Óráðið hvort sett verði af stað rannsókn eða þingmenn látnir endurgreiða fjármuni

„Það sem ég mun leggja til mun ég leggja fram á fundum nefnd­ar­innar,“ segir Stein­grímur J. Sig­fús­son í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið.

Óráðið hvort sett verði af stað rannsókn eða þingmenn látnir endurgreiða fjármuni
CC BY-SA 3.0 / Wikimedia / Zinneke (CC license) D'Gebai vum Alþingi, dem islännesche Parla­ment Mynd: Wikimedia / Zinneke (CC license) D'Gebai vum Alþingi, dem islännesche Parlament

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, svarar því ekki að svo stöddu hvort hann telji rétt að setja af stað rann­sókn á fram­kvæmd reglna um þing­far­ar­kostnað og ábyrgð ein­stakra þing­manna. 

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur við­ur­kennt að hafa látið Alþingi greiða akst­urs­kostnað vegna próf­kjörs­bar­áttu sinnar og dag­skrár­gerðar fyrir sjón­varps­stöð­ina ÍNN.

Þá liggur fyrir að nokkrir þing­menn hafa ekki fylgt reglu um notkun bíla­leigu­bíls þegar keyrðir eru meira en 15 þús­und kíló­metrar á ári né afdrátt­ar­lausum fyr­ir­mælum í siða­reglum þing­manna um að þing­menn eigi að tryggja að end­ur­greiðslur fyrir útgjöld sín séu í full­komnu sam­ræmi við reglur um þing­far­ar­kostnað. 

Stundin spurði Stein­grím J. Sig­fús­son, for­seta Alþingis, á föstu­dag hvort það kæmi til álita að hans mati að sett yrði af stað óháð athugun eða ran­sókn á fram­kvæmd reglna um þing­far­ar­kostnað og ábyrgð ein­stakra þing­manna. Einnig var hann spurður hvort þing­menn yrðu beðnir um að end­ur­greiða Alþingi fjár­muni sem þeir fengu vegna óhóf­legrar end­ur­greiðslu útgjalda eða óábyrgrar notk­unar á end­ur­greiðslu­fyr­ir­komu­lag­inu sem mælt er fyrir um í reglum um þing­far­ar­kostnað.

„Ég held ég verði nú ein­fald­lega að biðja menn að sýna þol­in­mæði og bíða eftir nið­ur­stöðum for­sætis­nefndar hvað varðar þetta mál í heild. Það sem ég mun leggja til mun ég leggja fram á fundum nefnd­ar­innar en ekki kynna í fjöl­miðlum fyr­ir­fram af skilj­an­legum ástæðum (hitt myndi vænt­an­lega ekki mæl­ast vel fyrir),“ segir í svari Stein­gríms. 

Píratar hafa kallað eftir því að siða­nefnd Alþingis kanni hvort fram­ganga þing­manna hvað varðar end­ur­greiðslur akst­urs­kostn­aðar stand­ist siða­reglur þings­ins og hvort lög­brot kunni að hafa verið framin. Fram kom í við­tali Frétta­blaðs­ins við Jón Þór Ólason, lektor við Háskóla íslands og sér­fræð­ing í refsirétti, í gær að vís­vit­andi rangar skrán­ingar í akst­urs­bókum þing­manna gætu talist fjár­svik sam­kvæmt auðg­un­ar­brota­á­kvæði almennra hegn­ing­ar­laga. 

For­sætis­nefnd Alþingis kemur saman á morgun og fjallar um akst­urs­greiðslu­málið. Í for­sætis­nefnd sitja Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, Guðjón S. Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Brynjar Níelsson og Bryndís Har­alds­dóttir, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, Þórunn Egils­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins og Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund
Fréttir

Siða­nefnd: Þór­hildur Sunna „skað­aði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.
Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Fréttir

Akst­urs­greiðslu­mál „ekki sam­bæri­leg“ Klaust­urs­máli og engin álita­efni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár