Óásættanlegt að ferðaþjónusta fatlaðra skerðist vegna landsleiksins

Ísland mætir Nígeríu kl. 15 og lokar fjölda fyr­ir­tækja og stof­an­ana fyrr í dag sökum þessa. Akst­urs­þjón­usta fatl­aðra mun raskast tölu­vert.

Óásættanlegt að ferðaþjónusta fatlaðra skerðist vegna landsleiksins
Ferða­þjón­usta fatl­aðra skerð­ist vegna land­leiks Mynd: Shutterstock

Notendum akst­ur­þjón­ustu fatl­aðra var til­kynnt í gær að þjón­ustan myndi skerð­ast tölu­vert vegna lands­leiks­ins í dag, þegar Ísland mætir Nígeru. Verk­takar sem sjá um akst­urs­þjón­ust­una fyrir Strætó bs. munu flestir taka sér frí meðan á leiknum stendur og munu því fáir bílar vera á ferð­inni.

„Mér finnst þetta ekki ásætt­an­legt“

Notendur þjón­ust­unnar eru hvattir til þess að flýta heim­ferð fyrir leik­inn, sér­stak­lega þeir sem þurfi meiri þjón­ustu eða hafi lítið úthald, að því er fram kemur í tölvu­pósti frá Ás Styrkt­ar­fé­lagi, sem veitir um 200 manns þjón­ustu. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Erlendi Pálssyni, sviðs­stjóra Strætó, munu þeir bílar sem á ferð­inni verða koma öllum heim, en heim­ferðin gæti dreg­ist veru­lega á lang­inn. 

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, segir þetta ekki í lagi. „Mér finnst þetta ekki ásætt­an­legt með ferða­þjón­ustu fatl­aðra. Þetta eru ekki ein­hverjar skyndi­á­kvarð­anir hjá fólki þegar það nýtir sér ferða­þjón­ust­una, það þarf yfir­leitt að und­ir­búa sig með fyr­ir­vara. Þannig að mér finnst þetta aldrei í lagi”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár