Konur hvattar til að splæsa á maka og vini í nýrri herferð gegn kynjamisrétti

Herferð að norskri fyr­ir­mynd ýtt úr vör í kvöld. Myllu­merkið #húnsplæsir notað til að vekja athygli á ómeð­vit­uðu kynja­mis­rétti í sam­fé­lag­inu.

Konur hvattar til að splæsa á maka og vini í nýrri herferð gegn kynjamisrétti
Kyn­bundið mis­rétti ekki bara kvenna­mál Fjóla Dögg Sig­urð­ar­dóttir, sem er í for­svari fyrir her­ferð­inni #húnsplæsir, segir að mark­miðið sé að velti fyrir sér hvort það sjálft sé ómeð­vitað að gera eitt­hvað sem næri staðalí­myndir um hlut­verk kynj­anna. Mynd: Freyr Rögnvaldsson

„Kyn­bundið mis­rétti er ekki bara kvenna­mál, heldur mál sem varðar okkur öll. Mark­miðið er að fá fólk til að gera sér grein fyrir því hvað kyn­bundið mis­rétti snertir marga, jafn­vel litla, þætti í okkar dag­lega lífi.“ Þetta segir Fjóla Dögg Sig­urð­ar­dóttir, læknir, sem er í for­svari fyrir #húnsplæsir her­ferð­ina sem hefst í kvöld með við­burði í Hann­es­ar­holti.

Her­ferðin er að norskri fyr­ir­mynd og er mark­mið hennar að hefja umræðu um ómeð­vit­aða kynja­mis­munum í dag­legu lífi og þau nei­kvæðu áhrif sem slík mis­munum hefur á sam­fé­lagið. Fjóla hefur tekið þátt í her­ferð­inni úti í Noregi og segir í sam­tali við Stundina að henni hafi þótt mik­il­vægt að sama umræða færi af stað hér á Íslandi. „Marie Louise Sunde, kollegi minn sem hóf her­ferð­ina úti í Noregi, gerði það vegna þess að hún tók eftir því að lítið mál var að fá konur til að taka þátt í jafn­rétt­isum­ræð­unni en að fá karl­menn inn í umræð­una var mun erf­ið­ara. Hún vildi gera sitt til að breyta því enda er kyn­bundið mis­rétti mál sem varðar alla.“

Ójafnvægi í viðskiptalífinu

Samtökin sem standa að baki #húnsplæsir, sem í Noregi kall­ast #hun­spand­erer, hafa staðið fyrir tveimur her­ferðum sem hafa skilað miklu umtali og vit­und­ar­vakn­ingu þar úti. Verk­efnið hefur þá teygt sig víðar, meðal ann­ars til Bret­lands, Kanada, Ástralíu og Banda­ríkj­anna. Í ár var sjónum fyrst og fremst beint að við­skipt­líf­inu í Noregi. „Þó að þrjár valda­mestu stöð­urnar í norskri póli­tík séu mann­aðar konum þá er enn mikið ójafn­vægi í við­skipta­líf­inu, ekki síst í fjár­mála­geir­anum, og dæmi um að fyr­ir­tækjum sé ein­göngu stýrt af karl­mönnum. Því vildum við beina sjónum að því að jafn­rétti er líka efna­hags­mál. Rann­sóknir hafa sýnt að fyr­ir­tæki þar sem kynja­hlut­föll eru sem jöfn­ust, þeim vegnar betur,“ segir Fjóla.

„Mark­miðið er að fólk horfi í speg­il­inn, í augu við sjálf sig, og velti því fyrir sér hvort við séum sjálf að gera eitt­hvað í hinu dag­lega lífi sem ómeð­vitað stuðlar að því að næra þessar staðalí­myndir um hlut­verk kynj­anna“

Fjóla segir að henni hafi þótt mik­il­vægt að þessi hug­mynda­fræði, þetta verk­efni, yrði tekið upp á Íslandi og ákvað því sjálf að ýta því úr vör „Við erum sem betur fer komin langt á veg hér heima en ég sé það til dæmis bara á #karl­mennskan átak­inu sem er í gangi núna að það er þörf á að karl­menn komi með virk­ari hætti inn í kynja­jafn­rétt­isum­ræð­una. Ef við gerum okkur ekki grein fyrir þessu, þess­ari ómeð­vit­uðu kynja­mis­munun, þá náum við ekki að færa okkur fram á við.“

Kyn á ekki að skipta máli þegar splæst er

„Þessir við­burðir ganga út á að fólk mæti, karl­menn og konur, og spjalli við okkur og fræð­ist. Við erum líka að hvetja til að fólk bjóði sam­starfs­fólki sínu, vinum eða fjöl­skyldu í mat eða drykk með það að mark­miði að spjalla sér­stak­lega um þessi mál. Mark­miðið er að fólk horfi í speg­il­inn, í augu við sjálf sig, og velti því fyrir sér hvort við séum sjálf að gera eitt­hvað í hinu dag­lega lífi sem ómeð­vitað stuðlar að því að næra þessar staðalí­myndir um hlut­verk kynj­anna,“ segir Fjóla og bendir á að það séu oft litlir hlutir sem fólk taki varla eftir í sínu dag­lega lífi sem hafi þessi áhrif. „Ég las til að mynda umfjöllun í norsku dag­blaði þar sem fjallað var um konu, lög­fræð­ing í stóru fyr­ir­tæki, sem komin var til vinnu þremur eða fjórum dögum eftir að hafa fætt barnið sitt. Faðir barns­ins var bara heima með unga­barnið og þetta því ekk­ert til­töku­mál. Hins vegar varð einum kollega mínum, ljós­móður sem ég vinn með, svo um og ó að hún velti því fyrir sér að til­kynna málið til barna­verndar. Þetta sýnir okkur hvað þessi skekkja er inn­gróin, að meira að segja árið 2018 skuli fag­fólk vera þeirrar skoð­unar að börn séu betur sett hjá mæðrum sínum heldur en feðrum.“

En af hverju ættu konur að splæsa, í ljósi þess að enn mælist kyn­bund­inn launa­munur í sam­fé­lag­inu? Fjóla segir að í því ljósi sé kannski enn mik­il­væg­ara að vekja umræð­una. „Ég held að það sé leiðin til að jafna laun kynj­anna. Við viljum ekki að staðan sé sú að rök­semdin sé að konur eigi ekki að splæsa af þessum sökum, heldur miklu frekar að eðli­legt sé að konur og karlar séu jafn sett launa­lega og þess vegna skipti kyn ekki máli þegar ein­hver splæsir í mat eða drykk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Jafnréttismál

Ekki fræðilegur möguleiki að manna vaktina með karlmönnum
ViðtalJafnréttismál

Ekki fræði­legur mögu­leiki að manna vakt­ina með karl­mönnum

Jakobína Rut Dan­í­els­dóttir var að reyna að fá einn af fjórum karl­kyns sam­starfs­mönnum sínum til að taka vakt­ina hennar í dag þegar hún ræddi við Heim­ild­ina í síð­ustu viku. Hún sinnir starfi sem hún getur ekki gengið í burtu frá, jafn­vel þó að á í dag sé kvenna­verk­fall. Hún er ein af þeim fjöl­mörgu konum sem halda heil­brigð­is­kerf­inu uppi.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár