst kaupa í flug­fé­lag­inu WOW air, en Skúli Mogensen verður áfram stærsti hlut­hafi, sam­kvæmt til­kynn­ingu beggja félaga í gær­kvöldi. Hætt hafði verið við kaup Icelandair á WOW í gær­morgun og var fram­tíð flug­fé­lags­ins tví­sýn.

Indigo er leið­andi fjár­festir í hinu ung­verska Wizz air, lággjalda­flug­fé­lagi sem flogið hefur á milli Íslands og Póllands. Þá fjár­festir Indigo í flug­iðn­aði víða um heim.

Í til­kynn­ing­unni seg­ist Skúli vera sann­færður um að þessi ákvörðun sé sú rétta fyrir starfs­fólk WOW air og far­þeg­ana. Frekari skil­málar við­skipt­anna hafa ekki verið gefnir upp.

Til­kynn­ingin um kaupin kemur eftir að 237 manns var sagt upp hjá Airport Associates á Kefla­vík­ur­flug­velli. Fyr­ir­tækið er helsti þjón­ustu­að­ili WOW air og er þetta stærsta hóp­upp­sögnin í Reykja­nesbæ síðan varn­ar­lið banda­ríska hers­ins fór árið 2006, sam­kvæmt Vík­ur­fréttum.

„Það er óhægt að segja að þetta sé svartur fimmtu­dagur.  Okkur er veru­lega brugðið en við munum þjón­usta þessa starfs­menn eftir fremsta megni,“ sagði Kristján Gunn­ars­son, for­maður VSFK.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flugvallarmál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár