Dómsmálaráðherra hitti Jordan Peterson og talaði við hann um mannlegt eðli

„Kurteis og skarpur maður,“ segir Sigríður Á. Andersen sem mælti sér mót við sál­fræð­ing­inn ásamt Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, for­manni utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis.

Dómsmálaráðherra hitti Jordan Peterson og talaði við hann um mannlegt eðli

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, for­maður utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis, mæltu sér mót við kanadíska sál­fræð­ing­inn Jordan Peterson um helg­ina og ræddu við hann um mann­legt eðli. Þetta kemur fram á Facebook-síðu ráð­herra sem birtir mynd af þeim ásamt Jordan og segir að hann sé „nokk­urs konar rokk­stjarna í hugum áhuga­manna um þjóð­mál“. 

Jordan Peterson vakti mikla athygli árið 2016 þegar hann gagn­rýndi harð­lega laga­frum­varp í Kanada sem sner­ist um að tryggja trans- og inter­sex fólki vernd gegn hat­urs­orð­ræðu og mis­munun. Setti Jordan Peterson laga­breyt­ing­arnar í sam­hengi við kröfur í háskólum um notkun kyn­hlut­lausra per­sónu­for­nafna og taldi að vegna hinna nýju laga yrði hægt að dæma sig í fang­elsi fyrir að neita að virða óskir nem­enda og starfs­fólks um hvernig talað væri til þeirra sem skil­greina sig hvorki sem karl­kyns né kven­kyns. Bendlaði hann rétt­inda­bar­áttu trans­fólks við fjöldamorð komm­ún­ista og sagði báða hópa drifna áfram af sams konar hug­mynda­fræði.

Jordan Peterson hefur slegið í gegn á Youtube og í byrjun árs­ins gaf hann út bók­ina 12 Rules for Life: An Antidote to Chaos sem hefur selst í millj­ónum ein­taka um allan heim. Í mynd­böndum sínum og skrifum blandar Jordan hug­hreystandi sjálfs­hjálp­ar­boð­skap, hvatn­ingu til fólks um að hysja upp um sig bux­urnar og taka ábyrgð á eigin lífi, saman við íhalds­samar stjórn­mála- og félags­fræði­hug­myndir.

Jordan gagn­rýnir það sem hann kallar „póli­tíska rétt­hugsun“ og „póst­módernískan nýmarx­isma“ sem hann telur alls­ráð­andi í Banda­ríkj­unum og Kanada. Hann telur að karl­mennskan og karl­mennsku­hug­sjónin sé á und­an­haldi í hinum vest­ræna heimi og hefur haldið því fram að það sé „hneyksl­an­leg kenn­ing“ að konur hafi verið kúg­aðar í gegnum ald­irnar. Þá telur hann hug­mynd­ina um for­rétt­indi hvíta manns­ins vera „marxíska lygi“. Jordan hefur verið sak­aður um að tala inn í orð­ræðu hægriöfga­manna og félags­legra darwínista og að not­ast við fasísk minni, en sál­fræð­ing­ur­inn og aðdá­endur hans hafna því alfarið að hann aðhyllist öfga­stefnu af neinu tagi. Hefur Jordan Peterson ítrekað kvartað yfir því að fólk mis­skilji skila­boð sín auk þess sem fjöl­miðla­fólk taki orð sín úr sam­hengi.

„Ég þekki marga skemmti­lega sál­fræð­inga sem hafa oft vakið áhuga minn á alls kyns mann­legu eðli. Áhugi á sál­ar­fræði virð­ist líka vera almennur hér á landi. Sumir sál­fræð­ingar eru þjóð­þekktir af umfjöll­unum sínum um sál­ar­flækjur hvers konar,“ skrifar Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra á Facebook.

„Nú ber svo við að hér á landi er staddur kanadískur sál­fræð­ingur sem virð­ist vera nokk­urs konar rokk­stjarna í hugum áhuga­manna um þjóð­mál. Jordan Peterson fyllir hvern fyr­ir­lestr­ar­sal­inn á eftir öðrum í Banda­ríkj­unum og Kanada. Og nú á Íslandi. Ég kemst ekki á fyr­ir­lestrana hans í Hörpu en ég get ímyndað mér að þeir verði áhuga­verðir og skemmti­legir ef marka má áhug­ann sem ég greini hér á FB og spurn­ing­arnar sem eg les um að íslenskir áheyr­endur hyggj­ast leggja fyrir JP.“

Hún segir þær Áslaugu Örnu hafa hitt Jordan Peterson um helg­ina. „Hann var nýlentur hér eftir 13 klukku­tíma ferða­lag úr allt öðru tíma­belti. Það virt­ist ekki draga úr áhuga hans á að ræða mann­legt eðli. JP hefur verið lýst sem manni sem menn ýmist elska (sér­stak­lega ungt fólk) eða elska að hata. Frá mínum bæj­ar­dyrum séð er hér í öllu falli kurt­eis og skarpur maður sem brennur fyrir efn­inu. Ég hef ekki enn lesið nýj­ustu bók hans um lífs­regl­urnar 12 sem hann vill leggja ungu fólki. Ég þyk­ist þó viss um að upp­á­halds­reglan mín sé númer 6, sú að menn eigi að taka til í her­berg­inu sínu.“

Jordan Peterson og Sigríður Andersen eiga það sam­eig­in­legt að hafa lýst efa­semdum um að munur sé á launum karla og kvenna vegna kyn­ferðis þeirra eða að launa­mun­ur­inn feli í sér kyn­bundið mis­rétti. Þá vakti athygli þegar Jordan Peterson gagn­rýndi lög Íslend­inga um jafn­launa­vottun og spáði hruni slíks fyr­ir­komu­lags.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár