Utanríkisráðuneytið útvistar þjónustu til Samtaka atvinnulífsins fyrir 200 þúsund krónur á mánuði

Hags­muna­sam­tök fyr­ir­tækja fá 2,4 millj­ónir frá hinu opin­bera fyrir hags­muna­gæslu erlendis.

Utanríkisráðuneytið útvistar þjónustu til Samtaka atvinnulífsins fyrir 200 þúsund krónur á mánuði

Áætlaður kostn­aður vegna sam­starfs­samn­ings utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við Samtök atvinnu­lífs­ins er 200 þús­und krónur á mán­uði, eða 2,4 millj­ónir á samn­ings­tím­anum. Þetta kemur fram í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. 

Fram kom í frétta­til­kynn­ingu þann 26. jan­úar síð­ast­lið­inn að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra og Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, hefðu und­ir­ritað samn­ing um sam­starf stjórn­valda og SA um efl­ingu þjón­ustu við útflutn­ings- og mark­aðs­mál íslenskra fyr­ir­tækja í þeim til­gangi að „auka slag­kraft þeirra á erlendum mörk­uðum“.

Bergþóra Hall­dórs­dóttir, lög­fræð­ingur og sér­fræð­ingur á sam­keppn­is­hæfn­isviði Samtaka atvinnu­lífs­ins, mun gegna hlut­verki erind­reka um sam­starf atvinnu­lífs­ins og utan­rík­is­þjón­ust­unnar. 

Stundin fékk samn­ing­inn afhentan frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu á grund­velli upp­lýs­inga­laga, en hann má sjá í heild hér að neðan:

Samn­ingur utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við Samtök atvinnu­lífs­ins bar á góma í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma í dag. „Ég tel það mikið fagn­að­ar­efni að ætl­unin er að auka og styrkja utan­rík­is­við­skipta­þjón­ustu okkar Íslend­inga og einnig það að hæst­virtur utan­rík­is­ráð­herra hefur skrifað undir sam­komu­lag, m.a. við Samtök atvinnu­lífs­ins, í þá veru að fela þeim ákveðin verk­efni, ákveðna ráð­gjöf og fleira sem teng­ist því að efla utan­rík­is­við­skipta­þjón­ust­una,“ sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. „Ég tel þetta mikið fagn­að­ar­efni. Auðvitað vakna samt ákveðnar spurn­ingar um það hvaða stefnu rík­is­stjórnin hefur mótað í þessa veru.“ Þá beindi hún nokkrum spurn­ingum til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra:

„Ætlar rík­is­stjórnin að fela önnur verk­efni á sviði utan­rík­is­við­skipta­þjón­ustu og utan­rík­is­þjón­ustu einka­að­ilum? Er það stefna rík­is­stjórn­ar­innar? Ég mun ekki fara mjög gegn því en ég vil bara fá svar um skýra stefnu. Er ætl­unin að leita til ann­arra hags­muna­að­ila en Samtaka atvinnu­lífs­ins sem eru mjög öflug sam­tök? Ég þekki það mjög vel eftir að hafa starfað þar í þrjú ár. Mun rík­is­stjórnin stefna að því að leita til ann­arra hags­muna­að­ila eins og ASÍ eða einka­að­ila hvað varðar það að efla utan­rík­is­við­skipta­þjón­ust­una sem við viljum öll gera?“ 

Þá spurði hún hvort for­sæt­is­ráð­herra væri fylgj­andi því „að færa aukin verk­efni ráðu­neyt­anna, eins og utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, til hags­muna­að­ila, til einka­að­ila úti í bæ, sem eru öfl­ugir“. Katrín Jak­obs­dóttir nefndi í svari sínu að sjálf hefði hún setið í rík­is­stjórn þegar Íslands­stofa var sett á fót með það fyrir augum að efla sam­starf ólíkra hags­muna­að­ila og stjórn­valda um utan­rík­is­við­skipti. Hún liti ekki svo á að með samn­ingum á borð við þann sem gerður var við Samtök atvinnu­lífs­ins væri verið að færa utan­rík­is­þjón­ustu í hendur einka­að­ila heldur væri ein­vörð­ungu verið að fela einka­að­ilum til­tekin verk­efni og stuðla að heilla­væn­legu sam­starfi við atvinnu­lífið. Þor­gerður Katrín fagn­aði þessum svörum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár