Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Ekki litið til stjórn­sýslu­laga Nefnd­ar­mönnum var ekki gert að meta hæfi sitt með hlið­sjón af hæf­is­reglum stjórn­sýslu­réttar þegar erindi Björns Levís um akst­urs­greiðslur voru tekin fyrir. Mynd: Alþingi

Nefnd­ar­menn for­sætis­nefndar fengu ekki til­mæli um að meta hæfi sitt á grund­velli hæf­is­reglna stjórn­sýslu­réttar þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um akst­urs­greiðslur þing­manna og meint brot á siða­reglum voru tekin fyrir. 

Þetta stað­festir Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. Hann segir að mál Björns Levís hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“ og að við afgreiðslu for­sætis­nefndar á erind­inu hafi ekki verið til staðar álita­mál er snertu hæfi for­sætis­nefnd­ar­manna. 

Helgi Bern­ód­us­sonskrif­stofu­stjóri Alþingis

„Loks í þriðja lagi, þegar ljóst var að erindið upp­fyllti ekki skil­yrði um með­ferð siða­reglu­mála, var ekki til­efni til þess að beina því til allra þing­manna eða eftir atvikum til til­greindra þing­manna hvort þeir gerðu athuga­semd við hæfi nefnd­ar­manna,“ skrifar hann. 

Athygli vakti þann 17. des­em­ber síð­ast­lið­inn þegar allir nefnd­ar­menn for­sætis­nefndar lýstu sig van­hæfa til að fjalla um Klaust­urs­málið svo­kall­aða með vísan til hæf­is­reglna stjórn­sýslu­réttar, meðal ann­ars vegna ummæla sem þau höfðu áður látið falla um fram­göngu þeirra sex þing­manna sem slepptu af sér beisl­inu á Klaustri Bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Við afgreiðslu for­sætis­nefndar á erindum Björns Levís Gunn­ars­sonar fyrr á árinu komu hins vegar hæf­is­reglur stjórn­sýslu­réttar hvergi við sögu. Nefnd­ar­menn sem höfðu tjáð sig frjáls­lega um akst­urs­kostnað og tengd mál­efni, t.d. Brynjar Níelsson 2. vara­for­seti sem kom Ásmundi Frið­riks­syni til varnar á Facebook í febr­úar, töldu ekki ástæðu til að segja sig frá afgreiðslu þess máls. 

Helgi Bern­ód­us­son segir að líta verði til þess að fyrra erindi Björns Levís, sem svarað var með bréfi for­seta Alþingis þann 8. maí síð­ast­lið­inn, hafi beinst að „þeirri ósk þing­manns­ins að almenn athugun færi fram á end­ur­greiðslu akst­urs­kostn­aðar til alþing­is­manna og hvort for­sætis­nefnd væri almennt hæf til þess að fjalla um slík mál á grund­velli siða­reglna“. Þar hafi ekki verið til umfjöll­unar til­greint hátt­erni ein­staks þing­manns. 

For­sætis­nefnd AlþingisNefndin skipu­leggur þing­hald og setur almennar reglur um rekstur þings­ins.

Þá full­yrðir Helgi að akst­urs­greiðslu­málin séu ekki sam­bæri­leg Klaust­urs­mál­inu sem for­sætis­nefnd og siða­nefnd munu taka til umfjöll­unar eftir hátíð­arnar. „Loks er rétt að benda á að erindi þing­manns­ins og erindi það sem lýtur að hátt­erni umræddra þing­manna eru ekki sam­bæri­leg eins og aug­ljóst má vera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Fréttir

Siða­nefnd: Þór­hildur Sunna „skað­aði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár