Sigríður ósammála héraðsdómi, segist engin mistök hafa gert og biðst ekki afsökunar

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra braut lög, olli mönnum fjár­hags­legu tjóni og bak­aði rík­inu skaða­bóta­skyldu að mati Hér­aðs­dóms Reykja­víkur. Hún hafnar því hins vegar að hafa valdið miska og ætlar ekki að biðja Jón Hösk­ulds­son og Eirík Jónsson afsök­unar á lög­brotum við skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara.

Sigríður ósammála héraðsdómi, segist engin mistök hafa gert og biðst ekki afsökunar

Ef Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra hefði farið að lögum við und­ir­bún­ing og skipun dóm­ara við Lands­rétt og lagt for­svar­an­legt mat á hæfni umsækj­enda hefðu Jón Hösk­ulds­son og Eiríkur Jónsson hlotið skipun. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur telur að leiddar hafi verið nægi­lega sterkar líkur að þessu til að Jón og Eiríkur eigi rétt á skaða­bótum vegna lög­brota dóms­mála­ráð­herra við með­ferð máls­ins. Athafnir ráð­herra hafi bakað þeim fjár­hags­legt tjón. 

Þetta er nið­ur­staðan í tveimur dómum hér­aðs­dóms sem kveðnir voru upp í gær. Ríkið var dæmt til að greiða Jóni Hösk­ulds­syni 4 millj­ónir í skaða­bætur og 1,1 milljón í miska­bætur vegna lög­brota dóms­mála­ráð­herra auk máls­kostn­aðar. Þá við­ur­kenndi dóm­ur­inn bóta­skyldu „vegna tjóns [Eiríks Jóns­sonar] af völdum þess að hann var ekki skip­aður í eitt af 15 emb­ættum dóm­ara við Lands­rétt sem aug­lýst voru laus til umsóknar 10. febr­úar 2017“.  

Í dómunum kemur fram að á grund­velli fyr­ir­liggj­andi gagna sé ekki hægt að slá því föstu að ráð­herra hafi látið fara fram sam­an­burð á umsækj­endum sem full­nægi þeim kröfum sem taldar eru hluti af grund­vall­ar­reglum í stjórn­sýslu­rétti um und­ir­bún­ing stöðu­veit­ingar og mat á hæfni umsækj­enda.

„Í því sam­bandi verður að leggja áherslu á að ákvörðun um skipun í opin­bert emb­ætti verður að byggj­ast á sam­an­burði á umsækj­endum á sam­bæri­legum grund­velli sem leiði í ljós hver er hæf­astur til að gegna starf­inu en ekki bara rétt­læt­ingu á því hvern ráð­herra vill skipa í emb­ættið,“ segir í dómunum. 

Þrátt fyrir að ríkið hafi verið dæmt skaða­bóta­skylt vegna athafna ráð­herra við­ur­kennir Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra ekki að hafa gert nein mis­tök við með­ferð máls­ins.

„Nei, á þeim tíma þegar ég stóð frammi fyrir mál­inu þá get ég ekki fall­ist á að mér hafi verið unnt að haga þessum málum með öðrum hætti,“ sagði hún í Kast­ljós­svið­tali í gær. Þá sagð­ist hún ekki fall­ast á að „þetta ágæta fólk [hefði] orðið fyrir ein­hverjum miska“ og ekki ætla að biðja Jón og Eirík afsök­unar á brot­unum.

Segir manninn ekki eiga rétt á því að fá starfið

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttirþing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Í kvöld­fréttum í gær sagði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að Jón Hösk­ulds­son hefði ekki átt rétt á því sam­kvæmt lögum að vera skip­aður í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt.

„Þarna eru dóm­stólar í fyrsta sinn að dæma skaða­bætur fyrir mann sem fékk ekki starf sem hann á ekki rétt á sam­kvæmt lögum,“ sagði hún.

Sigríður tók í sama streng í Kast­ljós­inu. „Það er nýmæli að hér sé verið að dæma mönnum skaða­bætur fyrir að fá ekki starf sem þeir hafa sóst eftir.“ 

Dóms­mála­ráð­herra hefur ítrekað hafnað því að hafa brotið lög í Lands­rétt­ar­mál­inu þrátt fyrir að dóm­stólar hafi kom­ist að gagn­stæðri nið­ur­stöðu.

Þegar van­traust­s­til­laga gegn Sigríði var til umræðu á Alþingi þann 6. mars síð­ast­lið­inn sagð­ist hún hafa fylgt lögum í einu og öllu þegar hún skip­aði dóm­ara við Lands­rétt í fyrra.

Bæði Hér­aðs­dómur Reykja­víkur og Hæsti­réttur hafa þó kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ráð­herra hafi brotið lög, 10. gr. stjórn­sýslu­laga, þegar hún skip­aði dóm­ara við Lands­rétt. Í þessu fólst að ráð­herra sýndi ekki fram á – með full­nægj­andi rann­sókn og rök­stuðn­ingi í sam­ræmi við þær kröfur sem á henni hvíla sam­kvæmt stjórn­sýslu­lögum – að hún hefði skipað hæf­ustu umsækj­end­urna til starfans. Fyrir vikið hafa umsækj­endum sem gengið var fram­hjá verið dæmdar bætur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár