Þingmenn og ráðherra drýgja tekjurnar með því leigja út íbúðir á Airbnb

Íbúðir í eigu þriggja þing­manna og eins ráð­herra eru á lista sýslu­manns yfir skráða heimagist­ingu. Airbnb hefur þrýst upp verð­lag­inu á leigu­mark­aði og kynt undir hús­næð­is­vand­anum að mati grein­ing­ar­að­ila.

Þingmenn og ráðherra drýgja tekjurnar með því leigja út íbúðir á Airbnb

Þrír þing­menn og maki eins ráð­herra eru skráðir sem ábyrgð­ar­menn íbúða sem bjóða upp á heimagist­ingu sam­kvæmt gögnum sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar af leigja þrír út íbúðir gegnum Airbnb.

Um er að ræða Ágúst Ólaf Ágústs­son, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, Helga Hrafn Gunn­ars­son, þing­mann Pírata, og Þorstein Víglunds­son, þing­mann Við­reisnar. Þá er Ágústa Þóra Johnson, eig­in­kona Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra, skráð fyrir íbúð sem er nýtt með þessum hætti.

Ítrekað hefur verið bent á að útleiga Airbnb-íbúða þrýsti upp verð­lagi og eigi þannig átt þátt í að kynda undir hús­næð­is­vand­anum í Reykja­vík. 

Íbúðir Ágústs, Helga og Guðlaugs eru að finna á vef Airbnb. Þó hefur eng­inn þeirra skráð leigu­starf­sem­ina í hags­muna­skrá þing­manna. En þar ber að skrá starf­semi sem unnin er sam­hliða starfi alþing­is­manns og er tekju­mynd­andi fyrir hann eða félag sem hann á sjálfur eða er með­eig­andi í.

Mán­að­ar­greiðslur þing­manna nema 1.101 þús­und krónum á mán­uði sam­kvæmt ákvörðun Kjara­ráðs frá 29. októ­ber 2016, sem er 65 pró­sentum hærra en með­al­laun Íslend­inga. Þá eru laun ráð­herra um 1.826 þús­und krónur á mán­uði. Þingmenn og ráð­herrar drýgi tekj­urnar með leigu á Airbnb, en nóttin hjá þeim kostar á bil­inu 13 til 42 þús­und krónur.

Sautján þúsund krónur nóttin hjá ráðherranum

Íbúð Guðlaugs Þórs.

Á vef Airbnb er boðin til leigu íbúð í Folda­hverf­inu í Graf­ar­vogi þar sem nóttin kostar rúmar sautján þús­und krónur. Gest­gjaf­inn er stjúp­dóttir Guðlaugs Þórs, Anna Ýr, en sam­kvæmt fast­eigna­skrá er íbúðin í eigu Guðlaugs og Ágústu Þóru. 
Íbúðin virð­ist hafa verið í leigu síðan í maí og er hún að mestu ekki laus til útleigu fyrr en í októ­ber.

Guð­laugur hefur lýst yfir áhyggjum af hús­næð­is­vanda Íslend­inga. Í grein sem Guð­laugur skrif­aði um hús­næð­is­mál ungs fólks árið 2016 sagði hann að til þess að ráða úr hús­næð­is­vanda ungs fólks þyrfti opin­ber kostn­aður að lækka, lóða­fram­boð yrði að auka og stöð­ug­leiki þyrfti að ríkja á hús­næð­is­mark­aðnum. Þá gagn­rýndi hann fjár­fram­lög hins opin­bera til Íbúða­lána­sjóðs og sagði sjóð­inn geta náð mark­miðum sínum „fyrir brot af þeirri upp­hæð sem kostar að halda honum á lífi“.

„Ég mun berj­ast fyrir því eins mikið og ég get og hef gert það frá því að ég hóf afskipti af stjórn­málum að við reynum hér að bæta umhverfið bæði fyrir þá sem kaupa hús­næði og þá sem leigja,“ sagði Guð­laugur jafn­framt í umræðu um hús­næð­is­vand­ann á Alþingi árið 2015.

Airbnb þrýstir upp leiguverði

Í rann­sókn­ar­rit­gerð Seðla­banka Íslands frá því febr­úar kemur fram að 15 pró­sent af allri raun­verðs­hækkun íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu milli 2014 og 2017 megi rekja til fjölg­unar Airbnb-íbúða. Jafn­gildi það um tveggja pró­senta hækk­unar íbúða­verðs á hverju ári á þessu tíma­bili.

Hagdeild Íbúða­lán­sjóðs hefur kom­ist að svip­aðri nið­ur­stöðu og metið áhrif Airbnb þannig að með­al­fer­metra­verð í kaup­samn­ingum hér á landi árin 2015 til 2017 hafi hækkað um fimm til níu pró­sentu­stig.

Þá styðja nýlegar erlendar rann­sóknir þá til­gátu að fylgni sé á mili Airbnb-útleigu og verð­mynd­unar á fast­eigna­mark­aði og að útleiga á Airbnb minnki fram­boð hús­næðis á almennum leigu­mark­aði. 

Lúxushús Ágústs Ólafs

Lúxushús Ágústs Ólafs.

„Lúxushús með bar, eld­stæði og heitum potti.“ Þannig hljóðar lýs­ingin á húsi Ágústs Ólafs Ágústs­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, á vef Airbnb. Ágúst hefur í hið minnsta eitt og hálft ár haft hús­næði sitt í Gerðunum í Reykja­vík til leigu á vef Airbnb.

Húsið er 270 fer­metrar útbúið fata­her­bergi, fjórum svefn­her­bergjum,þremur bað­her­bergjum, „leyni bar“ og heitum potti. Þá er húsið ekki laust til útleigu fyrr en síð­ustu vik­una í ágúst.

Skömmu fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar í fyrra lýsti Ágúst yfir áhyggjum á hús­næð­is­vanda ungs fólks. 

„Það er verk að vinna í þessu sam­fé­lagi, það sem ég hef sér­stakar áhyggjur af er staða ungs fólks. Við sjáum að unga kyn­slóðin í dag er sú fyrsta í sögu Íslands sem hefur verri tæki­færi en kyn­slóðin fyrir ofan. Hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 90 pró­sent á sjö árum, við erum búin að ganga allt of langt í skerð­ingu, fjórða hver fjöl­skylda er dottin úr barna­bóta­kerf­inu, helm­ing­ur­inn er dottin úr vaxta­bóta­kerf­inu. Þetta eru tól sem stjórn­völd hafa til að mæta ungu fólki, fjöl­skyldu­fólki, og við höfum ekki verið að nýta þau,“ sagði Ágúst í þætt­inum Bítið á Bylgj­unni.

Vagga kattarunnandans

Íbúð Helga Hrafns.

Hjónin Helgi Hrafn Gunn­ars­son og Inga Auðbjörg Straum­land bjóða upp á íbúð á vef Airbnb sem kölluð er vagga katt­arunn­and­ans. Íbúðin er stað­sett í Túnunum í Reykja­vík og kostar nóttin um 13 þús­und krónur.

Hjónin leigja út íbúð­ina í einn mánuð á meðan þau dvelja í útlöndum. „Við erum bara að nýta hús­næðið á meðan við verðum í útlöndum, enda höfum við enga ástæðu til að hafa íbúð­ina tóma á meðan. Þvert á móti reyndar, okkur vant­aði pössun fyrir kett­ina okkar tvo, og Airbnb býður upp á að finna leigj­endur sem geta séð um gælu­dýr,“ segir Helgi Hrafn.

Á vef Airbnb er Inga skrá­sett sem gest­gjaf­inn en sam­kvæmt fast­eigna­skrá eru þau bæði eig­endur húss­ins. Þá er Helgi skrá­settur fyrir leyf­inu fyrir heimagist­ingu á vef sýslu­manns.  Íbúðinni fylgja tveir kettir, Arya og Tyrion og er hún sögð full­komin fyrir fjöl­skyldur sem elska ketti. Íbúðin er ekki laus til útleigu nema fáeina daga í ágúst og sept­em­ber.

Fyrrverandi félagsmálaráðherra kominn með heimagistingarleyfi

Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi félags­mála­ráð­herra og núver­andi þing­maður Við­reisnar, er á meðal þeirra 1448 ein­stak­linga sem eru með leyfi sýslu­manns fyrir heimagist­ingu.

Leyfi Þor­steins er fyrir heim­ili hans í Eski­holti í Garðabæ en um er að ræða um 300 fer­metra hús­næði. Íbúðina er þó ekki að finna til útleigu á vef Airbnb.

Þor­steinn var harð­orður í garð Airbnb á meðan sat sem félags­mála­ráð­herra. Sagði hann til að mynda að reisa þyrfti skorður við skamm­tíma­leigu á hús­næð­is­mark­aði. „Það er ekk­ert sjálf­sagt að slík starf­semi spretti upp algjör­lega stjórn­laust og án aðkomu sveit­ar­fé­lag­anna sem fara með skipu­lags­valdið. Ég held að sveit­ar­fé­lögin ættu að horfa þarna betur til þess hvernig megi mögu­lega reisa skorður við frek­ari vexti í þess­ari starf­semi meðan hús­næð­is­skort­ur­inn er svona mik­ill,“ sagði Þor­steinn í sam­tali við RÚV

Þá sagði Þor­steinn í þætti Kjarnans á Hring­braut í fyrra að hægt væri að skoða tak­mark­anir á Airbnb-íbúðum í sam­ræmi við tak­mark­anir og stýr­ingu sveit­ar­fé­laga á því hvar opn­aðir væru veit­inga­staðir, kaffi­hús og barir.

Þor­steinn gerði málið að umtals­efni sínu að nýju á Alþingi skömmu fyrir síð­ustu jól þar sem hann tal­aði um stjórn­lausan vöxt á Airbnb-íbúðum. „Við höfum séð í upp­gangi ferða­þjón­ust­unnar að þar hefur verið að mörgu leyti stjórn­laus vöxtur á svoköll­uðum Airbnb leigu­í­búðum sem birt­ist meðal ann­ars í því að íbúum í mið­borg Reykja­víkur er að fækka og þar af leið­andi til­heyr­andi skortur á hús­næði sem þessu fylgir. Þarna er alveg ljóst að stjórn­völd verða með ein­hverjum hætti að grípa inn í og stýra líkt og er með aðra leyf­is­veit­ingu til atvinnu­starf­semi. Þetta gengur auð­vitað ekki. Hér eru fleiri nágrannar Reykja­víkur farnir að horfa til sömu þró­unar að útleiga til ferða­manna sé raun­veru­lega að ryðja íbúum út úr heilu hverf­unum í Reykja­vík og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu almennt,“ sagði Þor­steinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár