Mistókst að brenna bandaríska fánann á vel heppnuðum mótmælum

Mót­mæl­endur komu saman fyrir utan banda­ríska sendi­ráðið síð­degis í gær til þess að mót­mæla írans­stríði. Eins mætti fámennur hópur til þess að styðja við Banda­ríkin. Fána­brenna mistókst herfi­lega.

Mistókst að brenna bandaríska fánann á vel heppnuðum mótmælum
Fána­brenna Mót­mæl­endur komust að þeim bitra sann­leik í gær að það er eng­inn hægð­ar­leikur að brenna banda­ríska fán­ann. Mynd: Golli

„Það er rétt að fána­brennur eru enn ólög­legar hér á landi, en kannski pínu írónískt að að í Banda­ríkj­unum er slíkt hluti af lög­vernd­uðum rétti manna til mót­mæla,“ segir Stefán Pálsson, en heið­ar­leg til­raun var gerð til þess að brenna banda­rískan fána á mót­mælum hern­að­ar­and­stæð­inga fyrir utan banda­ríska sendi­ráðið síð­degis í gær.

Tilefnið var stríðs­rekstur Ísraela og Banda­ríkja­manna gegn Írönum, en til­kynnt var um vopna­hlé skömmu eftir að Donald Trump hót­aði að eyða allri íranskri sið­menn­ingu af yfir­borði jarðar opn­aði ríkið ekki aftur fyrir skipa­um­ferð um Hor­mússundið.

Um 30 manns komu saman í gær fyrir utan sendi­ráðið til þess að láta í ljós óánægju sína með stríðið, en þrír ein­stak­lingar komu einnig saman til þess að sýna banda­rískum og ísra­elskum yfir­völdum stuðn­ing.

Stefán PálssonStefán Pálsson liðs­maður VG og hern­að­ar­and­stæð­inga hélt ræðu á fund­inum.

Stefán gerir lítið …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár