Jafn­rétti Konur og kvár leggja niður störf í dag og krefj­ast launa­jafn­réttis. Sam­stöðu­fundir verða haldnir um land allt, meðal ann­ars á Arn­ar­hóli klukkan tvö. Mynd: Heida Helgadottir

Ekki fræðilegur möguleiki að manna vaktina með karlmönnum

Jakobína Rut Dan­í­els­dóttir var að reyna að fá einn af fjórum karl­kyns sam­starfs­mönnum sínum til að taka vakt­ina hennar í dag þegar hún ræddi við Heim­ild­ina í síð­ustu viku. Hún sinnir starfi sem hún getur ekki gengið í burtu frá, jafn­vel þó að á í dag sé kvenna­verk­fall. Hún er ein af þeim fjöl­mörgu konum sem halda heil­brigð­is­kerf­inu uppi.

Árið 1975 stóð Unnur Berglind Frið­riks­dóttir með móður sinni í Banka­stræti og mót­mælti. Það var í fyrsta sinn sem kvenna­verk­fall, eða kvenna­frí eins og það var kallað þá, var haldið. Í dag, 48 árum eftir að Unnur stóð við hlið móður sinnar og krafð­ist launa­jafn­réttis, mun hún standa á Arn­ar­hóli með þús­undum ann­arra kvenna og kvára. Og þó að tæp hálf öld sé liðin frá fyrsta verk­fall­inu og ýmis­legt hafi áunn­ist í bar­átt­unni eru kröf­urnar af svip­uðum toga og þær voru þá: Jöfn kjör óháð kyni. 

Unnur Berglind er for­maður Ljós­mæðra­fé­lags Íslands. Hún vinnur þessa dag­ana að því að koma í veg fyrir að grunn­laun ljós­mæðra sem starfa hjá stofn­unum rík­is­ins verði lækkuð.  

„Mér finnst við ekki metnar að verð­leikum“
Unnur Berglind Frið­riks­dóttir
for­maður Ljós­mæðra­fé­lags Íslands

„Ég er eig­in­lega bara að verða fyrir von­brigðum aftur og aftur,“ segir Unnur …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jafnréttismál

Mest lesið undanfarið ár