Björn Leví ekki hættur að skoða aksturskostnað

For­sætis­nefnd Alþingis telur ekk­ert benda til þess að Ásmundur Frið­riks­son hafi brotið af sér. Ekki séu skil­yrði fyrir almennri rann­sókn á endu­greiðslum til þing­manna vegna akst­urs.

Björn Leví ekki hættur að skoða aksturskostnað

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, er ekki hættur að beita sér varð­andi end­ur­greiddan akst­urs­kostnað þing­manna. For­sætis­nefnd Alþingis sagði í gær að ekki væru skil­yrði fyrir almennri rann­sókn á mál­inu og að ekk­ert hefði komið fram til að styðja það að Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefði brotið gegn siða­reglum þing­manna í mál­inu.

Í sam­tali við Frétta­blaðið í dag segir Björn Leví að siða­nefnd hefði átt að vera kölluð saman í mál­inu. For­sætis­nefnd sé ein­göngu milli­göngu­að­ili þegar kemur að því. „Erindi mitt snýr mikið að end­ur­greiðslu í kringum kosn­inga­bar­áttu,“ segir Björn Leví. „Þar undir eru ansi margir þing­menn og þeir þing­menn sem voru í for­sætis­nefnd og hafa kannski fengið end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar sem fram­bjóð­endur en ekki sem þing­menn í kosn­inga­bar­áttu hefðu átt að segja sig frá mál­inu.“

Í svari sínu til for­sætis­nefndar við­ur­kennir Ásmundur að hluti greiðsl­anna hafi tengst sjón­varps­þátta­gerð fyrir ÍNN og orkað tví­mælis. Hann hafi því end­ur­greitt 178 þús­und krónur vegna ferða sinna. Ásmundur fékk 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna akst­urs­kostn­aðar í fyrra, mest allra þing­manna.

Þingmenn Pírata gagn­rýndu máls­með­ferð­ina á Alþingi í gær. Sagði Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir að Birni Leví hefði verið hótað því að hann yrði mögu­lega sjálfur lát­inn sæta ábyrgð sam­kvæmt siða­reglum fyrir að hafa sent inn erindið um rann­sókn­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Aksturskostnaður þingmanna

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár