Leynd yfir 171 milljónar greiðslum til þingmanna

Einungis 16 þing­menn af 63 svör­uðu spurn­ingum um inn­heimt akst­urs­gjöld sín. Þingmenn geta keyrt á eigin bif­reiðum í kjör­dæmum sínum og inn­heimt kostnað frá Alþingi fyrir vikið. Kostn­aður við þetta kerfi er meiri en að leigja bíla­leigu­bíla fyrir þing­menn. Upp­lýs­ing­arnar eru sagðar „einka­hagir“.

Leynd yfir 171 milljónar greiðslum til þingmanna
Fáir veita upp­lýs­ingar Einungis einn þing­maður á Alþingi sem inn­heimt hefur akst­urs­gjöld á síð­ustu tveimur kjör­tíma­bilum vill veita upp­lýs­ingar um hversu há þessi gjöld eru. Þetta er Eva Pandóra Bald­urs­dóttir úr Pírötum. Myndin er tekin á Alþingi. Mynd: Bragi Þór Jósefsson

„Ég er dug­legur að heim­sækja fólkið í kjör­dæm­inu,“ segir Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, aðspurður um hvað hann hafi sent Alþingi háa reikn­inga vegna akst­urs á bif­reið sinni á síð­asta kjör­tíma­bili. Ásmundur neitar að gefa upp­lýs­ingar um hversu háar fjár­hæðir hann fékk end­ur­greiddar en svip­aða sögu má segja um ansi marga aðra þing­menn. 

Stundin sendi fyr­ir­spurn um þetta á alla núver­andi þing­menn á Alþingi Íslend­inga og var ein­ungis einn þeirra sem hefur inn­heimt akst­urs­gjöld sem sendi blað­inu sund­ur­lið­aðar upp­lýs­ingar um þetta, Eva Pandóra Bald­urs­dóttir úr Pírötum. Í svörum Evu Pandóru kemur fram að hún leigði sér bíla­leigu­bíl vegna starfa sinna og inn­heimti svo akst­urs­gjöld til að greiða fyrir hann; inn­heimt akst­urs­gjöld hennar í fyrra og í ár voru rúm­lega 52 krónum lægri en rúm­lega 680 þús­und króna akst­urs­gjöldin sem hún inn­heimti. Aðrir hafa ekki svarað spurn­ing­unum með sund­ur­lið­uðum hætti. Þó er ljóst að fjöldi þing­manna hefur nýtt sér þessa heim­ild til greiðslu úr rík­is­sjóði.

Skattfrjálsar greiðslur til þingmanna

Á síð­asta kjör­tíma­bili og það sem af er þessu hefur Alþingi greitt þing­mönnum rúm­lega 171 milljón króna vegna akst­urs þeirra á eigin bif­reiðum í kjör­dæmum sínum sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá skrif­stofu Alþingis. End­ur­greiðsl­urnar eru skatt­frjálsar og eru skil­greindar sem end­ur­greiddur kostn­aður. Hinn mögu­leik­inn sem þing­menn hafa á ferða­lögum sínum um kjör­dæmi sín er að nota bíla­leigu­bíla. 

Kostn­að­ur­inn við end­ur­greiðsl­urnar til þing­manna er hins vegar umtals­vert meiri en að nota bíla­leigu­bíla og hefur skrif­stofa Alþingis beint þeim til­mælum til þing­manna að þeir noti frekar bíla­leigu­bíla þegar því verður komið við, sam­kvæmt Helga Bern­ód­us­syni, skrif­stofu­stjóra Alþingis: „Skrif­stofa Alþingis hefur jafnan reynt að svara fyr­ir­spurnum fjöl­miðla um rekstur þings­ins og greiðslur fyrir alþing­is­kostnað bæði fljótt og greið­lega, alveg eins og tök eru á að keyra út úr bók­haldi og vinna þær upp­lýs­ingar. Erfitt er að áætla sparnað með því að nota bíla­leigu­bíla, en hann gæti orðið ein­hver. Bíla­leiga hefur lækkað mjög mikið á und­an­förnum árum og bíla­úr­valið auk­ist. Það er ástæðan fyrir því að lækka má kostnað við ferðir þing­manna. Því verður þó ekki alltaf komið við.“

Kostn­aður Alþingis vegna greiðslna til þing­manna út af notkun þeirra á eigin bílum hefur lækkað á liðnum árum, til dæmis var þessi kostn­aður tæp­lega 52 millj­ónir árið 2014 en tæp­lega 38 millj­ónir króna árið 2015. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund
Fréttir

Siða­nefnd: Þór­hildur Sunna „skað­aði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.
Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Fréttir

Akst­urs­greiðslu­mál „ekki sam­bæri­leg“ Klaust­urs­máli og engin álita­efni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár