Tíu mest lesnu pistlar á Stundinni á árinu

Costco, kyn­frelsi kvenna, fall rík­is­stjórn­ar­innar og íbúð­ar­kaup. Þetta eru mest lesnu pistlar Stund­ar­innar á árinu sem er að líða.

Tíu mest lesnu pistlar á Stundinni á árinu

1 Birna

Illugi Jök­uls­son skrif­aði mest lesna pistil árs­ins á Stund­inni sem birt­ist í kjöl­far þess að Birna Brjáns­dóttir, sem leitað hafði verið í um viku, fannst látin. „Núna þegar við höfum öll kynnst Birnu Brjáns­dóttur af fal­legum lýs­ingum fjöl­skyldu og vina á skemmti­legri og kátri stúlku, og við höfum fylgt Birnu hennar hinstu göngu­ferð, þá er tóm í lífi okkar allra,“ skrif­aði Illugi meðal ann­ars, um sorg­ina sem þjóðin upp­lifði í kjöl­far frétt­anna.

 

2 Karlmaður í kventíma

Hall­grímur Helgason sló í gegn á árinu með pistli sínum um það hvernig þrettán ára stúlka, í krafti sinnar verstu stundar, náði að fella heila rík­is­stjórn. „Hér urðu vatna­skil, femín­ism­inn felldi rík­is­stjórn, nýi opni tím­inn felldi þann gamla lok­aða.“

 

3 Costco: Musteri græðginnar

Jón Trausti Reyn­is­son, rit­stjóri Stund­ar­innar, vakti tals­verða athygli fyrir að benda á ástandið sem bloss­aði upp í sam­fé­lagið í kjöl­far opn­unar Costco á Íslandi og bar saman magnsam­fé­lagið og gæða­sam­fé­lagið: „Í magnsam­fé­lag­inu er neyslan hámörkuð. Þú þarft að keyra langt, eyða miklu bens­íni og þarft lágt verð. Þú borðar mikið. Inntaka er ham­ingja. Þörfin er meiri.“

 

4

Karlar sem taka vald yfir líkömum kvenna

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri Stund­ar­innar, skrif­aði leið­ara í jan­úar um ótt­ann sem ofbeldi elur af sér og mik­il­vægi þess að end­ur­heimta almanna­rýmið, því konur eigi að geta gengið á götum úti, einar að næt­ur­lagi, í hvaða ástandi sem er. „Ógnin er þarna en ótti er lam­andi til­finn­ing. Ótti rænir þig frels­inu, kraft­inum og gleð­inni. Við getum ekki lifað í ótta. Við getum ekki fall­ist á að það sé ásætt­an­legur veru­leiki kvenna að vera hræddar, hika eða hætta við, að þær þurfi að passa sig.“

 

5 Fjallkonan 2017

Í til­efni kvenna­frí­dags­ins, 24. októ­ber, samdi Þórdís Elva Þor­valds­dóttir ljóð um gosið, um fjall­kon­una árið 2017 og kraft hennar. 

Ég er fram­tíðin, ég er næsta stig,
og ég skil vel að þú ótt­ist mig
því ég er bálið sem verður af litlum neista
Þegar níð­ingur fær æru sína upp­reista

 

6 Sigur lyginnar

Í mars kom í ljós að það var eng­inn þýskur banki að kaupa í Bún­að­ar­bank­anum þegar bank­inn var einka­væddur, heldur var Ólafur Ólafsson athafna­maður og hópur í kringum hann að blekkja þjóð­ina til að kom­ast yfir bank­ann. Jón Trausti Reyn­is­son fjall­aði um sigur lyg­innar í leið­ara á Stund­inni að því til­efni. „Hluti af því að við­halda óheið­ar­leik­anum er að afla sam­úðar gagn­vart þeim sem er óheið­ar­legur.“

 

7
Lífið er betra þegar maður skuldar tugi milljóna

Snæbjörn Ragn­ars­son keypti sér íbúð á árinu og skrif­aði um það pistil. Þar lýsir hann veru­leika sem flestir á leigu- og hús­næð­is­mark­aði hljóta að kann­ast við. „Þegar allt hefur svo loks­ins verið sam­þykkt kemur í ljós að það kostar mig miklu minna að þykj­ast eiga íbúð sem ég skulda tugi millj­óna í heldur en að skulda ekk­ert og leigja. Hvernig í heitasta hel­víti getur verið að það sé ódýr­ara að skulda en ekki? Og af hverju í manna­skítnum flaug ég þá ekki í gegnum þetta ógeðs­lega greiðslu­mat?“ spurði hann meðal ann­ars.

 

8
Hneykslið í hneykslinu

Hall­grímur Helgason skrif­aði um með­virkn­ina gagn­vart stjórn­mála­mönnum í kjöl­far þess að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar féll vegna barn­a­níð­inga­hneykslis. „Nú siglum við inn í enn einar kosn­ing­arnar þar sem fjöl­miðlar virð­ast ekki ætla að þora að nefna ástæðu þeirra af ein­hverri fjand­ans til­lits­semi við hátt­sett fólk. Með­virkni­laust Ísland virð­ist ekki í aug­sýn.“

 

9

Það sem Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki að þú vitir um heilbrigðismál

Gunnar Jörgen Vigg­ós­son skrif­aði um útgjöld til heil­brigð­is­kerf­is­ins, þar sem hann rýndi í tölur frá Hag­stof­unni og bar saman við kynn­ing­ar­efni frá Sjálf­stæð­is­flokknum. „Ein skýr­ing er sú að lands­mönnum hefur fjölgað á tíma­bil­inu. Önnur er sú að þjóðin er að eld­ast. Þriðja skýr­ingin er gríð­ar­leg fjölgun ferða­manna, en ferða­menn nýttu 10% rýma á gjör­gæslu í fyrra. Enn önnur getur verið aðferðin sem notuð er til núvirð­ingar.“

 

10 Tilfinningabyltingin

Auður Jóns­dóttir skrif­aði um það þegar það rann upp fyrir henni að hún átti erfitt með að hlusta á frá­sagnir af ofbeldi því það trufl­aði minn­ingar hennar. Minn­ingar sem hún var búin að fín­pússa; ber­sögul og opin í augum flestra en um leið höf­undur eigin lífs. „Á sokka­bandsárum mínum fór fólk yfir mörkin hjá mér og ég yfir mörkin hjá því, þannig var veru­leiki íslenskra ung­linga sem heyrðu í besta falli ein­hvern segja mörk þegar þurfti að plana fyll­erí í Þórsmörk og kannski ekk­ert skrýtið hversu margir héldu út í lífið í tætlum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár