Rýnt í varnarræðu dómsmálaráðherra

Greining, leið­rétt­ingar og athuga­semdir við ræðu Sigríðar Andersen í umræðum um van­traust á hana á Alþingi þann 6. mars 2018, kl. 17.25.

Rýnt í varnarræðu dómsmálaráðherra
Sigríður Andersen flutti eft­ir­far­andi ræðu á Alþingi í síð­ustu viku. Mynd: Pressphotos.biz

Hér að neðan má lesa ræðu Sigríðar Andersen sem hún hélt á Alþingi þann 6. mars 2018. Athuga­semdir birt­ast þegar smellt er á rauð­merkta text­ann:

Virðu­legur for­seti. Loksins kom van­traust­s­til­lagan sem stjórn­ar­and­staðan hefur boðað mán­uðum saman. Reyndar eru stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn­irnir sem ekki standa að þess­ari van­traust­s­til­lögu fleiri en flutn­ings­menn­irnir. Syst­ur­flokk­arnir Píratar og Sam­fylk­ingin hafa einir látið hafa sig í það að kalla eftir van­trausti á þann ráð­herra sem hér stendur 1 1 Þegar Sigríður Andersen lét þessi orð falla höfðu þegar þing­menn fleiri flokka en Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar lýst stuðn­ingi við van­traust­s­til­lög­una gegn Sigríði Andersen. Þegar atkvæði voru greidd síðar um kvöldið kom í ljós að allir stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn utan eins studdu til­lög­una. Auk þess greiddu tveir þing­menn Vinstri grænna atkvæði með mál­inu og lýstu van­trausti á Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra. , ráð­herra sem fylgdi laga­bók­stafnum í einu og öllu 2 2 Rangt. Bæði Hér­aðs­dómur Reykja­víkur og Hæsti­réttur Íslands hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að dóms­mála­ráð­herra hafi brotið lög við skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara sum­arið 2017. Ráðherra upp­fyllti ekki rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­réttar við und­ir­bún­ing máls­ins og gat þannig ekki sýnt fram á að þeir dóm­arar sem skip­aðir voru væru hæf­ustu umsækj­end­urnir. Hæsti­réttur er æðsti dóm­stóll og lög­skýr­andi lands­ins. Í íslenskri stjórn­skipan ber ráð­herrum og stjórn­völdum að fylgja lögum við allar stjórn­valds­á­kvarð­anir og emb­ætt­is­at­hafnir. Þar hafa dómar og laga­túlk­anir dóm­stóla for­dæm­is­gildi sem ætl­ast er til að stjórn­völd og ráð­herrar fylgi svo réttar­ör­yggi borg­ara sé tryggt. við skipan dóm­ara við hinn nýja dóm­stól.

Laga­á­kvæði sem fjalla um skipan dóm­ara við Lands­rétt í fyrsta sinn eru ekki mörg en þau eru alveg skýr. Hæfn­is­nefnd gerir til­lögur um dóm­ara­efni til ráð­herra. Ráðherra getur vikið frá þeirri til­lögu hafi hann uppi mál­efna­leg sjón­ar­mið 3 3 Ráðherra nægir ekki að „hafa uppi mál­efna­leg sjón­ar­mið“ heldur ber honum að rann­saka og rök­styðja emb­ætt­is­at­hafnir sínar við skipun dóm­ara eftir reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins, meðal ann­ars rann­sókn­ar­regl­unni og meg­in­regl­unni um að skipa beri hæf­asta umsækj­and­ann hverju sinni. Þarna stóð hníf­ur­inn í kúnni hjá Sigríði Andersen og Alþingi þegar skip­aðir voru dóm­arar við Lands­rétt sum­arið 2017. sem standi til þess. Ráðherra leggur svo til­lögur sínar fyrir Alþingi sem ann­að­hvort sam­þykkir eða synjar til­lög­unum.

Alþingi sam­þykkti í júní sl. til­lögur mínar um 15 ein­stak­linga í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt. Eins og menn þekkja var mikið ákall um það í þing­inu að Lands­réttur yrði skip­aður jafnt konum sem körlum. Þetta kom fram í ræðum og skrif­uðum greinum og nefnd­ar­á­litum þing­manna, en einnig í sam­tölum mínum við for­ystu­menn flokk­anna þegar nið­ur­staða dóm­nefndar lá fyrir. Ég mat það svo sjálf að dóm­ara­reynslu hefði ekki verið gefið nægt vægi af hálfu hæfn­is­nefndar og því var til­laga mín frá­brugðin til­lögu dóm­nefndar að því leyti að níu reyndir hér­aðs­dóm­arar bætt­ust við í hóp þeirra sem hæfn­is­nefnd hafði metið sem hæf­asta. Tillaga mín til Alþingis var þannig frá­brugðin til­lögu hæfn­is­nefndar til mín um fjóra ein­stak­linga. Þessir fjórir ein­stak­lingar höfðu ekki aðeins verið metnir hæfir af dóm­nefnd­inni vegna lands­rétt­ar­skip­un­ar­innar, heldur voru þeir einnig metnir hæfir þegar þeir voru skip­aðir sjálfir hér­aðs­dóm­arar 4 4 Samkvæmt meg­in­reglum stjórn­sýslu­réttar og öðrum rétt­ar­reglum er ekki nægi­legt að veit­ing­ar­valds­hafi meti umsækj­endur hæfa eða að þeir hafi ein­hvern tím­ann verið metnir hæfir, heldur þarf hann að sýna fram á hæf­ustu umsækj­end­urnir hafi verið skip­aðir út frá ítar­legri rann­sókn og hlut­lægum sjón­ar­miðum. Eins og Björg Thoraren­sen, pró­fessor í stjórn­skip­un­ar­rétti við Háskóla Íslands, bendir á í nýlegri grein sem birt­ist í Úlfljóti, tíma­riti laga­nema, eru aðstæður sér­stakar við skipun dóm­ara. Þá tekur ráð­herra ákvörðun um starf sem á ekki undir stjórnunar- og eft­ir­lits­heim­ildir hans sjálfs, heldur um stöðu sem til­heyrir dómsvald­inu sem gegnir eft­ir­lits­hlut­verki gagn­vart öðrum þáttum ríkis­valds­ins. Einmitt af þess­ari ástæðu sé brýnt að tryggja sérstak­lega vand­aða skoðun á því hverjir telj­ist hæf­ustu umsækj­end­urnir. endur fyrir löngu. Við þessa breyt­ingu jafn­að­ist hlutur karla og kvenna í Lands­rétti. Mér segir svo hugur að aldrei áður hafi jafn mik­il­væg stofnun verið sett á lagg­irnar hér á landi í lýð­veld­is­sög­unni með jöfnum hlut beggja kynja.

Virðu­legur for­seti. Ég biðst for­láts á því að það hafi gerst á minni vakt og án þess að ég hafi sér­stak­lega vísað til kynja­kvóta eða kynja­sjón­ar­miða við þessa skipan. Þetta gerð­ist ein­fald­lega vegna þess að ég sá engin mál­efna­leg rök fyrir því að telja sitj­andi skip­aða dóm­ara með ára­tuga­dóm­ara­reynslu ekki jafn hæfa og þá 15 sem dóm­nefndin taldi að kæmu bara til greina. 5 5 Rök ráð­herra um aukið vægi dóm­ara­reynslu sam­ræm­ast illa þeirri stað­reynd að í hróker­ingum hennar á dóm­ara­efnum tók hún Eirík Jónsson út af lista dóm­nefndar en lét aðra umsækj­endur sem höfðu minni dóm­ara­reynslu en hann vera.

Í des­em­ber sl. kvað Hæsti­réttur upp úr um að ég hefði ekki rann­sakað málið nægj­an­lega áður en ég gerði til­lögu til Alþingis. Þar með hefði ég farið gegn 10. gr. stjórn­sýslu­laga sem kveður á, eins og hv. þing­menn þekkja, að mál skuli nægj­an­lega upp­lýst áður en ákvörðun er tekin í því. Þetta kall­ast rann­sókn­ar­regla í stjórn­sýslu­rétti. Rann­sókn­ar­regla segir ekki annað en þetta: Nægj­an­lega upp­lýst. Hvergi er neina skýr­ingu að finna á því hvað telst nægj­an­legt. 6 6 Jú, skýr­ingar á því er að finna í dómafor­dæmum Hæsta­réttar og álitum umboðs­manns Alþingis eins og ráð­herra var marg­bent á við með­ferð máls­ins. Eins og Stundin greindi frá þann 22. jan­úar síð­ast­lið­inn var upp­lýst um það af ráðu­neyt­is­starfs­mönnum að ef hún hygð­ist víkja frá hæfn­is­mati dóm­nefndar við skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara með lög­mætum hætti yrði hún að gera sjálf­stæðan sam­an­burð á hæfni þeirra umsækj­enda sem yrði gengið fram­hjá og hæfni hinna sem skip­aðir yrðu í stað­inn. Aðeins með þessu gæti hún upp­fyllt rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga. Ráðherra huns­aði þessar athuga­semdir og var dæmd í Hæsta­rétti á grund­velli sams konar sjón­ar­miða og fram komu frá sér­fræð­ingum hennar í ráðu­neyt­inu og lög­fræð­ingum sem komu fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þegar Lands­rétt­ar­málið var tekið fyrir á Alþingi. Um það hefur skap­ast hefð og venja við til­teknar aðstæður en ekki allar og er þessi regla reyndar mjög reglu­lega við­fangs­efni dóm­stóla.

Skipan 15 dóm­ara í einu lagi er for­dæma­laust og verður trú­lega eins­dæmi í íslenskri rétt­ar­sögu. Við þing­heim vil ég segja: Ég innti af hendi viða­mikla rann­sókn á umsóknum umsækj­enda um emb­ætti við Lands­rétt 7 7 Hæsti­réttur stað­festir í dómi sínum frá 19. des­em­ber 2017 að „gögn máls­ins bera ekki með sér, að fram hafi farið af hálfu ráð­herra eða aðila á hennar vegum sér­stök rann­sókn sam­bæri­leg rann­sókn dóm­nefndar á atriðum, sem vörð­uðu veit­ingu umræddra fjög­urra dóm­ara­emb­ætta við Lands­rétt í und­an­fara þess að ráð­herra ákvað að víkja frá dóm­nefnd­ar­á­lit­inu“. Áður hefur Sigríður afsakað það að hafa ekki innt af hendi viða­mikla rann­sókn með því að vísa til tíma­hraks, en nú er komið annað hljóð í strokk­inn og gert mikið úr því sem hún kallar „viða­mikla rann­sókn“. , umsögn dóm­nefndar, and­mælum umsækj­enda og vægi og stiga­gjöf dóm­nefndar og vinnu­brögðum hennar almennt fyrr og nú.

Ég vó sjón­ar­mið ráð­gjafa minna innan Stjórn­ar­ráðs­ins en einnig utan þess 8 8 Þessi full­yrð­ing, í því sam­hengi sem hér er um að ræða, stang­ast á við svör dóms­mála­ráð­herra til umboðs­manns Alþingis í bréfi hennar frá 17. des­em­ber sem Stundin birti þann 1. febr­úar síð­ast­lið­inn. Í því bréfi kemur fram að hún hafi ekki leitað til neinna sér­fræð­inga utan stjórn­ar­ráðs­ins eftir ráð­gjöf um efn­is­lega til­lögu­gerð til Alþingis eða mat á ein­stökum umsækj­endum. Ann­að­hvort er Sigríður því að gefa Alþingi vill­andi mynd af mála­vöxtum eða þá að hún sagði umboðs­manni Alþingis ósatt. og öll lög og reglur sem málið varð­aði og lög­skýr­ing­ar­gögn og síð­ast en ekki síst sjón­ar­mið alþing­is­manna og for­manns dóm­nefndar.

Ég taldi mig hafa rann­sakað málið nægj­an­lega áður en ég tók ákvörðun um að leggja til við Alþingi til­lögur um aðra umsækj­endur en nefndin. Ég taldi mig hafa rann­sakað málið nægj­an­lega og ég frá­bið mér alger­lega allan mál­flutn­ing hér innan dyra, í þessum sal, um að ég hafi af ásetn­ingi ætlað að valda dóm­stól­unum ein­hverjum skaða, að hafa ætlað að skerða til­trú almenn­ings á rétt­ar­kerf­inu eða dóm­stólum með þessum hætti. Ég frá­bið mér slíkan mál­flutn­ing alger­lega. Þegar menn telja nú dóm Hæsta­réttar frá því í des­em­ber vera til­efni til afsagnar minnar eða van­trausts alls Alþingis á mér er á ferð­inni ein­hver mis­skiln­ingur á þrí­grein­ingu rík­is­valds­ins.

Ráðherra hefur ekki síð­asta orðið um túlkun á laga­reglum þegar hann tekur sínar ákvarð­anir. Þegar um mats­kenndar reglur er að ræða og ágrein­ingur er um túlkun þeirra kemur auð­vitað fyrir að nið­ur­staða stjórn­valds sé borin undir dóm­stóla. Þá eru það dóm­stólar sem hafa loka­orðið. Þetta á ekki síst við um mats­kenndar reglur stjórn­sýslu­rétt­ar­ins og jafn eðli­legt er þá að stundum dæmi dóm­stólar stjórn­valdi; ráð­herra, sveit­ar­fé­lagi eða rík­is­stofnun; í óhag. Dóm­stólar sjálfir eru stundum ósam­mála. Dómum hér­aðs­dóms er snúið við í Hæsta­rétti. Þá hefur okkar helstu fræði­menn og lög­spek­inga greint á um túlkun laga og reglna. Það er ein­fald­lega rétt­ar­ríkið hér sem er að verki og við höfum komið okkur saman um að una nið­ur­stöð­unni.

Þessi til­laga um van­traust sem við ræðum sýn­ist mér til marks um að hátt­virtir flutn­ings­menn uni ekki nið­ur­stöðu dóm­stóla 9 9 Þessi ásökun er athygl­is­verð í ljósi þess að í upp­hafi ræðu sinnar hafnar ráð­herra því að hún hafi brotið lög þrátt fyrir að Hæsti­réttur hafi dæmt hana fyrir lög­brot. Má því frekar færa rök fyrir því að hún uni ekki nið­ur­stöðu dóm­stóla. og vilji fá ein­hvers konar ábót á dóms­nið­ur­stöðu. Menn hafa reynt að kreista þessa ábót einnig út úr störfum hv. stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Menn hafa von­ast til að geta kreist þessa ábót út hjá umboðs­manni Alþingis, án árang­urs. Ég nefni það hér í nýút­komnu bréfi frá umboðs­manni Alþingis þar sem hann boðar frum­kvæð­is­skoðun á störfum hæfn­is­nefndar. Þá vil ég líka nefna að nefnd sem falið er að meta hæfni dóm­ara­efna hefur sjálf kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, skipti um skoðun alger­lega frá því í sumar og kynnti það með sinni nýj­ustu umsögn að það væri auð­vitað ekki eðli­legt að hlut­lægt mat væri lagt á alla umsækj­endur, hægt væri að kom­ast að nið­ur­stöðu með þeim hætti.

Virðu­legur for­seti. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Þessi van­traust­s­til­laga sýnir nefni­lega að valdið til að skipa dóm­ara á að vera í höndum ráð­herra en ekki hjá and­lits­lausri stjórn­sýslu­nefnd. 10 10 Valdið til að skipa dóm­ara er nú þegar í höndum ráð­herra, en dóm­stólar hafa hins vegar dæmt ráð­herra fyrir að hafa mis­beitt þessu valdi. Á Íslandi eftir hrun hefur, líkt og í nágranna­löndum verið reynt að tryggja hæfi­legt vægi milli hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds og dómsvalds við skipun dómara, einkum með því að setja reglur um sjálfstæðar og óháðar dómnefndir á borð við þá sem starfar hér á landi. End­an­legt vald liggur hins vegar hjá ráð­herr­anum, en ráð­herra er bund­inn af lögum, svo sem rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­réttar. Hæfn­is­nefndir verða nefni­lega aldrei dregnar til ábyrgðar. Ráðherra er hægt að draga til ábyrgðar, eins og flutn­ings­menn hér reyna nú að gera með þessum hætti.

Ég vil biðja þing­heim allan um að virða mér það til vor­kunnar að ég mun ekki greiða atkvæði með þess­ari til­lögu en tek undir það sem fram kom hjá einum hv. þing­manni stjórn­ar­and­stöð­unnar, að það verður í minnum haft hvernig menn greiða hér atkvæði á eftir.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár