Trump ógnandi eftir NATO-fund

„MUNIÐ EFTIR GRÆNLANDI,“ segir Banda­ríkja­for­seti eftir fund með fram­kvæmda­stjóra NATO.

Trump ógnandi eftir NATO-fund
Mark Rutte og Marco Rubio Vel fór á með fram­kvæmda­stjóra NATO og utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, en verr virð­ist hafa gengið á fundi þess fyrr­nefnda með for­set­anum, Donald Trump, sem fyllt­ist bræði eftir fund­inn. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, gagn­rýndi NATO harð­lega og virt­ist end­ur­nýja hót­anir sínar varð­andi Grænland eftir fund með Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóra banda­lags­ins, sem hald­inn var fyrir luktum dyrum í gær­kvöldi. Búist var við að á fund­inum yrði rætt um mögu­lega útgöngu Banda­ríkj­anna úr þessu mik­il­væga örygg­is­banda­lagi.

Reiði Trumps í garð banda­lags­þjóða NATO vegna þess að þær tóku ekki þátt í stríði hans gegn Íran hafði vakið ótta um að hann myndi reyna að draga Banda­ríkin út úr banda­lag­inu, sem Ísland er stofn­að­ili að.

Í fyrstu ummælum sínum eftir fund­inn ítrek­aði hann þó aðeins gremju sína.

„NATO VAR EKKI TIL STAÐAR ÞEGAR VIÐ ÞURFTUM Á ÞEIM AÐ HALDA, OG ÞEIR VERÐA EKKI TIL STAÐAR EF VIÐ ÞURFUM AFTUR Á ÞEIM AÐ HALDA,“ birti hann á Truth Social.

„MUNIÐ EFTIR GRÆNLANDI, ÞESSUM STÓRA, ILLA REKNA ÍSMOLA!!!“ bætti hann við, án frek­ari útskýr­inga.

Áður en Trump hóf stríð sitt gegn Íran var hótun hans um að taka yfir Grænland, sem er í ríkja­sam­bandi við Danmörku, banda­lags­þjóð í NATO, eitt helsta deilu­málið sem skók banda­lagið.

Rutte – fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Hollands, sem hefur verið kall­aður „Trump-hvísl­ar­inn“ fyrir hæfni sína til að blíðka for­set­ann óút­reikn­an­lega – gekk inn í vest­ur­álmu Hvíta húss­ins um hlið­ar­inn­gang og fundur þeirra fór fram fyrir luktum dyrum.

„Þetta voru mjög hrein­skilnar, mjög opnar umræður,“ sagði Rutte síðar í sjón­varps­við­tali við CNN.

Þegar Rutte var ítrekað spurður hvort Trump hefði sagt að hann myndi yfir­gefa banda­lagið, svar­aði hann ekki beint.

Karoline Leavitt, fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins, sagði við frétta­menn fyrir fund­inn að mögu­leg úrsögn væri „eitt­hvað sem for­set­inn hefur rætt, og ég held að það sé eitt­hvað sem for­set­inn mun ræða eftir nokkrar klukku­stundir við Rutte fram­kvæmda­stjóra.“

„Sorglegt“ að NATO hafi snúið baki við Trump

„Það er sorg­legt að NATO hafi snúið baki við banda­rísku þjóð­inni síð­ustu sex vikur þegar það er banda­ríska þjóðin sem hefur fjár­magnað varnir þeirra,“ sagði Karoline Leavitt, fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins, við frétta­menn.

Aðspurð hvort Trump myndi ræða mögu­lega úrsögn úr NATO sagði Leavitt fyrir fund­inn: „Það er eitt­hvað sem for­set­inn hefur rætt og ég held að það sé eitt­hvað sem for­set­inn mun ræða eftir nokkrar klukku­stundir við Rutte fram­kvæmda­stjóra.“

Fund­ur­inn fer fram degi eftir að Banda­ríkin og Íran sam­þykktu við­kvæmt tveggja vikna vopna­hlé.

Trump hefur lýst yfir reiði sinni yfir því að vest­rænir banda­menn neit­uðu að styðja stríð hans gegn Íran, sem hefur hrist upp í 77 ára gömlu Atl­ants­hafs­banda­lag­inu, en Trump er tveimur árum eldri en það.

Hæðist að leiðtogum annarra ríkja

Banda­ríkja­for­seti hefur kallað NATO „papp­írstígur“ fyrir að neita að leiða aðgerðir til að opna hið hern­að­ar­lega mik­il­væga Hor­mússund og fyrir að tak­marka notkun banda­rískra her­sveita á her­stöðvum á yfir­ráða­svæðum þeirra.

Trump hefur ráð­ist per­sónu­lega og harka­lega á nokkra þeirra, gagn­rýnt Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, og sagt hann „engan Winston Churchill“ og gert grín að flug­móð­ur­skipum Breta og kallað þau „leik­föng“.

Til að refsa þeim NATO-ríkjum sem talin eru hafa verið óhjálp­leg íhugar rík­is­stjórn Trumps áætlun um að flytja banda­ríska her­menn og stað­setja þá í öðrum löndum sem talin eru styðja betur við stríð Banda­ríkj­anna í Íran, sam­kvæmt frétt WSJ.

En áætl­unin nær ekki jafn langt og ítrek­aðar hót­anir Trumps um að draga Banda­ríkin alfarið úr NATO – en til þess þyrfti hann að nafniu til sam­þykki þings­ins.

„Pabbi“

Fram­kvæmda­stjóri NATO hefur þó sýnt að hann getur fengið Trump aftur á sitt band.

Fyrir heim­sókn­ina í Hvíta húsið fund­aði Rutte með Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, til að ræða mál­efni Írans, stríð Rúss­lands gegn Úkraínu og skyldur NATO.

„Leið­tog­arnir tveir ræddu aðgerð­ina Epíska bræði (Epic Fury), áfram­hald­andi við­leitni Banda­ríkj­anna til að ná fram samn­ings­bundnum endi á stríði Rúss­lands og Úkraínu og aukna sam­hæf­ingu og skipt­ingu ábyrgðar milli banda­manna í NATO,“ sagði Tommy Pigott, aðstoð­ar­tals­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Rutte mun einnig funda með Pete Hegseth, varn­ar­mála­ráð­herra, á meðan hann dvelur í Washington.

NATO hefur gengið í gegnum hverja krepp­una á fætur annarri síðan Trump komst aftur til valda á síð­asta ári – sér­stak­lega vegna ítrek­aðra hót­ana hans um að taka Grænland af Danmörku, sem er aðild­ar­ríki banda­lags­ins.

Fyrr í vik­unni sagði Trump að vanda­mál hans með NATO „hafi öll byrjað“ með Græn­landi – þótt hann hafi hótað úrsögn síðan á fyrsta kjör­tíma­bili sínu.

Hótar bandamönnum

Und­an­farna mán­uði hefur hann einnig brugð­ist Úkraínu í stríði hennar gegn Rúss­landi og hótað að verja ekki banda­menn nema þeir verji meiri fjár­munum til varn­ar­mála.

Rússland og Kína hafa fylgst með af ánægju á meðan Trump gerir lítið úr banda­lag­inu.

Rutte hefur verið í lyk­il­hlut­verki í við­leitni banda­manna til að smjaðra fyrir og sefa Banda­ríkja­for­seta, sem hann kall­aði „pabba“ á leið­toga­fundi í fyrra.

Varðandi Íran hefur hann reynt að fara bil beggja með því að kalla við­leitni Banda­ríkj­anna til að draga úr hern­að­ar­mætti Teheran eitt­hvað sem beri að „fagna“.

Þegar Rutte var á leið til Washington sagði emb­ætt­is­maður NATO að hann hygð­ist „ræða núver­andi örygg­is­á­stand, meðal ann­ars í tengslum við Íran og áfram­hald­andi stríð Rúss­lands gegn Úkraínu“ í við­ræðum sínum við Trump.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár