Hvernig mundi Homo Erectus spjara sig í nútímanum? En Neanderdalsmaðurinn?

Homo Sapiens átti án vafa mestan þátt í að frændur hans dóu út á sínum tíma. En ef skyldar tegundir hefðu náð að lifa af, gætu þær plumað sig í nútíma­samfélagi sem við höfum skapað?

Homo Erectus, Homo Neanderthalensis, Homo Erectus.
Homo Erectus, Homo Neand­ert­halensis, Homo Erectus. Gervi­greindin ChapGpt skóp þessa mynd eftir að fengið fyr­ir­mæli um að búa til mynd af mann­teg­und­unum þremur í nútíma­legum jakka­fötum og byggja á myndum af teg­und­unum sem auð­velt er að finna á net­inu. Myndin er nokkuð góð nema það er ill­mögu­legt að fá for­ritið til að skilja hvað Erectus var höku­laus!

Á undan­förnum tveim áratugum hafa orðið afar miklar breytingar á þeirri mynd sem við gerum okkur af fortíð mann­kynsins sem tegundar. Eftir að menn höfðu loks í upphafi 20. aldar sætt sig við að maðurinn væri „kominn af öpum“ (sem er raunar villandi orðalag) þá var mynd fortíðarinnar til tölulega einföld.

Frá öpum þróuðust mannapar og svo apamenn sem lærðu að ganga uppréttir og nota einföld tól og svo birtist tegundin Homo Erectus fyrir tveim milljónum ára og frá þeirri tegund þróaðist svo Neanderdalsmaðurnn frumstæði og þar næst við, Homo Sapiens.

Einfalt mál, ein tegund tók við af annarri.

Nú vitum við að málið er miklu flóknara en þetta og oft voru margar mann­tegundir uppi samtímis.

En mikilvægi Homo Erectus verður aldrei ofmetið.

Langlífasta tegundin

Hann kom til skjalanna fyrir rúmlega tveim milljónum ára og dreifðist um Afríku, Evrópu og Asíu, sem …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár