Afnám fangelsisrefsinga vegna neysluskammta til skoðunar

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir að það sam­ræm­ist illa hug­myndum um skaða­minnkun að það „varði fang­els­is­refs­ingu að lögum að vera neyt­andi fíkni­efna“.

Afnám fangelsisrefsinga vegna neysluskammta til skoðunar
Svandís Svav­ars­dóttir Heil­brigð­is­ráð­herra hefur kallað eftir áhættu­mati á afnámi refs­inga við vörslu neyslu­skammta vímu­efna. Mynd: Pressphotos

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra segir rík­is­stjórn­ina stefna að hertum aðgerðum gegn fíkni­efna­sölum, inn­flutn­ingi og fram­leiðslu fíkni­efna, en jafn­framt verði fíklum tryggð við­un­andi með­ferð­ar­úr­ræði. Sjálf hafi hún lagt sér­staka áherslu á skaða­minnkun og telji það sam­ræm­ast illa slíkum hug­myndum að það „varði fang­els­is­refs­ingu að lögum að vera neyt­andi fíkni­efna“. 

Þetta kemur fram í skrif­legu svari ráð­herra við fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, sem spurði hvort til stæði að breyta lögum um ávana- og fíkni­efni á þá leið að afnema fang­els­is­refs­ingu fyrir vörslu á neyslu­skömmtum. Vísar hann til slíkrar til­lögu sem fram kom í skýrslu starfs­hóps um skaða­minnkun frá 2016. 

„Í athuga­semdum við nefnda til­lögu að breyt­ingum á lögum um ávana- og fíkni­efni, sem varðar afnám fang­els­is­refs­inga fyrir vörslu á neyslu­skömmtum, leggur starfs­hóp­ur­inn til að áður en ráð­ist verði í þær breyt­ingar verði gert áhættu­mat á áhrifum þeirra og farið yfir reynslu þeirra þjóða sem farið hafa þessa leið,“ segir í svari Svan­dísar, sem hyggst setja af stað vinnu við gerð slíks áhættu­mats. „Mun ráð­ast af nið­ur­stöðu þess hvort frum­varp til laga um breyt­ingu á lög­unum verði lagt fram.“

Hún bendir á að nú þegar sé hafin vinna við und­ir­bún­ing að opnun neyslu­rýmis fyrir langt leidda vímu­efna­neyt­endur. Þannig verði ein­stak­lingum sem sprauta sig í æð tryggður aðgangur að hreinum sprautu­bún­aði, nála­skipti­þjón­ustu og gjald­frjálsri grunn­heil­brigð­is­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár