Eltihrellir sagður hrella ólögráða barn og lýsa föður látinn í Morgunblaðinu

Íris Helga Jón­atans­dóttir er sökuð um að hafa birt falska dán­ar­til­kynn­ingu í Morg­un­blað­inu í dag. Maðurinn þurfti að sverja af sér að vera lát­inn og nafn­greinir hana og móður hennar í tengslum við málið.

Eltihrellir sagður hrella ólögráða barn og lýsa föður látinn í Morgunblaðinu
Íris Helga Jón­atans­dóttir kom fram í hlað­varpi á vegum Brot­kasts á síð­asta ári þar sem hún hélt því fram að ásak­anir á sínar hendur væru ósannar. Mynd: Brotkast

Morg­un­blaðið hefur beðist afsök­unar á að hafa birt dán­ar­til­kynn­ingu manns sem var ekki lát­inn í blaði sínu í morgun, eftir að hafa verið beitt blekk­ingum. Maðurinn sem um ræðir heitir Sölvi Guð­mund­ar­son og hefur áður stigið fram vegna ásak­ana á hendur Írisi Helgu Jón­atans­dóttur, fyrir að beita sig og ólög­ráða dóttur sína umsát­ursein­elti. Hann hefur að auki kært Írisi til lög­reglu vegna þessa, en að minnsta kosti níu ein­stak­lingar hafa leitað til lög­reglu vegna ofsókna og umsát­ursein­eltis henni tengdu og sjö kært hana vegna slíks áreitis.

Sölvi birti í morgun færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir frá and­látstil­kynn­ing­unni sem birt­ist í Morg­un­blað­inu.

Sölvi Guð­mund­ar­sonFregnir af and­láti Sölva eru væg­ast sagt ýktar.

„Kæru ætt­ingjar og vinir, þið sem hafið verið að senda skila­boð og athuga hvort ég sé í alvöru dáinn, þá er svo alls ekki og er ég sprell­lif­andi. …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Við erum alltaf að velja okkur stjórnvöld sem lofa lægri sköttum þannig að ekkert verður úr uppbyggingu sem snýr að andlega veikum. Mál eru látin niðurfalla hvað eftir annað vegna kunnáttu, aðstöðuleysis og skorts á fjármagni. Við dælum þess í stað út geðlyfjum til þess að spara svo lækka megi fjárframlög til þessara mála.
    2
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Veikindi fólks er af ýmsum toga. Suma þarf hreinlega loka inni.
    Fyrst móðirin er með í þessum ,,leik" þá leggur maður saman 2+2 og fær út 4

    Þessar mæðgur þurfa mikla hjálp.🙏
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Umsáturseinelti

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár