Af hverju er öll þessi olía í Venesúela?

Valdarán eða valda­ránstilraun Trumps í Venesúela snýst um olíu, það er ljóst. En hvað er öll þessi olía að gera í iðrum landsins?

Lífið í Venesúela fyrir 100 milljónum ára.
Lífið í Venes­ú­ela fyrir 100 millj­ónum ára. Landið var þá að mestu undir sjáv­ar­máli. Þessi sjáv­ar­dýr urðu hluti olíu­auð­lind­anna sem nú er bit­ist um þó megnið af olí­unni sé raunar myndað af örsmáum þör­ungum.

Ég hef sannfrétt að þið þráið að vita hvernig á því stendur að Venesúela situr á stærstu olíu­lindum í öllum heiminum en mun minna er af olíu í nágranna­ríkinu Kólumbíu.

Munurinn er sannarlega himin­hrópandi.

Þótt Kólumbía og Venesúela deili landa­mærum, þá situr Venesúela á um 304 milljörðum tunna af olíu­birgðum, sem vitað er um, á meðan Kólumbía á aðeins um 2 milljarða. Þetta þýðir að Venesúela á um 150 tunnur fyrir hverja eina sem Kólumbía á.

Þegar kemur að vinnslunni snýst dæmið við á óvæntan hátt.

Vegna pólitísks óstöðug­leika, viðskipta­banna og skorts á viðhaldi hafa innviðir Venesúela drabbast niður. Þrátt fyrir þessar óskaplegu olíu­lindir, sem eru meiri en lindir Sádi-Arabíu, dæla Venesúela­menn nú aðeins upp um 800.000 til 900.000 tunnum á dag.

Kólumbíu­menn, sem eiga örlítið brot af birgðum Venesúela, dæla hins vegar upp næstum jafn miklu, eða um 750.000 tunnum á dag.

Kólumbía vinnur því af mikilli natni úr sínum litlu lindum á meðan „risinn í austri“ nær aðeins að nýta örfá prósent af olíu­hafinu undir yfir­borðinu.

En magnið segir raunar aðeins hálfa söguna; gæðin eru nefnilega allt önnur. Olían í Kólumbíu er að miklu leyti „létt“ eða „miðlungs­þung“, sem kallað er, sem þýðir að hún er þunn­fljótandi og auðveld í vinnslu. Hins vegar er stærsti hlutinn af olíu Venesúela „ofurþung“ olía. Hún er svo seig að hún minnir helst á fljótandi malbik eða sýróp.

Það þarf að hita hana upp eða blanda hana með þynnri efnum bara til að geta dælt henni eftir leiðslum til frekari vinnslu.

Þetta gerir olíuna í Venesúela mun dýrari og flóknari í hreinsun en þá kólumbísku.

Fjarlægðin frá fjöllunum

En hvernig stendur á því að nágranna­ríki, sem virðast svipuð að allri jarðfræði, búa yfir svo mismun­andi magni?

Ég fór á stúfana og kannaði málið fyrir ykkur.

Ástæðan er í örstuttu máli fjarlægð Venesúela frá Andesfjöllum.

Uppruna olíunnar má rekja til Krítar­tímabilsins í jarð­sögunni (sem var við lýði fyrir um 90 til 120 milljónum ára). Á þeim tíma var norður­hluti Suður-Ameríku ekki fjall­lendi heldur grunnt, hlýtt innhaf við miðbaug.

Þarna ríkti hið fullkomna „dauðans jafnvægi“ í óralangan tíma og gríðarlegt magn af svifi og þörungum lifði þar og dó og sökk til botns.

En á botninum varð sjórinn afar súrefnis­snauður með tímanum.

Lítið súrefni

Ástæðan fyrir súrefnis­leysinu er flókin en snýst um hve heitt var á svæðinu í mjög, mjög langan tíma. Þörunga­blóminn í þessu grunna hafi var gríðar­legur.

Magn hinna dauðu þörunga sem féllu niður á botn var svo mikið að bakteríurnar, sem brutu þá niður og átu, þær eyddu í raun og veru stórum hluta súrefnisins á botninum.

Og vegna þess hve heitt var, þá blandaðist sjórinn lítið. Dýpt þessa hafs var aðeins um 50-200 metrar en það var eigi að síður mjög lagskipt.

Súrefnis­ríkt yfirborðs­vatn náði aldrei niður á botninn til að endurnýja það súrefni sem bakteríurnar notuðu við veisluhöld sín niðri við og á botninum.

Þær höfðu á endanum notað næstum hvert einasta súrefnis­mólekúl í botn­laginu til að „melta“ þessa ofgnótt af mat.

Þegar súrefnið kláraðist, þá gátu bakteríurnar (og önnur dýr) ekki lengur lifað þarna niðri.

Niður­brotið stöðvaðist.

Þörungarnir í yfirborðs­sjónum, sem héldu nátt­úrlega áfram að falla dauðir til botns, „rotnuðu“ nú ekki í raun, heldur súrnuðu eða breyttust í vaxkennt efni (kerógen).

Andesfjöll rísa

Nú gerðist það næst að fyrir um 65 milljónum ára (um svipað leyti og loftsteinn grandaði risa­eðlunum) þá byrjuðu Andesfjöllin að rísa á vestur­jaðri Suður-Ameríku­flekans.

Það tók tugi milljóna ára og raunar eru fjöllin enn að rísa. En þegar fjöllin risu þrýstu þau setlögunum á botni hins gamla grunna innhafs í austri niður á við með þunga sínum en huldu þau um leið með efnum sem veðruðust jafnóðum af fjöllunum.

Þarna myndaðist mikill þrýstingur og hiti og kerógenið tók að ummyndast í olíu.

Olían tók svo að leita í einskonar „hvolf“ eða „skálar“ neðanjarðar.

Örlaga­ríkasti tíminn var fyrir um 20 milljónum ára þegar Andes-fjall­garðurinn var að mestu risinn og gamli hafs­botninn (Kólumbía og síðan Venesúela) reis nú líka úr sjónum.

Nálægt fjöllunum voru hamfarir miklar (en vissulega afar hægar) og fjöllin „brutu“ skálarnar fyrr­nefndu svo olían, sem þarna hafði verið að myndast, seytlaði hingað og þangað.

Hnausþykk olía

Þess vegna er svo agnar­lítið af olíu í Kólumbíu miðað við Venesúela. Fjær fjöllunum, í Venesúela, eru skálarnar hins vegar óskaddaðar að mestu og því er svo miklu meira magn olíu þar.

Það hafði líka sitt að segja að þar rakst olían á hinn litla en harða Gvæjana-skjöld, sem kallaður er, og komst ekki lengra, heldur safnaðist enn betur fyrir í risa­stórum neðan­jarðarlónum.

En þar sem þessi mikla olía lenti nálægt yfir­borðinu, komst hún í snertingu við grunnvatn og bakteríur sem átu úr henni léttustu efnin. Eftir varð þessi hnaus­þykka og seiga olía sem Venesúela er þekkt fyrir.

Ólíkt þunn­fljótandi olíunni sem leynist dýpra í kólumbískri jörð.

Þess má svo geta að lokum að nýlega hafa fundist gríðar­lega miklar olíu­lindir í hafinu skammt frá ströndum nágranna­ríkis Venesúela í austri, Gvæjana, og eru þær af svipuðum meiði og olían í Venesúela. Gvæjanska olían er þó mun þynnri og því auðveldari til vinnslu en olían í Venesúela.

Rétt eins og kólombíska olían.

Líklegt er talið að enn meiri lindir muni brátt finnast út af ströndum Gvæjana og þar sem íbúar landsins eru aðeins 800.000 gæti svo farið að þeir verði orðnir hlutfalls­lega ríkasta þjóð heimsins áður en við er litið.

Ef þeir gæta þess að láta ekki stela frá sér olíunni!

***

Listi yfir þau tíu lönd sem eiga mest af ennþá óunninni olíu (tölurnar sýna milljarða tunna):

1.  Venesúela  304 – Stærsti hlutinn er „ofurþung“ olía í Orinoco-beltinu.

2.  Sádi-Arabía  298 — Var lengi í fyrsta sæti; olían þar er mjög ódýr í vinnslu. Því eru olíu­birgðir Sáda (ennþá að minnsta kosti) verð­mætari en birgðir Venesúela.

3.  Kanada  168 — Mestmegnis fólgin í „olíusandi“ í Alberta og því álíka seig og olían í Venesúela.

4.  Íran  156 — Útflutningur erfiður vegna viðskipta­banna.

5.  Írak  145 — Á mikið af ódýrri, léttri olíu sem enn á eftir að kanna að fullu.

6.  Rússland  108 — Mest af olíunni er í Síberíu; nýjar lindir eru að finnast á norðurslóðum.

7.  Kúveit  102 —  Örsmátt land en gríðar­lega olíuríkt miðað við stærð.

8.   Sameinuðu arabísku fursta­dæmin   98 — Abu Dhabi á um 90 prósent af þessum birgðum.

9.  Banda­ríkin  69  —  Birgðir hafa aukist mikið vegna nýrrar tækni við að vinna olíu úr skífu­steini.

10.  Líbýa  48 —  Mestu olíu­birgðir í Afríku.

Brasilía myndi lenda í 15. sæti á þessum lista með 13 milljarða tunna, Gvæjana í 17. sæti með 11 milljarða og Noregur í 22. sæti með 7,6. Kólumbía situr í 35. sæti með sínar tunnur.

Kjósa
63
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Greg Hill skrifaði
    Heillandi, frábær grein. Og, ... kæri guð, ég bið þig, er einhver möguleiki að næsta reikistjarna geti ekki haft alveg eins mikla olíu á sér?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár