Einhliða, persónuleg ákvörðun Steingríms að birta tölur um hæstu akstursgjöld þingmanna

Stein­grími J. Sig­fús­syni fannst rétt að veita upp­lýs­ingar um hæstu akst­urs­gjöld þing­manna án þess að nöfn þeirra kæmu fram. Fyrir rúmum mán­uði síðan var skrif­stofu­stjóri Alþingis, Helgi Bern­ód­us­son, á annarri skoðun og vildi ekki veita Stund­inni þessar upp­lýs­ingar. Málið sýnir hversu ein­kenni­legt það er að upp­lýs­inga­gjöf þjóð­þings sé háð duttl­ungum og per­sónu­legu mati ein­stakra starfs­manna þess.

Einhliða, persónuleg ákvörðun Steingríms að birta tölur um hæstu akstursgjöld þingmanna
Skoðun Stein­gríms Upp­lýs­inga­gjöf Alþingis um akst­urs­gjöldin sýnir hversu ein­kenni­legt það er að engar reglur og engin lög gildi um upp­lýs­inga­gjöf þings­ins. Eins og er þá er upp­lýs­inga­gjöf Alþingis byggð á skoð­unum og mati ein­stakra starfs­manna þings­ins, eins og til dæmis Stein­gríms J. Sig­fús­sonar sem fannst rétt að veita upp­lýs­ing­arnar um hæstu akst­urs­gjöld þing­manna á lög­gjaf­ar­þing­inu. Mynd: Pressphotos

Forseti Alþingis, Stein­grímur J. Sig­fús­son, segir aðspurður í tölvu­pósti til Stund­ar­innar að það hafi verið ákvörðun hans sem for­seta þings­ins að við hæfi væri að birta upp­lýs­ingar um 10 hæstu akst­urs­gjöld þing­manna frá árinu 2013. Þetta kemur fram í svari Stein­gríms við tölvu­pósti sem Stundin sendi honum og Helga Bern­ód­us­syni, skrif­stofu­stjóra Alþingis, á mánu­dag­inn var.

Spurning Stund­ar­innar hljóð­aði svona, og var í henni vísað til þess að skrif­stofu­stjóri Alþingis, Helgi Bern­ód­us­son, taldi að sér væri ekki heim­ilt að veita Stund­inni upp­lýs­ingar um hæstu end­ur­greiðsl­urnar til þing­manna, án þess að nöfn þeirra kæmu, þegar blaðið spurði hann ítrekað um þessar upp­lýs­ingar síðla árs í fyrra og í byrjun þessa árs: „Af hverju vildi skrif­stofa Alþingis ekki láta Stundina fá þessar óper­sónu­grein­an­legu upp­lýs­ingar en svo veitir for­seti Alþingis þessar upp­lýs­ingar þegar þing­maður biður um þær? Getið þið útskýrt þetta fyrir mér?“

„[L]íta má á svarið við fyr­ir­spurn þing­manns­ins, sem er auð­vitað á mína ábyrgð, sem lið í þróun í þá átt“

Hluti af stefnubreytingu Steingríms

Svar Stein­gríms við þess­ari spurn­ingu, sem barst Stund­inni í gær, er: „En því er til að svara af minni hálfu að ég hef beitt mér fyrir umræðum í for­sætis­nefnd síðan ég var kjör­inn for­seti að Alþingi auki upp­lýs­inga­gjöf um þessa hluti og líta má á svarið við fyr­ir­spurn þing­manns­ins, sem er auð­vitað á mína ábyrgð, sem lið í þróun í þá átt. sbr. einnig til­kynn­ingu um þessi mál frá mér til fjöl­miðla í dag þessu tengda.“

Í umræddri til­kynn­ingu frá því í gær sem Stein­grímur vís­aði til sagði hann frá því að hann hygð­ist auka upp­lýs­inga­gjöf og gagn­sæi í störfum Alþingis. Þar sagði meðal ann­ars: „[T]il skoð­unar hefur verið á und­an­förnum mán­uðum, og rætt m.a. í for­sætis­nefnd Alþingis, að auka upp­lýs­inga­gjöf um kjör og starfs­kostn­að­ar­greiðslur alþing­is­manna þannig að aðgangur að þeim verði öllum auð­veldur og þær birtar á vef þings­ins. Fyrir hafa legið í drögum reglur um fyr­ir­komu­lagið og hefur í þeim efnum verið horft til þess hvernig önnur þing haga upp­lýs­ingum um þessi mál. Mark­miðið er að engin leynd sé yfir neinu sem varðar almenn kjör og greiðslur til þing­manna og full­komið gagn­sæi ríki. – Þing­mönnum er að auð­vitað í sjálfs­vald sett hvaða upp­lýs­ingum þeir koma sjálfir á fram­færi um sín kjör, eins og verið hefur.“

Eftir að Stein­grímur, sem for­seti Alþingis, svar­aði spurn­ingu Björns Levís Gunn­ars­sonar um hæstu inn­heimtu akst­urs­gjöld þing­manna á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku hefur komið fram opin­ber­lega að sá þing­maður sem keyrði mest vegna vinnu sinnar í fyrra, Ásmundur Frið­riks­son, fékk 4,6 millj­ónir end­ur­greiddar frá Alþingi vegna þess­arar keyrslu sinnar. Svar Stein­gríms hefur því opnað umræð­una um akst­urs­gjöldin upp á gátt en aldrei áður hafa svo miklar upp­lýs­ingar um þessar end­ur­greiðslur til þing­manna verið veittar. 

Háð persónulegu mati einstakra starfsmanna

Svar Stein­gríms sýnir fram á það að upp­lýs­inga­gjöf um starf­semi, meðal ann­ars greiðslur til þing­manna, þjóð­þings Íslend­inga eru á end­anum háðar per­sónu­legu mati og kannski skoð­unum ein­stakra starfs­manna Alþingis, hvort svo sem um er að ræða skrif­stofu­stjóra Alþingis eða for­seta Alþingis. 

Þegar Stundin reyndi að fá þessar sömu upp­lýs­ingar frá Helga Bern­ód­us­syni í fyrra, upp­lýs­ingar sem blaðið tók meðal ann­ars fram að þyrftu ekki að vera með nöfnum við­kom­andi þing­manna, var svar hans að ekki væri hægt að veita upp­lýs­ing­arnar vegna þess að um væri að ræða einka­mál­efni þing­manna. Þá benti Helgi á að skrif­stofan ætti ekki yfir­lit yfir hæstu end­ur­greiðslur til þing­manna þar sem slík skrá hefði ekki verið unnin: „Skrif­stofan hefur litið svo á að akstur þing­manna og sam­band þeirra við kjós­endur séu einka­mál þeirra og að einka­hags­munir þing­manna geti leitt til þess að tak­marka verði upp­lýs­inga­gjöf eins og gert er skv. 9. gr. upp­lýs­inga­laga. Hvernig og með hvaða hætti þing­menn sinna sínum kjör­dæmum hefur sem sagt verið talið til einka­mál­efna þeirra. Skrif­stofan hefur því ekki látið vinna sér­stak­lega úr bók­haldi sínu yfir­lit yfir akstur hvers og eins þing­manns til birt­ingar, heldur aðeins látið taka saman hver sé heild­ar­kostn­aður af akstri þing­manna skv. end­ur­greiddum reikn­ingum.“ 

Fékk synjun í byrjun janúar

Stundin spurð­ist síð­ast fyrir um það í byrjun jan­úar síð­ast­liðin, 2018, hvort skrif­stofa Alþingis vildi ekki veita blað­inu óper­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar um hæstu end­ur­greiðslur til þing­manna út af akst­urs­kostn­að­inum, það er að segja án þess nöfn þing­mann­anna kæmu fram. 

Orðrétt sagði í tölvu­pósti frá blað­inu til skrif­stofu­stjóra Alþingis: „Mér finnst ein­kenni­legt að skrif­stofa Alþingis neiti að verða við þeirri beiðni að gefa upp hversu há hæstu akst­urs­gjöld ein­stakra þing­manna eru. Þá á ég ekki við að skrif­stofan gefi upp nöfn þeirra. Aðeins að skrif­stofan segi. Þing­maður X var með Y há akst­urs­gjöld á síð­asta kjör­tíma­bili og svo Z á þessu. Og listi svo upp hæstu gjöldin - engin nöfn. Hvernig getur þetta verið þvert á regl­urnar hjá ykkur þar sem engar per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar er að finna þarna? Með því að veita þessar upp­lýs­ingar mun skrif­stofa gera sitt til að halda almenn­ingi upp­lýstum um með­ferð fjár­muna á Alþingi - kannski er ekk­ert óeðli­legt á ferð­inni eins og þú segir - á sama tíma og þingið stendur vörð um einka­hags­muni nafn­greindra þing­manna. Ég bið því aftur um að veita Stund­inni þessar upp­lýs­ingar. Ef ekki óska ég eftir rök­stuðn­ingi fyrir synj­un­inni sem ég mun þá birta í sér­stakri umfjöllun. Mér finnst þetta ekki stand­ast skoðun hjá þér þar sem engar per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar verða í svör­unum sem ég er að biðja um.“

Skrif­stofu­stjóri Alþingis, Helgi Bern­ód­us­son, vildi hins vegar ekki veita þessar upp­lýs­ingar og vísað til fyrri rök­stuðn­ings um að akstur þing­manna í vinn­unni, á kostnað rík­is­ins, væri einka­mál þeirra. „Spurn­ingu þinni er ég áður búinn að svara. Þá fylgdi rök­stuðn­ingur með,“ sagði Helgi í tölvu­pósti til Stund­ar­innar þann 2. jan­úar.

Stundin kærði þessa nið­ur­stöðu Alþingis til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál í jan­úar og fékk þau svör í byrjun vik­unnar að kæru blaðs­ins hefði verið vísað frá þar sem upp­lýs­inga­lög næðu ekki til Alþingis. Þar sem nefndin starfar á grund­velli upp­lýs­inga­laga gat hún ekki tekið kæruna til efn­is­með­ferðar af skilj­an­legum ástæðum.  

Sjálf­krafa frá­vísunÚrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál vísar frá öllum kærum sem snúa að upp­lýs­inga­gjöf frá Alþingi þar sem upp­lýs­inga­lög ná ekki yfir starf­semi þings­ins. Þetta gerð­ist nú í febr­úar eftir að Stundin hafði kært nið­ur­stöðu skrif­stofu Alþingis að veita Stund­inni ekki upp­lýs­ingar um hæstu akst­urs­gjöld þing­manna.

Mikilvægi skýrra reglna og laga

Þessa til­tölu­lega skjóta afstöðu­breyt­ing Alþingis og sam­skipti fjöl­miðla við Alþingi út af akst­urs­gjöld­unum sýna meðal ann­ars hversu mik­il­vægt það er að skýrar reglur og lög verði sett um upp­lýs­inga­gjöf frá Alþingi um starf­semi þings­ins. Eins og er gilda engar eig­in­legar reglur eða lög um þessa upp­lýs­inga­gjöf og skrif­stofa Alþingis, og eða for­seti Alþingis, hafa getað tekið ein­hliða, per­sónu­legar ákvarð­anir um hvaða upp­lýs­ingar er við hæfi að birta og hvaða upp­lýs­ingar ekki. 

Engar reglu- eða laga­breyt­ingar hafa átt sér stað varð­andi hvernig upp­lýs­inga­gjöf frá Alþingi skuli háttað eftir að Helgi Bern­ód­us­son synj­aði beiðni Stund­ar­innar um upp­lýs­ingar um hæstu akst­urs­gjöld þing­manna og þar til Stein­grímur J. Sig­fús­son opin­ber­aði þessar upp­lýs­ingar eftir að þing­maður bað um þær. Stein­grímir virð­ist bara hafa fund­ist að það væri rétt, í nafni gagn­sæis, að birta þessar upp­lýs­ingar og boðar hann enn frek­ari breyt­ingar á þessu sviði á meðan skrif­stofu­stjóri Alþingis túlk­aði málið sem svo að honum væri óheim­ilt að veita þessar upp­lýs­ingar á grund­velli per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða.

Af þessu má álykta hið aug­ljósa: Annar skrif­stofu­stjóri Alþingis en Helgi Bern­ód­us­son hefði hugs­an­lega kom­ist að annarri nið­ur­stöðu en hann þegar Stundin bað um þessar óper­sónu­grein­an­legur upp­lýs­ingar, síð­ast í byrjun síð­asta mán­aðar. Þá má einnig spyrja og benda á hið aug­ljósa að annar for­seti Alþingis og íhalds­sam­ari en Stein­grímur J. Sig­fús­son hefði hugs­an­lega ekki svarað spurn­ingu Björns Levís Gunn­ars­sonar og veitt svo ítar­legar upp­lýs­ingar um akst­urs­gjöldin síð­ustu fjögur árin aftur í tím­ann. Af þessu sést að vegna skorts á lögum og reglum um upp­lýs­inga­gjöf Alþingis þá er þessi upp­lýs­inga­gjöf um starf­semi þjóð­þings heils lýð­ræð­is­ríkis háð mati, skoð­unum og eftir atvikum duttl­ungum þeirra starfs­manna sem gegna ákveðnum störfum og hlut­verkum innan þings­ins hverju sinni en ekki hlut­lægum reglum með stoð í lögum. Hið jákvæða við stöðu þess­ara mála er að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur boðað að upp­lýs­inga­lög muni í fram­tíð­inni einnig ná yfir starf­semi dóm­stóla og eins störf Alþingis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund
Fréttir

Siða­nefnd: Þór­hildur Sunna „skað­aði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.
Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Fréttir

Akst­urs­greiðslu­mál „ekki sam­bæri­leg“ Klaust­urs­máli og engin álita­efni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár