Andrew Mountbatten-Windsor: Meira að segja nöfn hans eru tilbúningur

Sú var tíðin að hann nefnd­ist ein­ungis Andrés prins. Núna heitir hann Andrew Mountbatten-Windsor og á í vök að verj­ast í líf­inu, enda greini­lega ekki mjög fínn pappír. Meira að segja ætt­ar­nöfnin hans eru hálf­gerð blekk­ing.

Andrew Mountbatten-Windsor: Meira að segja nöfn hans eru tilbúningur

Það hefur sífellt hallað undan fæti hjá mann­inum sem kall­ast nú Andrew Mountbatten-Windsor. Stóra bróður hans fannst hann ekki eiga skilið að bera tign­ar­heitið her­tog­inn af York og þaðan af síður prins. Þá var til­kynnt að hann myndi eft­ir­leiðis kall­aður þessum eft­ir­nöfnum tveim með band­striki, Mountbatten-Windsor.

En það er spurn­ing hvort þessi tvö sam­tengdu ætt­ar­nöfn séu ekki, þegar að er gáð, alveg jafn mikil blekk­ing og flest annað sem mann­inum við­víkur.

Skoðum fyrst nafnið Windsor.

Árið 1714 lést Anna Breta­drottn­ing barn­laus. Að svo færi hafði lengi legið fyrir og Bretar höfðu haft mörg ár til að finna arf­taka Önnu þegar þar að kæmi. Árið 1701 hafði Soffía nokkur, sjö­tug ekkja kjör­furstans í rík­inu Hanover í Þýska­landi loks verið útnefnd rík­is­arfi.

Hún hafði alið allan sinn aldur í Þýska­landi og tal­aði enga ensku en hafði það sér til ágætis að vera dótt­ur­dóttur Jakobs kon­ungs 1. …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Skemmtileg lesning um nafnaraunir "eðalborinna". :)
    0
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Þetta prinsa- og prinsipissudót er alveg stórskemmtilega óáhugavert og ódrepandi áhugi sauðsvarts almennings á þessu pakki er ótrúlega merkilegt rannsóknarefni.
    1
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Ef hægt er að draga einhvern lærdóm úr þessu þá er það sá að evrópskur aðall var og er - evrópskur. Á meðan aðhýlltist almúginn þjóðernisstefnu og skemmti sér með því að drepa hver annan í tilgangslausum stríðum í nafni sjálfstæðis þjóðar sinnar.
    0
  • Guðný Bjarnadóttir skrifaði
    Viktoría og Albert voru tvímenningi ( systkinabörn) ekki þremenningar
    1
  • Helgi Hauksson skrifaði
    Flott nafn Mountbatten, flott þýðing á Battenberg og flott lending í erfiðri stöðu þýskra nafna í stríði við Þjóðverja.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár