Segir forsætisráðherra Grænlands að „skammast sín“

Erind­reki Trumps gagn­vart Græn­landi segir Banda­ríkin hafa skuld­bind­ingu til að gæta að heilsu Græn­lend­inga með sjúkra­skipi.

Jeff Landry og Donald Trump
Jeff Landry og Donald Trump Rík­is­stjóri Louisiana var nýverið skip­aður sendi­full­trúi Banda­ríkj­anna gagn­vart Græn­landi. Mynd: AFP

Jeff Landry, rík­is­stjóri Louisiana og sendi­full­trúi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta gagn­vart Græn­landi, hefur brugð­ist ókvæða við því að græn­lensk stjórn­völd afþökk­uðu banda­rískt sjúkra­skip, sem Trump full­yrti að hann ætl­aði að senda til lands­ins.

„Skömm sé Jens-Frederik Nielsen for­sæt­is­ráð­herra!“ sagði Landry á sam­fé­lags­miðl­inum X í nótt. „Donald Trump for­seta og Banda­ríkj­unum er ekki sama.“

Trump vakti undrun þegar hann full­yrti á sam­fé­lags­miðli sínum Truth Social að hann hefði ákveðið að senda sjúkra­skip til Græn­lands til þess að veita lands­mönnum lækn­ingu. Bæði stjórn­völd í Danmörku og Græn­landi afþökk­uðu, enda byggju Græn­lend­ingar að gjald­frjálsri heil­brigð­is­þjón­ustu, en óljóst er hvort nokk­urt raun­veru­legt skip var til reiðu í verk­efnið.

„Eftir að hafa rætt við marga Græn­lend­inga um dag­leg vanda­mál sem þeir standa frammi fyrir, stóð eitt mál upp úr – heil­brigð­is­þjón­ustan,“ sagði Landry. „Mörg þorp og smá­bæir skortir grunn­þjón­ustu sem Banda­ríkja­menn telja oft sjálf­sagða. Í litlum byggð­ar­lögum eru engir fastir læknar, grein­ing­ar­tæki eða sér­fræði­þjón­usta – sem neyðir íbúa til að ferð­ast langar vega­lengdir til að fá lífs­nauð­syn­lega með­ferð sem ætti að vera í boði heima fyrir.“

Sjúkra­skipiðUndrun vakti um helg­ina þegar Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagði sjúkra­skip vera á leið­inni til Græn­lands. Sama dag hafði skip­verji á banda­rískum kaf­bát fengið aðhlynn­ingu í Nuuk vegna veik­inda.

Þá full­yrðir hann að Banda­ríkin hafi nú tekið að sér að auka heil­brigði græn­lensku þjóð­ar­innar. „Heil­brigt Grænland er mik­il­vægt fyrir þjóðar­ör­yggi Banda­ríkj­anna. Banda­ríkin eru stað­ráðin í að verja Grænland og það byrjar á því að tryggja að íbúar þess séu varðir gegn ein­földum sjúk­dómum og kvillum,“ segir hann. 

„Þessi verk­efni skipta máli því heilsa er órjúf­an­legur hluti af öryggi. Skuld­bind­ing Banda­ríkj­anna til að verja Grænland verður að byrja á því að tryggja að íbúar þess séu heil­brigðir.“

Heima­ríki Landrys býr hins vegar við einna verstu með­al­ævi­líkur í Banda­ríkj­unum, eða um 72 ár, sem er svipað og á Græn­landi en tíu árum minna en í Danmörku. 

Banda­rísk stjórn­völd eru ekki talin hafa gefið upp á bát­inn að ná yfir­ráðum á Græn­landi. Nú standa yfir samn­inga­við­ræður milli Banda­ríkj­anna, ann­ars vegar, og Græn­lands og Dan­merkur, hins vegar, að kröfu Trump­stjórn­ar­innar.

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JFF
    Jóna Fanney Fridriksdottir skrifaði
    Þetta er svo æpandi mikil fáviska og í senn svo ruddalegt að ég spyr mig; eru þetta algjörir fávitar eða býr etv. einhver machiavellísk snilld þarna að baki?
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hvernig ætli það fari í Bandaríkjamenn sjálfa, þegar stór hluti þeirra hefur ekki aðgang að heilbrigðisþjónustu sjálfir, að hlusta á Forsetann setja upp svona leikrit. Trump býr í hvergilandi og hefur alltaf gert.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár