Bróðir Hauks handtekinn fyrir að flagga tyrkneska fánanum á Stjórnarráðshúsinu

Aðstand­endur Hauks Hilm­ars­sonar hafa gagn­rýnt rík­is­stjórn Íslands fyrir aðgerða­leysi og með­virkni gagn­vart Tyrk­lands­stjórn. „Færður á lög­reglu­stöð og bíður nú yfir­heyrslu,“ segir lög­reglan.

Bróðir Hauks handtekinn fyrir að flagga tyrkneska fánanum á Stjórnarráðshúsinu

Fáni Tyrk­lands var dreg­inn að húni á Stjórn­ar­ráðs­bygg­ing­unni á tólfta tím­anum í dag. Að verki var Darri Hilm­ars­son, bróðir Hauks Hilm­ars­sonar sem er saknað eftir að Tyrkir réð­ust inn í Afrin-hérað í Sýrlandi fyrr á þessu ári. Hafði Haukur tekið þátt í bar­áttu gegn Íslamska rík­inu.

Íslensk yfir­völd hafa verið gagn­rýnd fyrir lin­kind og með­virkni gagn­vart Tyrk­lands­stjórn, en Tyrk­lands er banda­lags­ríki Íslands innan NATO auk þess sem Rétt­lætis- og fram­fara­flokkur Recep Tayyip Erdoğan Tyrk­lands­for­seta er syst­ur­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Evr­ópu­sam­tökum íhalds- og umbóta­sinna.

Fjöldi þjóð­þekktra Íslend­inga sendi Katríni Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra opið bréf þann 23. apríl síð­ast­lið­inn, kall­aði eftir metn­að­ar­fyllri aðgerðum og gerði athuga­semdir við að svo virt­ist sem rann­sókn utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á hvarfi Hauks hefði verið fram­kvæmd „með sem minnstri fyr­ir­höfn og með það fyrir augum að styggja ekki tyrk­nesk yfir­völd – þau sömu og talin eru hafa sært, hand­samað eða jafn­vel myrt Hauk“.

„Að sögn íslenskra stjórn­valda hafa Tyrkir neitað því að þeir séu með líkið. Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur synjað beiðni okkar um að spyrja fjöl­miðl­ana út í heim­il­i­dir fyrir þessum fréttum, þau treysta bara tyrk­neskum stjórn­völdum,“ skrif­aði Eva Hauks­dóttir, móðir Hauks, nýlega. „Bæði Katrín Jak­obs­dóttir og Guð­laugur Þór hafa hundsað ábend­ingar okkar um að senni­lega hafi Tyrkir van­rækt þá skyldu sína að hirða lík og lík­ams­leifar af svæð­inu og um sví­virði­lega með­ferð Tyrkja á líkum and­stæð­inga sinna.“ 

„Haukur Hilm­ars­son týnd­ist í árás Tyrk­lands­hers á sýr­lenska Kúr­distan. Íslenska ríkið, undir veiklu­legri leið­sögn Katrínar Jak­obs­dóttur, hefur ekki viljað styggja Tyrki með því að spyrj­ast um of um hvað þeir gerðu við hann,“ skrifar Benjamín Julian, vinur Hauks á Facebook. „Darri Hilm­ars­son, bróðir Hauks, klifraði af því til­efni áðan upp á þak stjórn­ar­ráðs­ins og dró fána Tyrk­lands að húni – enda stjórn­ar­ráðið greini­lega ekki meira full­valda en svo að það buktar sig fyrir valda­trylltum alræð­is­sinnum. Sér­sveitin tók Darra niður af þak­inu, en ekki fyrr en hún hafði dansað kringum hann til að skipta aftur yfir í íslenskan fána, enda skipta manns­líf þess­arar fjöl­skyldu yfir­völd minna máli en til­gerð­ar­sjálf­ræði og tákna­dýrkun.“

Haukur Hilm­ars­son er einna frægastur fyrir póli­tískan gjörn­ing sem hann fram­kvæmdi í kjöl­far banka­hruns­ins 2008, þar sem hann flagg­aði Bón­us­fána á þing­hús­inu til að vekja athygli á sam­krulli stjórn­mála og við­skipta­lífs. Nú, tíu árum síðar, lagði bróðir Hauks leið sína upp á Stjórn­ar­ráðs­húsið og dró tyrk­neska fán­ann að húni til að mót­mæla því sem aðstand­endur Hauks upp­lifa sem með­virkni íslenskra stjórn­valda gagn­vart Tyrk­lands­stjórn.

Lög­reglan var fljót á vett­vang, fór upp á þakið og tók Darra höndum. „Maðurinn, sem var hand­tek­inn mót­þróa­laust, var færður á lög­reglu­stöð og bíður nú yfir­heyrslu,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá lög­regl­unni um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár