Athafnamaður telur umfjöllun um ójöfnuð einkennast af öfund

„Fleiri ættu að stofna eigin rekstur og láta drauma sína ræt­ast. Það virð­ist gef­ast vel hjá þeim hafa úthald til lengri tíma og vinna sín verk vel,“ skrifar Hermann Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri N1.

Athafnamaður telur umfjöllun um ójöfnuð einkennast af öfund
Hermann Guð­munds­son Fyrr­ver­andi for­stjóri N1 telur umræðu um að þús­und ein­stak­lingar ráði yfir 98% eig­in­fjár íslenskra fyr­ir­tækja vera öfund. Mynd: Skjáskot af Youtube

Hermann Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri N1 sem hefur verið umfangs­mik­ill í íslensku við­skipta­lífi um ára­bil, telur að umfjöllun fjöl­miðla um ójöfnuð að því er varðar dreif­ingu eig­in­fjár ein­stak­linga í fyr­ir­tækjum sé drifin áfram af öfund. 

„Mér finnst sjálfum að punkt­ur­inn sé aug­ljós­lega sá að fleiri ættu að stofna eigin rekstur og láta drauma sína ræt­ast. Það virð­ist gef­ast vel hjá þeim hafa úthald til lengri tíma og vinna sín verk vel,“ skrifar Hermann á Facebook. 

Sam­an­­tekt sem Cred­it­in­fo vann fyr­ir Við­skipta­Mogg­ann hefur vakið tals­verða athygli í dag, en þar er sýnt hvernig fámennur hópur fólks á nær allt eigið fé ein­stak­l­inga í íslenskum fyr­ir­tækjum. Um þús­und manns eiga ríf­lega 98 pró­sent af öllu því eig­in fé sem er í eigu ein­stak­l­inga eða tæpa 1.200 millj­arða króna. Þá kemur fram að tíu eigna­­mestu ein­stak­l­ing­ar lands­ins eiga tæp­­lega þriðj­ung af eig­infé ein­stak­linga í fyr­ir­tækjum. 

„Í dag virð­ist stóra fréttin vera sú að 1.000 manns eiga 1.200 millj­arða af eigin fé fyr­ir­tækja í rekstri. Ekki er minnst á að almenn­ingur á ca. 1.520 millj­arða af þessu sama eigin fé í gegnum líf­eyr­is­sjóði auk þess sem mörg hund­ruð millj­arðar hvíla í rík­is­fyr­ir­tækjum í eigu almenn­ings,“ skrifar Hermann.

„Fréttin er sett fram með svip­uðu sniði og gert var í árdaga sósi­alista sem vildu rík­i­s­væða allar eignir. Það var reyndar víða gert með skelfi­legum afleið­ingum. Öfundin er drif­kraftur en ekki góður leið­sögu­maður.“

Hermann hefur komið víða við í við­skipta­líf­inu, meðal ann­ars setið í stjórnum Samtaka atvinnu­lífs­ins, Samtaka versl­unar og þjón­ustu, Klaks hf. og Rann­sókn­ar­set­urs versl­un­ar­innar. Hann var við­skipta­fé­lagi Bjarna Bene­dikts­sonar, núver­andi fjár­mála­ráð­herra, og fjöl­skyldu hans um ára­bil og til dæmis lyk­il­maður í kaupum Eng­ey­inga og fleiri fjár­festa á Olíu­fé­lag­inu árið 2006 sem síðar fékk nafnið N1. Þar gegndi hann stöðu for­stjóra til 2012, en í dag er hann for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Kemi ehf og situr í stjórnum fjög­urra einka­hluta­fé­laga sam­kvæmt til­tækum upp­lýs­ingum Credit Info. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Vaxandi misskipting

Lausnin felst í samstöðu grasrótarinnar, aukinni menntun og algjörri hugarfarsbreytingu
FréttirVaxandi misskipting

Lausnin felst í sam­stöðu gras­rót­ar­innar, auk­inni menntun og algjörri hug­ar­fars­breyt­ingu

Hvernig bregst fólk við þegar atvinnu­ör­yggi minnkar og mis­skipt­ing eykst? Æ fleiri leita í fang sterkra leið­toga sem boða auð­veldar lausnir á meðan þeir egna ólíkum þjóð­fé­lags­hópum saman. Stundin ræddi við fræði­menn um mis­skipt­ing­una í íslensku og alþjóð­legu sam­hengi. Þeir benda meðal ann­ars á að aukin menntun stuðli að meiri jöfn­uði.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár