Sýslumannsfulltrúi sakaði málsaðila um lygi á Facebook

„Þá verður lygi ekki stað­reynd þó henni sé ítrekað haldið fram,“ sagði María Júlía Rún­ars­dóttir í athuga­semd á Facebook sem beint var að konu sem María hafði nokkrum mán­uðum áður sakað um „til­hæfu­lausar ásak­anir“ í umgengn­is­úr­skurði.

Sýslumannsfulltrúi sakaði málsaðila um lygi á Facebook
Maríu Júlía Rún­ars­dóttir, sem nú starfar hjá Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hefur látið mikið að sér kveða í opin­berri umræðu um umgengn­is­mál und­an­farin ár og beitt sér af hörku fyrir því að umgengni­stálm­anir verði gerðar refsi­verðar. Mynd: Af Facebook-síðu Framsóknarflokksins í Kópavogi

María Júlía Rún­ars­dóttir sýslu­manns­full­trúi fór niðr­andi orðum um Sigrúnu Sif Jóels­dóttur á Facebook nokkrum mán­uðum eftir að hafa kveðið upp úrskurð í umgengn­is­deilu Sigrúnar og barns­föður hennar. Þá dró María upp vill­andi mynd af tengslum sínum við Félag um for­eldra­jafn­rétti í tölvu­pósti til Sigrúnar þar sem hún sagð­ist „einu sinni, fyrir tæpum 10 árum“ hafa verið „beðin um að halda erindi á þeirra vegum“. Raunin er sú að nokkrum vikum áður hafði María haldið fyr­ir­lestur á ráð­stefnu á vegum félags­ins. 

Fjallað er ítar­lega um rétt­ar­fram­kvæmd í umgengnis- og dag­sekt­ar­málum og máls­með­ferð Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar. 

Tveir úrskurð­anna sem Stundin fjall­aði um voru kveðnir upp af Maríu Júlíu Rún­ars­dóttur sýslu­manns­full­trúa, en hún hefur beitt sér af hörku fyrir því að umgengni­stálm­anir verði gerðar refsi­verðar og er jafn­framt ein­hver ötul­asti tals­maður kenn­ing­ar­innar um svo­kallað „for­eldrafirr­ing­ar­heil­kenni“ á Íslandi. 

Í öðrum úrskurð­inum kemst María Júlía að þeirri nið­ur­stöðu að með því að greina frá áhyggjum af meintu ofbeldi barns­föður síns hafi Sigrún Sif Jóels­dóttir, móðir ungs drengs, brotið gegn skyldum sínum og skaðað dreng­inn. 

Sigrún Sif Jóels­dóttir er einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar í ítar­legri umfjöllun um rétt­ar­fram­kvæmd sýslu­manns í umgengnis- og dag­sekt­ar­málum.

Orðrétt segir meðal ann­ars:  „Er það mat sýslu­manns að móðir hafi í veiga­miklum atriðum brotið skyldur sínar sam­kvæmt 46 barna­laga [sic] er hún hefur komið í veg fyrir að umgengni fari fram og með því að setja fram alvar­legar og til­hæfu­lausar ásak­anir í garð föður.“ Á þessum grund­velli mælti María fyrir um aukna umgengni föð­ur­ins við barnið þótt fað­ir­inn hefði ekki form­lega gert kröfu um slíkt. 

Sigrún hefur kært úrskurð­inn til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, enda telur hún sig ekki hafa fengið rétt­láta máls­með­ferð og ótt­ast að María hafi lagt kenn­ingar um for­eldrafirr­ing­ar­heil­kenni til grund­vallar nið­ur­stöðu sinni fremur en fyr­ir­mæli barna­laga.

Sigrún segir að tölvu­pósts­sam­skipti sín við Maríu Júlíu og fram­ganga Maríu á Facebook hafi sann­fært sig enn frekar um að hún hafi ekki notið sann­mælis við með­ferð máls­ins. 

Sagðist hafa haldið erindi „fyrir tæpum 10 árum“

Eftir að María Júlía kvað upp úrskurð í máli Sigrúnar og barns­föður hennar fyrir hönd sýslu­manns­emb­ætt­is­ins í fyrra sendi Sigrún henni tölvu­póst og bað hana um að gera „skýra grein fyrir augljósum hags­muna­tengslum [s]ínum við félag sem kennir sig við for­eldra­jafnrétti (áður forsjárlausir feður)“. María svar­aði: „Sæl, allur rökstuðn­ingur kemur fram í úrskurð­inum. Þá hef ég engin tengsl við umrætt félag en var einu sinni, fyrir tæpum 10 árum, beðin um að halda erindi á þeirra vegum“ og sendi Þórólfi Hall­dórs­syni sýslu­manni afrit af póst­inum. Raunin er sú að aðeins nokkrum vikum áður hafði María haldið fyr­ir­lestur á ráð­stefn­unni „Leyfi til að elska“ sem Félag um for­eldra­jafn­rétti stóð að ásamt sam­tök­unum Börnunum okkar. 

Í mars síð­ast­liðnum spratt upp umræða á Facebook um orð sem konur höfðu látið falla í lok­uðum umræðu­hópi þar sem for­sprakkar feðra­hreyf­inga voru bendl­aðir við ofbeldi. Tjáði Sigrún Sif sig um barns­föður sinn í hópnum og var ummæl­unum dreift á Facebook til vitnis um illan ásetn­ing kvenn­anna. „Í hópnum er FAKE aðgangur, Ragna Adel­stein, sem not­aður er til að koma á fram­færi gróf­ustu meið­yrð­unum. Hugsandi fólk er fljótt að koma auga á að fólk sem þarf að koma fram undir fölsku flaggi hefur eitt­hvað óhreint í poka­horn­inu,“ skrif­aði Heimir Hilm­ars­son, for­sprakki Félags um for­eldra­jafn­rétti. Þá nafn­greindi hann Sigrúnu og skrif­aði: „Vinkona FAKE aðgangs­ins Sigrún Sif Jóels­dóttir virð­ist frá mínu sjón­ar­horni vera sið­ferð­is­lega á sama stað og mann­eskjan sem stendur á bak við FAKE aðgang­inn.“ María Júlía brást við með eft­ir­far­andi athuga­semd sem mátti skilja sem gagn­rýni á Sigrúnu: „Mann­eskja sem felur sig á bak­við nettröll hefur ekki góðan mál­stað að verja.“

Sigrún gat ekki brugð­ist við orðum Maríu í eigin per­sónu í ljósi þess að lokað var fyrir athuga­semdir frá öðrum en vinum þess sem deilt hafði skjá­skot­inu. Sigrún lét hins vegar bera Maríu eft­ir­far­andi skila­boð:

„Athuga­semd frá Sigrun Sif Jóels­dóttir sem er nafn­greind hér. „1. Ég er ekki falin á bak­við neitt nettröll athugið það. Ragna Adel­stein er ekki málsvari minn eða fb vinur. 2. Ég stend við allt sem ég segi og hef skrifað á netið og get rakið það í sögu gagna meðal ann­ars frá sýslu­manns­full­trú­anum Maríu Júlíu, þetta veit hún. En hún reyndar segir ekki alltaf satt hún María Júlía eins og gera má einnig grein fyrir með skýrum hætti en ég ætla ekki að gera hér. 3. Mál­stað­ur­inn sem ég hef að verja María Júlía er barnið mitt. Dæmi svo hver um sig hver er ósmekk­legur í tali ég og barnið mitt sem þolandur ofbeldis eða sýslu­manns­full­trú­inn María Júlía Rún­ars­dóttir sem greinir mæður barna sem greina frá ofbeldi og kyn­ferð­is­of­beldi feðra sem for­eldrafirrtar tálm­un­ar­mæður eftir fals­kenn­ingum sem hefur verið úthýst úr dóm­ara­sam­fé­lögum vest­an­hafs og greina­gerð 5.1.6 með barna­lögum varar sér­stak­lega við. Ég bendi einnig á að stað­fest kyn­ferð­is­brot gagn­vart börnum voru 209 árið 2013 og 106 árið 2016 og sitt sýn­ist hverjum um firr­ingu feðra­rétt­ar­hreyf­inga og sýslu­manns­full­trúa eða vernd­andi mæðra.“

María brást við með eft­ir­far­andi hætti:

„Kæra Sigrún, þar sem þú virð­ist taka ofan­greindri athuga­semd minni per­sónu­lega þá vil ég að því sé haldið til haga að ég var ekki að halda því fram að þú værir á bak­við nettröllið Rögnu Adel­stein. Þá verður lygi ekki stað­reynd þó henni sé ítrekað haldið fram.“ 

Kvartar til dómsmálaráðuneytisins

Sigrún Sif hefur kvartað til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna fram­göngu Maríu Júlíu á opin­berum vett­vangi gagn­vart sér. Í kvörtun­inni segir hún Maríu fara með „róg um nafn­greindan aðila á opin­berum vett­vangi sem er málsað­ili að máli sem hún hefur haft til úrskurðar“. Þá er María gagn­rýnd fyrir að „upp­hefja sinn persónulega málstað í umræðum á opin­berum vett­vangi þar sem birt eru skjáskot af athuga­semdum málsað­ila að málum sem hún hefur haft til úrskurðar“.

Bent er á að skjá­skotin hafi verið tekin af lok­uðum umræðu­vett­vangi sem er einvörðungu ætl­aður þolendum ofbeldis og var lekið af nafn­lausum aðila á opna spjall­þræði á net­inu.

„María Júlía gefur í skyn lygar í málstað mínum sem aðili að máli þar sem hún er ábyrg fyrir að gæta hlut­leysis og hlut­lægni, með því að ávarpa mig beint með nafni,“ segir Sigrún í kvörtun sinni sem hún sendi 26. mars síð­ast­lið­inn.

Stundin hafði sam­band við Maríu Júlíu, bauð henni að tjá sig um málið og spurði hvort henni þættu ummæli sín ekki óheppi­leg eftir á að hyggja. María vildi þó ekki láta hafa neitt eftir sér í ljósi stöðu sinnar hjá sýslu­manni. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnsýsla

Umboðsmaður taldi forræðið liggja hjá stjórnvaldinu en ekki ríkislögmanni
FréttirStjórnsýsla

Umboðs­maður taldi for­ræðið liggja hjá stjórn­vald­inu en ekki rík­is­lög­manni

Ákvörð­un­ar­vald um hvort bóta­skylda sé við­ur­kennd liggur hjá því stjórn­valdi sem bóta­kröfu er beint að og stjórn­völd hafa for­ræði á kröfu­gerð, rök­semdum og ágrein­ings­at­riðum þegar mál fara fyrir dóm­stóla. Þetta er afstaða umboðs­manns Alþingis sam­kvæmt ábend­inga­bréfi sem hann sendi heil­brigð­is­ráð­herra árið 2014, en for­sæt­is­ráðu­neytið gaf út yfir­lýs­ingu á föstu­dag þar sem fram kom að rík­is­lög­maður hefði „almennt for­ræði á kröfu­gerð og fram­setn­ingu hennar“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár