Skrifstofustjóri Alþingis: „Alveg fráleitt“ að halda því fram að þingmenn hafi brotið siðareglur

„Allir reikn­ingar voru greiddir, skv. ákvörðun skrif­stof­unnar og eftir yfir­ferð hennar, meðan hið nýja fyr­ir­komu­lag var að kom­ast á. Í því fólust engin brot á siða­reglum,“ segir Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Skrifstofustjóri Alþingis: „Alveg fráleitt“ að halda því fram að þingmenn hafi brotið siðareglur
Helgi Bern­ód­us­son er skrif­stofu­stjóri Alþingis. Mynd: Pressphotos.biz

Það er frá­leitt að halda því fram að þing­menn sem fengu meira en 30 þús­und kíló­metra akst­urs­kostnað end­ur­greiddan frá Alþingi í fyrra hafi gerst brot­legir við siða­reglur. Þetta segir Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. 

Í 6. gr. reglna um þing­far­ar­kostnað sem tóku gildi síðla árs 2016 segir: Þegar alþing­is­maður þarf að aka meira en 15.000 km á ári í starfi sínu skal hann fá til afnota bíla­leigu­bif­reið sem skrif­stofa Alþingis leggur til. 

Samkvæmt siða­reglum þing­manna ber þeim að sjá til þess að end­ur­greiðsla fyrir útgjöld þeirra sé í full­komnu sam­ræmi við reglur sem settar eru um slík mál, þ.e. reglur um þing­far­ar­kostnað.

Ásmundur Frið­riks­son, Vil­hjálmur Árnason og fleiri þing­menn keyrðu hins vegar um tvö­falt lengri vega­lengdir á eigin bif­reiðum í fyrra og fengu kostn­að­inn end­ur­greiddan.

Helgi Bern­ód­us­son og for­sætis­nefnd telja að líta verði til þess að þá hafi enn hafi verið í gangi inn­leið­ing á reglum um bíla­leigu­bíla, reglum sem voru settar árið 2016.

Inn­leið­ing­unni hafi ekki lokið fyrr en í febr­úar 2018 og þing­menn hafi á þessu tíma­bili átt í sam­skiptum við þing­skrif­stof­una um fram­kvæmd regln­anna.

Helgi Bern­ód­us­son segir að eftir því sem skrif­stofu Alþingis sé kunn­ugt um hafi eng­inn þing­maður gert til­raun til að fá end­ur­greiðslu fyrir akstur sem hann átti ekki rétt á sam­kvæmt lögum og reglum, enda hefði slíkt aldrei við­geng­ist athuga­semda­laust. 

Hann bendir á að alls kyns spurn­ingar hafi vaknað um fram­kvæmd reglna um notkun bíla­leigu­bíla, svo sem hvað varðar trygg­ingar, einka­not, teg­undir bíla, notk­un­ar­tíma og elds­neytis­kaup. Jafn­framt hafi þótt rétt að miða breyttar reglur við þing­kosn­ingar og því hafi verið unnið að setn­ingu vinnu­reglna eftir kosn­ing­arnar 2017 þar sem úr vafa­at­riðum væri skorið.

„Allir reikn­ingar þeirra voru greiddir, skv. ákvörðun skrif­stof­unnar og eftir yfir­ferð hennar, meðan hið nýja fyr­ir­komu­lag var að kom­ast á. Í því fólust engin brot á siða­reglum“

„Það er alveg frá­leitt að þeir þing­menn, og þeir voru þó nokkrir, sem héldu áfram akstri á eigin bílum eftir kosn­ing­arnar 2017, hvort sem var í heim­an­akstri eða til­fallandi akstri, hafi með því brotið siða­reglur. Allir reikn­ingar þeirra voru greiddir, skv. ákvörðun skrif­stof­unnar og eftir yfir­ferð hennar, meðan hið nýja fyr­ir­komu­lag var að kom­ast á. Í því fólust engin brot á siða­reglum, enda stóðu yfir sam­töl og sam­skipti milli við­kom­andi þing­manna og skrif­stof­unnar á þessum tíma. Um þetta má lesa í grein­ar­gerð þeirri sem skrif­stofan tók saman í lok febr­úar á þessu ári að beiðni for­sætis­nefndar og lesa má á vef Alþingi.“

Helgi bendir á að í meg­in­reglum Alþingis um þing­far­ar­kostnað segi að jafnan skuli leita hag­kvæm­ustu leiða í ferða­kostn­aði, bæði innan lands og utan. Alþing­is­menn eigi lög­bund­inn rétt á að þeim sé end­ur­greiddur ferða­kostn­aður „í tengslum við störf“ þeirra. „Innan þess ramma er unnið,“ segir Helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund
Fréttir

Siða­nefnd: Þór­hildur Sunna „skað­aði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.
Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Fréttir

Akst­urs­greiðslu­mál „ekki sam­bæri­leg“ Klaust­urs­máli og engin álita­efni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár