Ævintýri sölumanns Íslands sem vildi sigra heiminn

Ævin­týra­legri eig­enda­sögu Skúla Mogensen á WOW air lauk í byrjun nóv­em­ber þegar botn komst loks í næstu skref fram­tíðar flug­fé­lags­ins. Á síð­ustu sjö árum hefur Skúli verið eitt helsta and­lit ferða­manna­lands­ins, farið mik­inn í fjöl­miðlum og verið með stór plön um heims­yf­ir­ráð WOW air.

Ævintýri sölumanns Íslands sem vildi sigra heiminn

Ef setja ætti and­lit ein­hvers eins manns á þá spreng­ingu sem verið hefur í ferða­manna­iðn­að­inum á Íslandi síð­ast­liðin ára­tug þá myndu lík­lega margir nefna nafn Skúla Mogensen, stofn­anda og bráðum fyrr­ver­andi eig­anda flug­fé­lags­ins WOW air. 

Skúli hefur verið rödd jákvæðni, hress­leika og stöðugrar sóknar síð­ast­liðin sjö ár í stafni WOW air og keyrt starf­sem­ina áfram af mik­illi bjart­sýni og stöðugt bætt við nýjum flug­leiðum og áfanga­stöðum: Los Angeles, Dallas, Tel Avív og Nýja-Delhí. 

Fáir í íslenskri ferða­þjón­ustu hafa verið eins áber­andi og Skúli síð­ast­liðin ár og hann lagt sitt af mörkum sem ötul­asti sölu­maður Íslands. Ófáar fréttir og myndir hafa birst af Skúla þar sem hann kynnir nýj­ustu áfanga­staði WOW air, annað hvort íklæddur flug­þjóns­bún­ingi flug­fé­lags­ins eða upp­á­klæddur að klippa á borða í erlendri flug­stöð. 

„Ævin­týra­mennskan er það sem hefur alltaf drifið mig áfram“

Ævintýramaður með gleðina að vopni

Á meðan stærsta flug­fé­lag lands­ins Icelandair minnir meira á trausta og and­lits­lausa stofnun, mest­megnis í eigu líf­eyr­is­sjóða, sem stýrt er af tækni­mönnum í dökkum jakka­fötum er Skúli brons­aður og bros­andi, stór­huga ævin­týra­maður sem sækir fram  með að minnsta kosti tvær efstu töl­urnar á skyrt­unni frá­hnepptar og bring­una bera. „Ævin­týra­mennskan er það sem hefur alltaf drifið mig áfram og mér leið­ist afskap­lega ef það er ekk­ert að ger­ast. Þegar hlut­irnir eru fallnir í ljúfa löð verð ég óró­legur,“ sagði Skúli í við­tali við DV árið 2012 eftir að hann hafði komið WOW air á kopp­inn og keypt MP Banka ásamt hópi fjár­festa.  „Að ein­hverju leyti er þetta spennu­fíkn. En við skulum vona að ég sé orð­inn aðeins skyn­sam­ari núna,“ sagði hann þá.  

Mik­il­vægið sem Skúli leggur upp úr jákvæðni má meðal ann­ars und­ir­strika með því að fyrir nokkrum árum þegar hann hafði sam­band við blaða­mann, sem þá var starfs­maður DV, og bað um það sér­stak­lega að blaðið hætti að birta af honum mynd þar sem hann var alvar­legur á svip­inn og sendi þess í stað myndir þar sem hann var með sig­ur­veg­ara­bros á vör og í frá­hnepptri skyrtu. Skúli virð­ist hafa fund­ist nei­kvætt að virka ekki glaður á þeim myndum sem birtar voru af honum af því hann vill að umheim­ur­inn sjái sig sem jákvætt afl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár