Þegar Chavez komst til valda – og síðan Maduro

Ástandið í Venesúela hefur verið slæmt síðustu ár og óstjórn Maduro forseta kennt um. Hvort það muni skána nú þegar honum verið hrint úr sessi er óvíst en hér er fjallað um hvað varð til þess að hann, og þó öllu heldur forveri hans, komst til valda.

Hugo Chavez fagnar sigri í forsetakosningum í Venesúela 1998.
Hugo Chavez fagnar sigri í for­seta­kosn­ingum í Venes­ú­ela 1998. Til hægri er einn af laut­inöntum hans þá og síðar, Nicolás Maduro.

Alkunna er að Spán­verjar lögðu undir sig alla Mið- og Suður-Ameríku strax í kjölfar landa­funda þeirra um 1500, nema hvað Portúgalir réðu Brasilíu og Bretar, Frakkar, Hollendingar og jafnvel Danir réðu ýmsum eyjum Karíbahafs.

Eitt héraða þeirra var Venesúela sem varð svo einna fyrst þeirra til að lýsa yfir sjálf­stæði frá Spán­verjum í upphafi 19. aldar og fullt sjálf­stæði var fengið um 1830. Hin nýfrjálsu ríki rómönsku Ameríku hugðust koma á frjáls­lyndum lýðræðis­ríkjum að hætti nágranna síns í norðri, Banda­ríkjanna, en af ýmsum ástæðum náði lýðræði ekki að skjóta þar djúpum rótum.

Venesúela var næstu hálfa aðra öldina leik­soppur valda­mikilla herforingja, einræðis­herra og auðugra land­eigenda. Þeir rökuðu að sér auðæfum, ekki síst eftir að í ljós kom upp úr 1910 að gríðarlegar olíu­lindir voru í landinu, og sátu yfir hlut alþýðunnar sem mátti sætta sig við mikla fátækt og oft harðneskjuleg mann­réttinda­brot.

Sádi-Venesúela

Árið …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár