Rómaveldi var á sínum tíma öflugasta stórveldi heimsins og fyrst og fremst byggt á ógnarsterkum hernum. Rómversku hermennirnir marseruðu af stað frá borg sinni nokkur hundruð árum fyrir Krists burð og hættu ekki fyrr en þeir höfðu lagt undir sig öll lönd við Miðjarðarhafið og rúmlega það.
Í bíómyndum sjáum við þá, hávaxna og herðibreiða og fagurbrynhosaða, þar sem þeir ryðja öllum óvinum burt í krafti líkamsburða, fullkominna vopna og hernaðartækni.
Og sú mynd er vissulega rétt, nema kannski að einu leyti.
Rómverjar voru ekki hávaxnir.
Rómverjar tóku völd á Ítalíuskaga á árunum 400-200 fyrir Krist. Þar höfðu ýmsar þjóðir búið, margar vissulega náskyldar Rómverjum. Meðalhæð karlmanna almennt á skaganum er talin hafa verið rúmlega 170 sentímetrar.
Þegar Rómverjar höfðu lagt skagann undir sig, gert Róm sjálfa að stærstu borg heims og breitt út borgarmenningu sína hvarvetna, þá brá svo við að íbúar á öllum skaganum en þó sérstaklega í borgunum minnkuðu.
Á hátindi rómverska lýðveldisins og í upphafi keisaratímans var meðalhæð rómverskra karlmanna komin niður í 164 sentímetra.
Og rómverskar konur voru að meðaltali 152 sentímetrar. (Jafnháar og Kourtney Kardashian, ef það segir eitthvað. Kim er hins vegar 159 sentímetra há.)
Rómversku hermennirnir, sem fóru ósigrandi um allan hinn þekkta heim, hafa verið umtalsvert minni en flestir þeirra sem þeir lögðu undir sig.
Enda tala sagnaritarar þeirra mikið um hve tröllvaxnir til dæmis hinir germönsku stríðsmenn í þýsku skógunum hafi verið. Þessi tröll hafa þá líklega verið um og rétt yfir 170 sentímetrar á hæð.
Þegar smæð Rómverja fór að verða ljós fóru menn að leita að ástæðum smækkunarinnar. Upphaflega var talið að hana mætti rekja til vannæringar því rómversk alþýða hefði lifað svotil eingöngu á brauði og ekki fengið þau prótein sem þyrfti til að fullum líkamsvexti væri náð.
Nýjustu rannsóknir benda hins vegar til þess að jafnvel fátækt alþýðufólk hafi fengið mun stærri hluta af næringu sinni frá kjöti og þó aðallega fiski, heldur en áður var talið.
Einhæft mataræði og vannæring vegna þess er því ekki einhlít skýring.
Nýjar rannsóknir á beinum Rómverja leiða hins vegar í ljós að borgarmenningin, sem breiddist út um Ítalíu og síðan mun víðar með Rómverjum, hafi leitt til þess að íbúar heimsveldisins voru sífellt undirlagðir af allskonar pestum sem höfðu áhrif á líkamsvöxt.
Enda brá svo við að þegar Rómaveldi á Ítalíu féll árið 476 eftir Krist og borgir minnkuðu stórkostlega og lifnaðarhættir breyttust, þá stækkuðu íbúar aftur á til þess að gera skömmum tíma.
Þess má geta að Napóleon Frakkakeisari sem var „alræmdur“ fyrir hve lítill hann var 1.300 árum eftir fall Rómaveldis, hann var 169 sentímetrar að hæð eða 5 sentímetrum hærri en meðal Rómverjinn.
Og þeir Tom Cruise og Lionel Messi, sem eru á vorum dögum frægir fyrir að vera lágvaxnir, þeir eru báðir 170 sentímetrar - eða sex sentímetrum hærri en vanalegur rómverskur stríðsmaður fyrir 2.000 árum.
Byggt á The Fate of Rome eftir Kyle Harper, bls. 72-84, o.fl.
Athugasemdir