Ekki upplýst um nýlegri dæmi þess að börn séu þvinguð til að hitta barnaníðinga

Sýslu­manns­emb­ættið gefur heldur ekki upp hversu oft umgengni hafi alfarið verið hafnað vegna ofbeld­is­hættu en sviðs­stjóri fjöl­skyldu­sviðs full­yrðir að slíkir úrskurðir séu „mjög fáir“.

Ekki upplýst um nýlegri dæmi þess að börn séu þvinguð til að hitta barnaníðinga

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu telur sig ekki geta upp­lýst hversu oft frá 2013 hafa verið kveðnir upp úrskurðir í umgengnis- og dag­sekt­ar­málum þar sem mælt er fyrir um að barn skuli umgang­ast for­eldri gegn vilja sínum þrátt fyrir að for­eldrið hafi verið dæmt fyrir ofbeldi gegn barn­inu eða systk­inum þess.

Úrskurðir sýslu­manns eru ekki aðgengi­legir almenn­ingi og emb­ættið veitir ekki óper­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar um atriði sem þessi, né um fjölda til­vika þar sem úrskurðað var um umgengni eftir að fram komu ásak­anir um ofbeldi sem taldar voru trú­verð­ugar og studdar gögnum frá lög­reglu, barna­vernd­ar­yf­ir­völdum eða með­ferð­ar­að­ilum. Þannig er að miklu leyti á huldu hvernig sýslu­manns­emb­ættið hefur túlkað ákvæði barna­laga í umgengnis- og dag­sekt­ar­málum eftir að barna­lögum var breytt árið 2012 og skerpt á vernd barna gegn ofbeldi. 

Ekki liggja fyrr upp­lýs­ingar hjá emb­ætt­inu um hvort eða hversu oft frá 2009 umgengni hefur alfarið verið hafnað vegna ofbeld­is­hættu, sbr. 1. mgr. 47. gr. barna­laga, en sviðs­stjóri fjöl­skyldu­sviðs hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu full­yrðir í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar að slíkir úrskurðir séu „mjög fáir“.

Eins og fram kom í umfjöllun í síð­asta blaði var á tíma­bil­inu 1999 til 2009 aðeins einu sinni kveð­inn upp úrskurður hjá Sýslu­mann­inum í Reykja­vík þar sem umgengni for­eldris var talin and­stæð hags­munum barns­ins.

Í því máli var deilt um umgengni föður við tvær dætur sínar og bentu gögn máls­ins, meðal ann­ars álits­gerð frá sál­fræð­ingi, sterk­lega til þess að fað­ir­inn hefði beitt eldri syst­ur­ina kyn­ferð­is­of­beldi. Sýslu­maður hafn­aði beiðni föður um umgengni við hana en ákvað hins vegar að skikka yngri dótt­ur­ina til umgengni við föð­ur­inn undir eft­ir­liti. 

Fram til árs­ins 2013 hafði ofbeldi föður gegn móður „almennt engin áhrif á umgengni“ sam­kvæmt úrskurðum sýslu­manns auk þess sem börn voru þvinguð til að umgang­ast for­eldri jafn­vel þótt fyrir lægju sterkar vís­bend­ingar – jafn­vel refsi­dómar – um ofbeldi for­eldris gegn við­kom­andi barni, móður og/eða systk­inum þess. Í einu mál­inu sem Stundin greindi frá var stúlka þvinguð til að umgang­ast föður sinn þótt hann hefði verið dæmdur fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn henni.

Með breyt­ingum sem gerðar voru á barna­lögum árið 2012 var skerpt á vernd barna gegn ofbeldi og lög­fest að við ákvörðun umgengni bæri sýslu­manni skylda til að meta hættu á að barnið, for­eldri eða aðrir á heim­ili barns­ins hefðu orðið eða yrðu fyrir ofbeldi. Samkvæmt 1. mgr. 47. gr. barna­laga getur sýslu­maður kveðið svo á að umgengn­is­réttar for­eldris njóti ekki við ef hann telur að umgengni barns við for­eldri sé and­stæð hag og þörfum þess. 

Stundin óskaði eftir upp­lýs­ingum frá Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í þeim til­gangi að kanna áhrif laga­breyt­ing­anna á með­ferð og nið­ur­stöður umgengn­is­mála. Spurt var um fjölda til­vika þar sem emb­ættið hefði hafnað umgengni for­eldris alfarið á þeim grund­velli að umgengni telj­ist and­stæð hags­munum barns vegna ofbeld­is­hættu, sbr. 1. mgr. 47. gr. barna­laga. Stundin spurði einnig hve oft sýslu­maður hefði úrskurðað um að for­eldri ætti rétt til umgengni við barn sem for­eldrið hefði verið dæmt fyrir ofbeldi gegn og um fjölda til­vika þar sem úrskurðað var um umgengni þrátt fyrir að ásak­anir um ofbeldi gegn við­kom­andi barni, for­eldri, systk­ini eða systk­inum hefðu verið metnar trú­verð­ugar og studdar gögnum frá fag­að­ilum.

Fram kemur í svörum sýslu­manns að upp­lýs­ingar um efn­is­legar nið­ur­stöður úrskurða og rök fyrir þeim séu ekki skráðar í mála­skrár­kerfi emb­ætt­is­ins og emb­ættið geti ekki brugð­ist við fyr­ir­spurn­inni með því að rýna í þá úrskurði sem kveðnir hafa verið upp und­an­farin ár. 

„Um nákvæman fjölda úrskurða frá 2009, um að umgengn­is­réttar njóti ekki við, þar sem talin var hætta á ofbeldi, eru því ekki til upp­lýs­ingar, en full­yrða má að þeir eru mjög fáir. Sama á við um spurn­ingar nr. 2 og 3, þeim er ekki hægt að svara, þar sem upp­lýs­ingar eru ekki til,“ segir í svar­inu frá fjöl­skyldu­sviði Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Varðandi spurn­ingu þína nr. 3 þá er það, eins og lýst var, verk­efni sýslu­manns að meta við upp­kvaðn­ingu úrskurðar, hvort hætta sé á að barn verði fyrir ofbeldi, þannig að trú­verð­ug­leiki fyr­ir­liggj­andi gagna er met­inn af sýslu­manni. Þó að ekki sé hægt að vísa til töl­fræði­upp­lýs­inga, er óhætt að segja að til eru til­vik, þar sem kveðnir hafa verið upp úrskurðir þar sem fyrir lágu ásak­anir um ofbeldi og gögn því til stuðn­ings. Við upp­kvaðn­ingu úrskurðar við þær aðstæður ber sýslu­manni að meta áhrif þessa á inn­tak umgengn­innar og má í því sam­hengi nefna mögu­leika sýslu­manns á að ákveða umgengi með eft­ir­liti.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnsýsla

Umboðsmaður taldi forræðið liggja hjá stjórnvaldinu en ekki ríkislögmanni
FréttirStjórnsýsla

Umboðs­maður taldi for­ræðið liggja hjá stjórn­vald­inu en ekki rík­is­lög­manni

Ákvörð­un­ar­vald um hvort bóta­skylda sé við­ur­kennd liggur hjá því stjórn­valdi sem bóta­kröfu er beint að og stjórn­völd hafa for­ræði á kröfu­gerð, rök­semdum og ágrein­ings­at­riðum þegar mál fara fyrir dóm­stóla. Þetta er afstaða umboðs­manns Alþingis sam­kvæmt ábend­inga­bréfi sem hann sendi heil­brigð­is­ráð­herra árið 2014, en for­sæt­is­ráðu­neytið gaf út yfir­lýs­ingu á föstu­dag þar sem fram kom að rík­is­lög­maður hefði „almennt for­ræði á kröfu­gerð og fram­setn­ingu hennar“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár