Katrín tekur ekki afstöðu til þess hvort Bjarni hafi brotið siðareglur

For­sæt­is­ráð­herra segir það „ekki hlut­verk for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins að kveða upp úrskurði um það hvort siða­reglur hafa verið brotnar í ein­stökum til­vikum“ í svari við fyr­ir­spurn um hvort siða­reglum hefði verið fylgt þegar fjár­mála­ráð­herra sat á skýrslum um aflandseignir Íslend­inga fram yfir þing­kosn­ingar árið 2016.

Katrín tekur ekki afstöðu til þess hvort Bjarni hafi brotið siðareglur

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra tekur ekki afstöðu til þess hvort Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafi brotið siða­reglur með því að sitja á skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum fram yfir þing­kosn­ingar árið 2016. Þetta kemur fram í svari ráð­herra við fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata.

Í svar­inu er rakið að það sé á ábyrgð hvers ráð­herra að gæta þess fyrir sitt leyti að farið sé eftir regl­unum. Í vafatil­vikum geti þó ráð­herra leitað ráð­gjafar hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. 

Spurt er hvort farið hafi fram mat á því hvort efni skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum varði almanna­hag og hver nið­ur­staða þess mats hafi þá verið.

„Sú skýrsla sem spurt er um var unnin á vegum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Fyr­ir­spurnum er varða efni hennar, eða mat á efni hennar, ber að beina til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þing­sköp Alþingis,“ segir í svari for­sæt­is­ráð­herra.

Þá er því ekki svarað hvort for­sæt­is­ráð­herra telji að siða­reglur hafi verið brotnar með töfum á birt­ingu umræddrar skýrslu: „Samkvæmt siða­reglum ráð­herra nr. 1250/2017 hefur for­sæt­is­ráðu­neytið ráð­gef­andi hlut­verk gagn­vart ráð­herrum um túlkun þeirra. Það er hins vegar ekki hlut­verk for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins að kveða upp úrskurði um það hvort siða­reglur hafa verið brotnar í ein­stökum til­vikum.“

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sætti harðri gagn­rýni þegar í ljós kom að hann hafði ákveðið að birta hvorki almenn­ingi né Alþingi skýrslu um aflandseignir Íslend­inga, sem unnin var og skilað ráðu­neyti hans þann 13. sept­em­ber 2016, fyrr en eftir þing­kosn­ing­arnar sem fram fóru í októ­ber sama ár. 

Í skýrsl­unni er fjallað með gagn­rýnum hætti um þá stefnu sem rekin var á sviði skatta­lög­gjafar og skatta­eft­ir­lits á útrás­ar­ár­unum þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór með fjár­mála­ráðu­neytið.

T.d. er rakið hvernig ráð­legg­ingar sér­fræð­inga um að inn­leiða svo­kall­aða CFC-lög­gjöf í takt við þró­un­ina í nágranna­lönd­unum voru huns­aðar á tímum gríð­ar­legrar „afland­svæð­ingar“ á Íslandi. Fram kemur að íslensk skatta­lög „gefið meira svig­rúm til flutn­ings eigna úr lög­sög­unni með lög­legum hætti en víða ann­ars staðar“ auk þess sem eft­ir­fylgni og gagna­skrán­ing hafi ekki haldið í við hraðan vöxt fjár­magns­flutn­inga. Fyrir vikið hafi gríð­ar­legum fjár­munum verið skotið undan skatti og sam­fé­lagið orðið af tugum millj­arða. 

Eftir að í ljós kom í byrjun jan­úar 2017 að skýrslan var löngu til­búin en hafði ekki verið birt full­yrti Bjarni Bene­dikts­son í frétta­við­tali að skýrsl­unni hefði ekki verið skilað í ráðu­neyti hans fyrr en eftir þing­slit í októ­ber. Fljót­lega kom í ljós að þetta var rangt. Við­ur­kenndi Bjarni að hafa sjálfur ákveðið að birta ekki skýrsl­una, enda ekki viljað að efni hennar yrði sett „í kosn­inga­sam­hengi“. Sem kunn­ugt er hafði einmitt verið boðað til þing­kosn­ing­anna árið 2016 vegna harðra við­bragða almenn­ings við upp­ljóstr­unum um tengsl æðstu vald­hafa við aflands­fé­lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár