Sonur hins látna segir fjölskylduna sæta persónuárásum í kjölfar manndrápsins á Gýgjarhóli

Ingi Rafn Ragn­ars­son, sonur hins látna, segir að það hafi reynst fjöl­skyld­unni erfitt að sitja undir róg­burði um föður sinn í sveit­inni. Börn hans hafi sjálf mátt þola sinn skerf af per­són­u­árásum í kjöl­far rétt­ar­hald­anna.

Sonur hins látna segir fjölskylduna sæta persónuárásum í kjölfar manndrápsins á Gýgjarhóli

„Við systk­inin höfum ekki enn fengið frið til þess að syrgja hann og ná áttum,“ segir Ingi Rafn Ragn­ars­son,27 ára gam­all  sonur Ragnar Lýðs­sonar sem lést á Gýgj­ar­hóli  II um pásk­ana eftir árás bróður síns. Dómur í mál­inu féll fyrr í dag þar sem bróðir Ragnars, Valur Lýðsson, var dæmdur í 7 ára fang­elsi fyrir lík­ams­árás sem leiddi Ragnar til dauða. 

Börnum Ragnars var tals­vert brugðið við dóm­inn, sem var mun væg­ari en þau áttu von á. „Miðað við alla ráð­gjöf sem við höfðum fengið frá fólki sem þekkir til svona mála þá kom dóm­ur­inn sem var kveð­inn upp í dag mjög á óvart. Refs­ingin er tölu­vert lægri en við höfðum ráð­gert,“ segir Ingi Rafn. 

Ingi Rafn segir hins vegar að allt frá því að málið kom upp hafi verið uppi stöð­ugur róg­burður um föður hans og fjöl­skyldu. „Ástæðan fyrir því að það er mik­il­vægt fyrir okkur að þetta komi fram er að það er ekki flugu­fótur fyrir þessum gróu­sögum sem ganga út á það að bæta almenn­ings­á­litið á föð­ur­bróður mínum.“

Börnin sökuð um „skítlega hegðun“

Í sex mán­uði hafi þau systk­inin, börn hins látna, setið undir róg­burði um föður sinn án þess að svara. Nú geti þau ekki orða bund­ist, þar sem þau séu sjálf orðin skot­mark.

Ástæðuna rekja þau meðal ann­ars til þess að systk­inin fóru fram á að þing­hald yrði opið. „Þá hófst her­ferðin gegn okkur af fullum þunga,“ segir Ingi Rafn og útskýrir hvað hann á við. „Það átti að hlífa okkur við því að sjá pabba ham­flettan á myndum frá krufn­ingu. Við vildum hafa þing­hald opið til þess að fjöl­miðlar yrðu á staðnum og myndu gera mál­inu þokka­leg skil. Vegna þess að í rétt­ar­höldum komu fram sönn­un­ar­gögn sem stang­ast á við það sem þetta fólk hefur verið að segja um föður okkar frá því um síð­ustu páska.

Til að kæfa þessar upp­lýs­ingar var í kjöl­farið ráð­ist á okkur börnin með gróu­sögum um að við séum búin að sýna hinum ákærða skít­lega hegðun. Það er allt gert til að láta hann líta skárr út,“ segir Ingi Rafn í sam­tali við Stundina.

Afneitun aðstandenda

„Allt frá því um pásk­ana hefur fólk okkur nákomið haldið því fram að það hafi verið pabbi sem hafi sturl­ast. Hinn ákærði hefur reynt að ljúga því til fyrir dómi að hann hafi verið hættur að drekka frá ára­mótum en meira að segja bróðir hans sem var þarna þetta kvöld kann­ast ekki við það. Faðir minn átti að hafa pínt ofan í hann áfengi og séð um að hella í glösin. Það er fjar­stæða fyrir alla sem þekkja til.

Hvað varðar þessar mein­ingar um að það hafi verið faðir minn sem varð brjál­aður þá er aug­ljóst af ummerkjum á vett­vangi og legu fórn­ar­lambs­ins að hann var á förum þegar árásin átti sér stað. Þess vegna hefur ákærði verið með hverja lyga­sög­una á fætur annarri til að sverta föður minn og þær eru orðnar svo margar að þær eru farnar að stang­ast á við hvor aðra.“

Fram til þessa hafi börnin ekki svarað slíkum róg­burði, sem Ingi Rafn rekur meðal ann­ars til æsku­vinar föður síns og þeirra nán­ustu fjöl­skyldu. Hann telur að þeir sem komi þessum sögum af stað séu lík­lega að glíma við afneitun og eigi erfitt með að trúa því að hinn dæmdi hafi gengið fram með þessum hætti. „Það er alveg sama hvað hefur verið skrifað í fjöl­miðlum um þetta mál virð­ist það ekki breyta neinu þó að það stang­ist beint á við sögu­sagnir þessa fólks. Þetta fólk virð­ist ekki geta trúað því að Valur hafi framið svona verknað. Aðrir eru í hreinni afneitun.“

Munu ekki gleyma þessu 

Fyrir vikið hafi fáir tekið afstöðu með börn­unum. „Það vill gjarna verða þannig að þegar það er ákafur mál­flutn­ingur öðru megin en þögn hinum megin þá halda aðrir að sér höndum og blandar sér ekki inn í þennan leðjuslag. Þeir sem vilja okkur ekki illt virð­ast ætla sér að bíða þar til allt er gengið yfir. Aðeins minni­hluti fólks­ins í sveit­inni tekur til varna fyrir okkur,“ segir Ingi Rafn.

Hann segir að ein ástæða þess að fjöl­skyldan hafi ekki svarað fyrir föður sinn fyrr sé vegna þess að þau vildu ekki hafa áhrif á dóm­inn. Þess í stað hafi þau viljað bíða þar til dómur væri fall­inn. Nú sé dómur fall­inn og þá geti þau sagt frá því hvernig þetta hafi verið. 

„Þó að það hafi verið erfitt þá höfum við grjót­haldið kjafti og ekki gert neitt und­an­farna sex mán­uði, að þessu und­an­skildu; Við sögðum frá því fyrir dómi að þetta fólk gæti ekki búist við því að við gleymum því hvernig búið er að fara með mann­orð föður okkar í þess­ari her­ferð, ekki bara fyrir dómi heldur líka í sam­skiptum við fólk og innan sveit­ar­innar.“

Hér að neðan má lesa pistil sem Ingi Rafn skrif­aði um þetta efni. 

Í ljósi fyrsta dóms yfir Vali Lýðssyni, ítrekaðra persónuárása og mannorðsmorðs

Bréf frá Inga Rafni Ragnarssyni, syni Ragnars Lýðssonar, sem myrtur var á Gýgjarhóli II um páskana. 

Þrátt fyrir að hálft ár sé að verða liðið frá við jörð­uðum föður okkar höfum við systk­inin ekki enn fengið frið til þess að syrgja hann og ná áttum. Það skýrist að hluta til vegna yfir­stand­andi dóms­máls en að stærstum hluta er það vegna skipu­lagðrar áróð­urs­her­ferðar, æru­meið­inga og lyga í garð föður míns, sem hófst stuttu fyrir útför.

„Fólk með snefil af heið­ar­leika og sam­kennd hefði senni­lega beðist afsök­unar, séð að sér eða dregið sig í hlé“

Í svona borð­liggj­andi morð­máli, þar sem öll sönn­un­ar­gögn bein­ast að öðrum aðil­anum og sýna sífellt betur hversu til­hæfu­laus, gróf og óvænt árásin á föður okkar var, þá teldi fólk að það yrði frekar fámennur hópur sem kæmi saman til nauð­varnar og hæfi per­són­u­árásir í garð fórn­ar­lambs­ins. Því er ekki fyrir að fara í til­felli okkar systk­in­anna. Stór hópur fólks úr Bisk­ups­tungum, okkar heima­sveit, nokkrir gamlir vinir föður míns og megnið af föð­ur­ætt­ingjum mínum (að frá­töldum nokkrum sem eru telj­andi á fingrum ann­arrar handar) hafa stundað grófar per­són­u­árásir á æru föður míns. Jafn­framt hafa þau algjör­lega neitað að með­taka sönn­un­ar­gögnin, sem sýna hvert á fætur öðru hvernig atburða­rásin var þetta örlaga­ríka kvöld. Sumir ætt­ingjar okkar hafa látið sér nægja að týna til ýmsar ástæður fyrir því hvernig þetta væri Ragnari föður mínum að kenna og alls ekki við Val að sakast. Aðrir gengið tölu­vert lengra.

Hver sagan á fætur annarri hefur verið skipu­lega búin til og komið af stað til þess að sverta æru föður míns og stað­reyndir og sann­leiks­gildi skipta þar engu og heldur ekki þau áhrif sem þetta hefur á okkur systk­inin. Fólk með snefil af heið­ar­leika og sam­kennd hefði senni­lega beðist afsök­unar, séð að sér eða dregið sig í hlé þegar mál­stað­ur­inn fór versn­andi og fjöl­miðlar upp­lýstu almenn­ing um stað­reyndir máls­ins. Því er ekki heldur fyrir að fara í okkar til­viki því í stað þess að leyfa okkur systkin­unum að þjást í friði þá er ákveðið að hefja per­sónu­legar árásir á okkur.

Þrátt fyrir að margir hafi tekið að beita sér af fullum þunga við að sverta mann­orð föður míns þá er rétt að nefna þá ein­stak­linga sem hófu árás­ina á okkur systk­inin.

„Það vill þannig til að gamlir fjöl­skyldu­vinir okkar, hafa farið fram­ar­lega í mann­orðs­morði föður okkar“

Það vill þannig til að gamlir fjöl­skyldu­vinir okkar, hafa farið fram­ar­lega í mann­orðs­morði föður okkar. Þar sem um stað­reynd er að ræða höfum við systk­inin neitað að svo mikið sem heilsa þeim á förnum vegi und­an­farna mán­uði. Einn þeirra hefur þar að auki mætt ásamt fleirum í dóms­sal. Þar hefur hann stutt Val Lýðsson í þeirri veg­ferð sinni að þræta fyrir að hafa beitt föður minn rang­læti og hvað þá meira með sína sjálf­sköp­uðu áverka. Einu sam­skiptin sem við höfum átt við þennan mann und­an­farna mán­uði voru ein­föld orða­skipti í dóms­sal eftir seinni dag rétt­ar­halda, þar sem þeim ein­stak­lingum sem mættu til stuðn­ings Vals var bent á að stuðn­ingur við morð­ingja föður okkar, sem og lygar og æru­meið­ingar í garð föður míns, myndu aldrei gleym­ast.

Það kom okkur systkin­unum því tölu­vert á óvart þegar við fengum veður af því að ákveðin hjón í sveit­inni hafi lagst enn lægra (þrátt fyrir að við höfum ekki talið það mögu­legt fram að þessu) og hafið per­sónu­legar árásir á okkur systk­inin. Þrátt fyrir sam­skipta­leysi í fleiri mán­uði milli okkar og þeirra þá hafa þau kosið að útlista fyrir alþjóð að sökum hót­ana frá okkur systk­inum þá séu þau orðin svo hrædd við okkur að nú íhugi þau að koma fyrir mynda­véla­kerfi á bænum, ásamt fleiri vörnum.

Einu sam­skiptin sem við höfum átt við Val hafa verið fyrir utan rétta­sal­inn þarsem hann gerði til­raun til þess að taka í hend­urnar á okkur systkin­unum og mökum okkar. Fyrr um dag­inn höfðum við hlustað á hann halda langa ræðu, upp­fulla af lygum niður í minnstu smá­at­riði varð­andi drykkju þeirra bræðra og annað sem að miklu leyti gekk út á hreinar lygar og ein­ungis gert til að sverta per­sónu föður míns. Eftir að hafa hlustað á lyga­boð­skap­inn og vand­aða sam­ræm­ingu á sjálf­sköp­uðum áverkum Vals og minni­háttar lag­fær­ingum á vett­vangi kom ekki til greina að taka í hend­ina á honum. Þess í stað spurðum við systk­inin hann hvort hann gerði sér grein fyrir því hvað hann væri búinn að gera, hann væri búinn að drepa pabba okkar og afa barna­barn­anna. Svarið og við­brögðin rím­uðu algjör­lega við það sem á undan hafði gengið í rétt­ar­höld­unum. Engin svip­brigði, það er eins og hann virt­ist ekki tengj­ast mál­inu and­lega og hann svarar okkur á þann veg að best væri að öll okkar sam­skipti færu í gegn um lög­fræð­inga hér eftir.

„Þrátt fyrir þetta hafa aðstand­endur okkar, pabba og Vals tekið að sér að bera það út hversu ofboðs­lega reið, hat­urs­full og vond við hefðum verið í sam­skiptum við Val“

Þetta eru okkar einu sam­skipti við Val síðan hann tók að sér að binda enda á til­vist föður okkar og eins af okkar besta vinar. Þrátt fyrir þetta hafa aðstand­endur okkar, pabba og Vals tekið að sér að bera það út hversu ofboðs­lega reið, hat­urs­full og vond við hefðum verið í sam­skiptum við Val. Til þess að flugu­fótur væri fyrir þessum ásök­unum þá hefðu nú að lág­marki þurft að vera ein­hver sam­skipti við Val. Ef eitt­hvað væri til í þessum spuna þá þykir þessu fólki samt óeðli­legt að við séum vond við mann­inn sem myrti föður okkar og gerir allt sem hann getur til að svið­setja slags­mál og spinna hverja lyga­sög­una á fætur annarri til að sverta föður minn. Sumt af þessu fólki sem hefur haldið því fram að við höfum sýnt skít­legt eðli í garð Vals hefur gengið alla leið og stutt hann fyrir dómi og hreytt í okkur fúk­yrðum eftir hent­ug­leika. Þeim þykir greini­lega rétt tíma­setn­ing til að ráð­ast á börn fórna­lambs­ins þegar þau sitja undir mynda­sýn­ingu þar sem faðir þeirra er ham­flettur og dokað lengi við hverja mynd til að útskýra hrotta­fengið ofbeldið og afleið­ingar þess.

Þetta er langt frá því að vera eina til­hæfu­lausa per­són­u­árásin frá þessum var­mennum gagn­vart okkur systkin­unum.

Því miður eru þau alls ekki einu ein­stak­ling­arnir sem hafa sýnt okkur systkin­unum svona skít­lega hegðun og komið slíkum sögu­sögnum af stað und­an­farna mán­uði. 

Hafi menn áhuga á að ræða þetta við mig þá er öllum það vel­komið, það er ekki laust við að manni finn­ist komið nóg af því að sitja undir enda­lausum per­són­u­árásum og róg­burði.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár