Ríkisstjórnin skiptir um kúrs

Horfið verði frá stefnu sem felur í sér mann­fjölgun án hag­vaxtar.

Ríkisstjórnin skiptir um kúrs
Kristrún Frosta­dóttir Kynnti í gær fyr­ir­hug­aða atvinnu­stefnu. Mynd: Golli

Rík­is­stjórnin kynnir í dag nýja atvinnu­stefnu og aðgerða­á­ætlun vegna hennar. Þetta er í fyrsta sinn sem opin­ber atvinnu­stefna er kynnt og með henni á að hverfa frá fyrri stefnu. Aðgerða­á­ætl­unin er í 35 liðum.

„Við erum mjög stoltar af þessu. Það er rosa­leg vinna sem liggur á bak­við þetta,“ sagði Kristrún á blaða­manna­fundi rétt í þessu. „Þetta er bara kon­kret,“ sagði hún.

Lítill sem enginn hagvöxtur

Í atvinnu­stefn­unni er tekið fram að árangur hag­stjórn­ar­innar hafi verið lít­ill síð­ustu ár. Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir í ávarpi að horfið verði frá fyrri atvinnu­stefnu.

„Hag­vöxtur á mann hefur verið afar tak­mark­aður á und­an­förnum 5 árum og lak­ari á Íslandi en í helstu sam­an­burð­ar­löndum. Brýnt er að snúa þeirri þróun við,“ segir þar. „Hag­vöxtur sem drif­inn er af fólks­fjölgun skapar álag á opin­bera þjón­ustu og alla helstu inn­viði. Mik­il­vægt er að stuðla að því að þróun atvinnu­lífs sé í jafn­vægi við inn­viði og umhverfi.“

„Þá hefur hlut­fall inn­flytj­enda á Íslandi tvö­fald­ast á einum ára­tug og farið úr um 9% í 19%. Þetta hefur sam­fé­lags­legar afleið­ingar,“ segir Kristrún í ávarpi atvinnu­stefn­unnar.

Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni er kveðið á um orku- og inn­viðaum­breyt­ingu, öfl­ugan mannauð, efl­ingu vís­inda og nýsköp­unar og sátt um öfl­ugar auð­linda­greinar.

Þar er boðað að 1,1 millj­arður króna verði lagður í þróun gervi­greindar og„mark­vissan stuðn­ing stjórn­valda við rann­sóknir, þróun og inn­leið­ingu tækni­lausna til kolefn­is­föng­unar við upp­runa los­unar“.

Þá til­kynnti rík­is­stjórnin sam­tímis um lækkun á virð­is­auka­skatti elds­neytis úr 24% í 11% frá 1. maí til 31. ágúst til að bregð­ast við verð­hækk­unum eftir Írans­stríðið.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Nú ættu aðilar vinnumarkaðarins, að því opinbera meðtöldu, að sýna þá skynsemi og þor, að semja um að falla frá öllum umsömdum launahækkunum nema á lægstu laun. Að viðhalda innistæðulausum kaupmætti, eða jafnvel auka hann, er ekkert annað en meiri olía á verðbólgubálið. Eins og ætíð, kemur það verst niður á þeim launalægstu og ungu fólki að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið. Þetta er fullreynt. Táknrænt innlegga í málið væri að þingmenn, ráðherrar, sveitarstjórnarfulltrúar og bæjarstjórar lækkuðu laun sín samtímis.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár