Samtök atvinnulífsins gefa ekki upp forsendurnar að baki fullyrðingum sínum

Tveir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar halda á lofti órök­studdum full­yrð­ingum frá hags­muna­sam­tökum fyr­ir­tækja í gagn­rýni sinni á rík­is­stjórn­ina. Samtök atvinnu­lífs­ins hafa ekki orðið við beiðni Stund­ar­innar um að gefa upp á hvaða for­sendum mat á stjórn­ar­sátt­mál­anum byggir.

Samtök atvinnulífsins gefa ekki upp forsendurnar að baki fullyrðingum sínum
Halldór Benjamín Þor­geirs­son Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins gagn­rýnir stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar en gefur ekki upp for­send­urnar að baki. Mynd: sa.is

Samtök atvinnu­lífs­ins gefa ekki upp hvaða for­sendur liggja að baki full­yrð­ingum sínum um að stjórn­ar­sátt­máli nýrrar rík­is­stjórnar „myndi kosta um 90 millj­arða á ári“. Samtökin full­yrða á vef sínum að mál­efna­samn­ingur nýrrar rík­is­stjórnar gefi fyr­ir­heit um árlega útgjalda­aukn­ingu rík­is­sjóðs og rík­is­fyr­ir­tækja upp á 87.860 millj­ónir króna á kjör­tíma­bil­inu og tekju­sam­drátt um 15 millj­arða en verða ekki við beiðni Stund­ar­innar um að gefa upp hvaða for­sendur liggja að baki útreikn­ing­unum.

Flestir fjöl­miðlar hafa birt full­yrð­ingar Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) án útskýr­inga. Vísað hefur verið til full­yrð­inga hags­muna­sam­tak­anna sem „úttektar“ og „grein­ar­gerðar“ og jafn­framt talað um „útreikn­inga“ Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Þá hafa tveir þing­menn, þeir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son úr Mið­flokknum og Þor­steinn Víglunds­son úr Viðreisn, not­fært sér full­yrð­ingar SA í gagn­rýni á rík­is­stjórn­ina. 

Samtök atvinnu­lífs­ins birtu mat sitt á kostn­aði stjórn­ar­sátt­mál­ans í nafn­lausum pistli á fimmtu­dag. Til að geta fjallað um málið óskaði Stundin eftir því að fá yfir­lit yfir for­sendur mats­ins fyrir hvern útgjalda­lið fyrir sig, enda er ekk­ert slíkt gefið upp í pistl­inum né ann­ars staðar á vef Samtaka atvinnu­lífs­ins. Við þeirri beiðni hafa sam­tökin ekki orðið þrátt fyrir ítrekun.

Mat Samtaka atvinnu­lífs­ins á tekju­sam­drætt­inum sem boð­aður er í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar virð­ist van­á­ætlað. SA full­yrðir að aðeins sé verið að gefa eftir 15 millj­arða tekjur á árs­grund­velli þegar fyr­ir­heit stjórn­ar­sátt­mál­ans eru komin til fram­kvæmda. 

Hins vegar má ætla, sam­kvæmt útreikn­ingum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, að lækkun tekju­skatts um eitt pró­sentu­stig kosti rík­is­sjóð ein og sér 13 til 14 millj­arða. Hækkun frí­tekju­marks af atvinnu­tekjum eldri borg­ara kostar um 1,3 millj­arða króna á ári sam­kvæmt mati Trygg­inga­stofn­unar og afnám virð­is­auka­skatts af bók­sölu kostar að minnsta kosti 200 til 300 millj­ónir. Trygg­inga­gjaldið er stór tekju­stofn, á að skila um það bil 100 millj­örðum á næsta fjár­laga­ári, og ef rík­is­stjórnin hyggst lækka trygg­inga­gjald í sam­ræmi við fyr­ir­heit sem gefin hafa verið aðilum vinnu­mark­að­ar­ins verður tekju­tapið af því veru­legt, lík­lega vel á annan tug millj­arða.

Þær skatta­hækk­anir sem koma á móti þessu eru óveru­legar; hækkun fjár­magnstekju­skatts skilar 2,5 til 3 millj­örðum í kass­ann. Komu­gjöld eru óút­færð en munu varla skila meira en 3 til 4 millj­örðum. Alls­endis óljóst er hve miklu hert skatta­eft­ir­lit og heild­ar­end­ur­skoðun á gjald­töku í sam­göngum og grænum sköttum mun skila. Ofan á þetta bæt­ist að í stjórn­ar­sátt­mál­anum er því slegið föstu að fallið verði frá hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu sem átti að skila 17,5 millj­arða tekjum í rík­is­sjóð og að kolefn­is­gjald verði hækkað helm­ingi minna á næsta ári en áður stóð til. 

Ýkt fullyrðing um skatta

Af þessu má ráða að kostn­aður vegna fyr­ir­hug­aðra skatta­lækk­ana rík­is­stjórn­ar­innar sé nær 30 millj­örðum en 15 millj­örðum og að Samtök atvinnu­lífs­ins van­meti tekju­sam­drátt­inn. Þetta er í sam­ræmi við þann skatta­lækk­un­ar­boð­skap sem birt­ist í pistli SA, en þar er hvatt ein­dregið til skatta­lækk­ana þrátt fyrir að Ísland sé sagt vera á „toppi hag­sveifl­unnar“. 

Í pistli SA er full­yrt að „nán­ast hvergi meðal þró­aðra ríkja [séu] skatt­tekjur hins opin­bera sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu hærri en á Íslandi.“ Þetta er á skjön við sam­an­burð Efnahags- og fram­fara­stofn­unar Evrópu á ríkjum að því er varðar hlut­fall skatt­tekna af vergri lands­fram­leiðslu, en sam­kvæmt við­miðum OECD eru skattar hærri en á Íslandi í 12 ríkjum í þessum skiln­ingi. Sjá hér:

„Óljóst“ hver kostnaðurinn sé vegna loftslagsmála

Samtök atvinnu­lífs­ins telja að stjórn­ar­sátt­mál­inn feli í sér fyr­ir­heit um 50 millj­óna útgjalda­aukn­ingu til atvinnu­mála, 9,3 millj­arða aukn­ingu til mennta- og menn­ing­ar­mála, 15 millj­arða aukn­ingu til heil­brigð­is­mála og 8,5 millj­arða aukn­ingu til hús­næð­is­mála. Þá er því spáð að 9,6 millj­arða við­bót­ar­út­gjöld fari til vel­ferð­ar­mála, 42,2 millj­arða útgjöld til sam­gangna, fjar­skipta og byggða­mála, 2,9 millj­arðar til alþjóða­mála og 300 millj­ónir til efl­ingar Alþingis.

Svo virð­ist sem SA telji að árlegur kostn­aður sem þessu nemur liggi nokkurn veg­inn ljós fyrir, enda er sér­stak­lega tekið fram að „óljóst“ sé hver kostn­að­ur­inn verði af aðgerðum í lofts­lags­málum. Að öðru leyti eru gefnar upp fremur nákvæmar tölur, t.d. 9.310 millj­ónir til mennta­mála.

Vísað er til hins meinta 87,86 millj­arða útgjalda­vaxtar sem „árlegs kostn­aðar“. Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, hefur þó dregið aðeins í land og sagt í við­tali við RÚV að það sé „mik­il­vægt að árétta að þetta er í raun tví­skipt. Annars vegar er þetta við­var­andi kostn­að­ar­aukn­ing sem við metum á um 32 millj­arða á ári. Hins vegar er þetta inn­viða­fjár­fest­ing sem eru ein­skipt­is­fjár­fest­ingar í eðli sínu. Sem eru um 55 millj­arðar sem sam­tals gerir um 90 millj­arða króna“.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í sömu frétt að mat SA væri ekki í sam­ræmi við það sem gert væri ráð fyrir í fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt verður í vik­unni.  Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði svo í við­tali við Mbl.is að hann vildi „sem minnst [...] segja um þetta plagg Sam­taka at­vinnu­lífs­ins að svo stöddu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár