Samningatækni Trumps: Ógna, bakka og lýsa sigri

Banda­ríkja­for­seti er vændur um TACO-aðferð­ina, en getur samn­inga­tækni hans átt sér myrk­ari útkomu?

Samningatækni Trumps: Ógna, bakka og lýsa sigri
Ásjóna Trumps Andlit Banda­ríkja­for­seta prýðir aug­lýs­inga­skilti við Times Square í New York, í aug­lýs­ingu sem greidd var af Lincoln Project, repúblikönum sem eru and­snúnir for­set­anum og gagn­rýna stríð hans við Íran. Mynd: AFP

Donald Trump lýsti yfir „algerum“ sigri eftir vopna­hlé við Íran fyrr í vik­unni, rétt eins og íranska klerka­stjórnin. En gagn­rýnendur segja að sam­komu­lagið sé nýtt dæmi um þá kenn­ingu þeirra að for­set­inn harð­orði „missi alltaf kjarkinn“.

Á 12 taugatrekkj­andi klukku­stundum fór Trump frá því að vara við því að „heil sið­menn­ing muni deyja“ yfir í að fagna óljósu sam­komu­lag­inu sem stórum degi fyrir heims­frið­inn.

Veru­leik­inn á vett­vangi sýndi hins vegar enn óstöðugt tveggja vikna vopna­hlé með fjölda ósvar­aðra spurn­inga – ekki síst um það hvort Trump hafi nokkurn tíma ætlað að fylgja eftir heimsenda­hót­unum sínum.

„Trump for­seti reyn­ist vera sífellt óút­reikn­an­legra afl og óáreið­an­legur banda­maður,“ sagði Peter Loge, for­stöðu­maður fjöl­miðla­skóla George Washington-háskól­ans, við frétta­stofu AFP.

Fyrr­ver­andi við­skipta­jöf­ur­inn og höf­undur „Art of the Deal“ hefur lengi kosið samn­inga­tækni sem byggir á að hámarka vog­ar­afl til að ná meiru út úr þeim sem situr hinum megin við borðið. Þá vinnur Trump eftir þeirri samn­inga­tækni að stig­magna til að draga úr spennu (e. escalate to deescalate), sem gengur út á að ógna og fram­kalla ótta hjá gagn­að­il­anum til að sann­færa hann um að það sé í hans hag að semja, vegna þess að útkoman geti orðið veru­lega vond. Í því skyni getur hjálpað að telj­ast vera óút­reikn­an­legur og til­bú­inn í hvað sem er, en Trump var meðal ann­ars kall­aður „klikk­aður“ eftir að hafa hótað útrým­ingu sið­menn­ingar Írans á mið­nætti aðfar­arnótt mið­viku­dags. Aðferðin missir þó marks ef orð­sporið gengur út á að hót­an­irnar séu marklausar.

Hótaði að sprengja Íran á steinöld

Trump full­yrti að aðferð hans, sem fól í sér lof­orð um að sprengja Íran aftur á „stein­öld“ með því að beina árásum að orku­verum og brúm fyrir almenn­ing, hefði þjónað til­gangi sínum.

„Alger og full­kom­inn sigur,“ sagði for­set­inn við AFP í stuttu sím­tali eftir til­kynn­ing­una um vopna­hlé. „100 pró­sent. Engin spurn­ing um það.“

Hvíta húsið full­yrti einnig að allt hefði gengið sam­kvæmt áætlun og sagði að Trump hefði alltaf ætlað að aðgerðin „Epísk bræði“ (Epic Fury) myndi standa yfir í fjórar til sex vikur.

„Árangur hers okkar skap­aði hámarks­á­hrif, sem gerði Trump for­seta og teymi hans kleift að taka þátt í erf­iðum samn­inga­við­ræðum,“ sagði Karoline Leavitt, fjöl­miðla­full­trúi, við frétta­menn.

En gagn­rýnendur segja að Trump hafi beitt sömu aðferð í öllu, allt frá tollum til stríða og hót­ana hans um að inn­lima Grænland, sér­stak­lega þegar mark­aðir byrja að bregð­ast óhag­stætt við.

Fyr­ir­bærið hefur nú sína eigin skamm­stöfun, sem upp­haf­lega kom frá verð­bréfa­sölum: TACO, eða „Trump Always Chickens Out“ (Trump guggnar alltaf).

„Herfræðilegur hálfviti“

Loge – sem spáði því á þriðju­dags­morgun að Trump myndi lýsa yfir sigri í Írans­mál­inu og gefa þeim svo „tvær vikur í við­bót“ – bætti við: „Það eina stöðuga sem Trump for­seti gerir er að lýsa yfir sigri.“

Tíma­bilið tvær vikur er einnig kunn­ug­legt fyrir þau sem fylgj­ast með Trump og hafa séð hann nefna það í röð af fyrri krísum.

Gagn­rýnendur, undir for­ystu demókrata, segja að Trump hafi fært alrík­is­valdið til sín frá þing­inu, sem hefur verið að mestu eft­ir­gef­an­legt og nú fjar­ver­andi, þrátt fyrir að stjórn­ar­skráin segi í orði kveðnu að það sé í verka­hring þings­ins að lýsa yfir stríði.

„Trump er her­fræði­legur hálf­viti,“ sagði Chuck Schumer, leið­togi minni­hlut­ans í öld­unga­deild­inni, þegar hann til­kynnti að öld­unga­deildin myndi greiða atkvæði um ályktun um stríðs­vald í næstu viku.

Íran með kverkatak

And­stæð­ingar Trumps segja að stríðið hafi í raun skilið Íran eftir með yfir­ráð yfir Hor­mússundi, með kverka­tak á orku­verði heims­ins. Það eru líka litlar sann­anir fyrir því að hann hafi gert meira til að koma í veg fyrir að Íran fái kjarn­orku­sprengju, í ljósi þess að Íranar eiga enn birgðir sínar af mjög auðg­uðu úrani.

Til að auka enn á óviss­una krafð­ist Pete Hegseth stríðs­mála­ráð­herra þess eftir vopna­hléið að Íran myndi afhenda Banda­ríkj­unum auðgað úran, sem er talið liggja grafið þar sem kjarn­orku­þró­un­ar­mið­stöðvar Írana voru sprengdar upp í júní í fyrra í árás Banda­ríkj­anna og Ísraels.

Repúblikanar Trumps eru ugg­andi um að stríðið í Mið-Aust­ur­löndum muni koma niður á þeim í þing­kosn­ing­unum í nóv­em­ber, þar sem banda­rískar fjöl­skyldur eiga nú þegar erf­ið­ara með að borga reikn­ing­ana.

„Allt þetta ger­ist þegar einn maður ... hefur óheft vald til að heyja stríð,“ bætti Schumer við.

Gagn­rýnin jókst þegar vopna­hléið virt­ist verða sífellt brot­hætt­ara, þar sem Íran hót­aði að leysa það upp ef Ísrael stöðv­aði ekki árásir á Líbanon, eftir að Ísrael lagði upp í mann­skæð­ustu árásir sínar til þessa í land­inu, beint í kjöl­far vopna­hlés­ins.

„Trump, ‚frið­ar­for­set­inn‘, hefði aldrei átt að hefja þetta stríð ásamt Ísrael, sem vill greini­lega ekki frið,“ sagði fyrr­ver­andi banda­maður og þing­kona Marjorie Taylor Greene, sem Trump upp­nefndi í gær Martjorie Brown, af þeim sökum að „grænt breyt­ist í brúnt við þrýst­ing“.

Þrátt fyrir allt lof­uðu stuðn­ings­menn Trumps sam­komu­lagið.

„Það lítur út fyrir að Trump hafi á end­anum slegið í gegn hér, gengið á ystu nöf. Íran gefur eftir,“ sagði Laura Ingraham, þátta­stjórn­andi Fox News og banda­maður, í þætti sínum eftir til­kynn­ingu sam­komu­lags­ins.

Hefur látið verða af hótunum

Þótt Trump sé sak­aður um að guggna ávallt hefur hann þó rutt brautir sem fyrri for­setar hafa forð­ast. Þar á meðal sendi hann her­flokk til að hand­taka Niculas Maduro, for­seta Venes­ú­ela, mitt í höf­uð­borg­inni, skip­aði fyrir um dirfsku­lega björg­un­ar­að­gerð eftir að flug­maður hrap­aði í miðju Íran og sendi bæði landamæra­verði, inn­flytj­enda­lög­reglu og þjóð­varð­liða inn í banda­rískar borgir, svo eitt­hvað sé nefnt. Eftir góðan árangur í dirfsku­legum aðgerðum hefur Trump átt til að fær­ast í auk­ana. Þannig hót­aði hann að taka Grænland og Kúbu eftir hand­töku Maduros og hót­aði að eyða íranskri sið­menn­ingu sama dag og hann hrós­aði sigri yfir björgun banda­ríska flug­manns­ins í vik­unni.

Nú í gær­kvöldi minnt­ist hann á Grænland á ný eftir fund með fram­kvæmda­stjóra NATO, þar sem for­set­inn mun hafa hótað að yfir­gefa banda­lagið vegna skorts á stuðn­ingi banda­manna við Írans­stríðið sem hann hóf án sam­ráðs við þá.

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Já og hann og hans ismi er þrátt fyrir allt dýrkaður af tæplega helmingi Bandarísku þjóðarinnar + stórs hluta hins vestræna heims. Heilaþvotturinn svín virkar.
    4
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ef að heilu runurnar af persónuleika röskunum að viðbættri heilabilun er strategýa, þá er örugglega hægt að kalla ölvunarakstur snilldarverk. Trump hefur klúðrað öllu sem hann hefur snert á sinni ævi, nema því eina að vera peningaþvottavél fyrir suma verstu skúrka heimsins. Og til þess þurfti hann ekkert nema nafnið og fullkomið siðleysi, aðrir sáu um verkið.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár