Varaformaður VG kennir kjósendum um

Edward H. Hujbens vill ekki að „for­sæt­is­ráð­herra beiti sér eins og ein­hver ein­ræð­is­herra“. Hug­myndir hans um íslenska stjórn­skipun og hlut­verk for­sæt­is­ráð­herra sam­ræm­ast illa við­teknum skiln­ingi á þing­ræði.

Varaformaður VG kennir kjósendum um

Edward H. Hujbens, vara­for­maður Vinstri grænna, kennir kjós­endum um að Sigríður Á. Andersen sé enn dóms­mála­ráð­herra og telur að gerð sé óvið­eig­andi krafa til Katrínar Jak­obs­dóttur og Vinstri grænna í umræðum um stöðu ráð­herra. „Nú er krafa uppi um að okkar for­sæt­is­ráð­herra beiti sér eins og ein­hver ein­ræð­is­herra og ráði og reki ráð­herra, eins og kallað er eftir hverju sinni. Sem betur fer virkar okkar stjórn­skipan ekki alveg þannig,“ sagði hann í ræðu sinni á flokks­ráðs­fundi VG í dag. 

Vara­for­mað­ur­inn tók fram að í kerf­inu væru sér­stök ferli fyrir mál eins og mál Sigríðar. Ráðherra sé sjálfur ábyrgur fyrir sér og sínum ákvörð­unum, en ábyrgðin á því hverjir velj­ist í ráð­herra­stóla sé fyrst og fremst kjós­enda sjálfra. „Þeir sem kjósa flokka og ráð­herra á þing aft­ur og aft­ur, sem sann­ar­lega hafa farið á svig við lög og regl­ur, hljóta að verða skoða hug sinn vand­lega. Ég vil skila skömm­inni, skila henni til þeirra sem kusu, vit­andi vits yfir okk­ur ráð­herra sem aðeins virð­ist vilja fylgja eig­in villu­ljósi.“

Ein af grund­vall­ar­reglum íslenskrar stjórn­skip­unar er þing­ræð­is­reglan, en í henni felst að þeir einir geta orðið ráðherrar og haldið ráð­herra­stóli sem meiri­hluti þings­ins vill styðja eða þola í emb­ætti. Þannig starfa ráð­herrar í póli­tísku umboði meiri­hlut­ans á Alþingi og þeirra flokka sem skipa þennan meiri­hluta.

Í dag er Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og leið­togi rík­is­stjórn­ar­innar á Íslandi. Eins og Gunnar Helgi Krist­ins­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor útskýrir í grein sinni, Sjálf­stæði ráð­herra og þing­ræð­is­reglan, frá 2006 má segja að póli­tísk ábyrgð á störfum fram­kvæmd­ar­valds­ins, og störfum ráð­herra, hvíli á rík­is­stjórn­inni í heild þar sem for­sæt­is­ráð­herra gegnir for­ystu­hlut­verki. „Seta ráð­herra í emb­ætti er þannig afleið­ing af setu rík­is­stjórn­ar­innar og háð henni. Í sam­ræmi við það er óum­deilt að form­lega geti for­sæt­is­ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar vikið hverjum og einum ráð­herra úr emb­ætti,“ skrifar Gunnar.

Það er í þessu sam­hengi sem Katrín Jak­obs­dóttir hefur verið krafin svara um afstöðu sína til áfram­hald­andi setu Sigríðar Andersen í emb­ætti. Vara­for­maður Vinstri grænna virð­ist hins vegar telja þessa nálgun óeðli­lega og til marks um að litið sé á Katrínu sem ein­ræð­is­herra. Það sjón­ar­mið sam­ræm­ist illa við­teknum skiln­ingi á þing­ræð­is­fyr­ir­komu­lag­inu í íslenskri stjórn­skipan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár